top of page
IMG_0771_edited_edited.jpg

Mont Blanc Kvenna lúxusferð 17 - 24. júlí 2025

17. júlí 2025
8 dagar
frá 449.000 kr

Lúxus KVENNAFERÐ um allra vinsælustu gönguleið í Evrópu, umhverfis Mont Blanc eða Tour du Mont blanc (TMB). Ferð það sem nánast allt er innifalið. Þær Þóra og Hafrún ætla leiða kvennahóp um krefjandi gönguleiðir með dáleiðandi útsýni yfir jökla, bratta dali og auðvitað Mont Blanc sjálft. Í þessari lúxus ferð göngum fallegustu gönguleiðirnar á hringnum að okkar mati. Við göngum frá Frakklandi yfir til Ítalíu og aftur til Frakklands þar sem við endum ferðina í Chamonix. Þetta er ferð fyrir þær sem vilja ganga fallegar en krefjandi gönguleiðir og verðlauna sig með góðum mat og lúxus gistingu með spa.

Gist verður 4 nætur 4ra stjörnu hóteli í Chamonix með spa í tvíbýli hægt að sjá hér

Gist verður 1 nótt 4ra stjörnu hóteli St. Gervais með spa í tvíbýli, hægt að sjá hér

Gist verður 1 nótt á einstaklega kósý fjallahóteli, hægt að sjá hér

Gist verður 1 nótt í fjallskála sem hefur einstakt sólsetur yfir landamæri Frakklands og Ítalíu

Í lok ferðar er farið á 5 stjörnu spa á þremur hæðum í Chamonix. Spaið er með stórkostlegu útsýni yfir Mont Blanc fjallagarðinn, hægt að sjá hér

Farangur er trússaður á milli gististaða, akstur á milli Ítalíu og Frakklands og akstur á hótel.

Þetta eru langar og krefjandi gönguleiðir, göngum c.a 20 km á dag og yfir 1000 metra hækkun. Þátttakendur þurfa að vera í góðu formi fyrir þessa ferð. Þótt að farangur sé trússaður á milli gististaða þá eru dagleiðirnar mjög krefjandi.

Hápunktur ferðarinnar:

  • Einstak útsýni yfir Mont Blanc fjallgarðinn

  • Chamonix

  • Courmayeur

  • Lac Blanc

  • Fjallaskarðið Col de Tricot 2120 m

  • Fjallaskarðið Col du Bonhomme 2329 m

  • Fjallaskarðið Col du Croix du Bonhomme 2443 m

  • Fjallaskarðið Col du Seigne 2516 m

  • Gengið yfir landamæri Frakkland og Ítalíu

  • Val Farret dalurinn

  • 5 stjörnu spa

Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 49.000 kr. Lokagreiðsla 400.000 þarf að greiða fyrir 17.5. 2025. Hægt að skipta greiðslum niður. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Lámarksfjöldi 16, hámark 22

Fararstjórn: Hafrún Dögg Hilmarsdóttir og Þóra Jóhanna Hjaltadóttir

Verð: 449.000 kr​* 

*miðað við tvíbýlí, aukagjald vegna einbýli er 60.000 kr

Innifalið í verði:

  • Undirbúningsfundur

  • Flug með Icelandair, handfarangur og 1x 23 kg innrituð taska

  • Akstur til og frá flugvelli að hóteli 

  • Gisting í 4 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix með morgunmat

  • Gisting í 2 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Les Contamines og  Bourg Saint Maurice með morgunmat

  • Gisting 1 nótt í fjallaskála með morgunmat og kvöldmat

  • Aðgangur í alla kláfa

  • Aðgangur í 5 stjörnu Spa, léttar veitingar og drykkur

  • Trúss á farangri milli gististaða

  • Akstur á milli hótela og upphafsstað göngu

  • Akstur frá Ítalíu til Frakklands

  • Íslensk fararstjórn

Ekki innifalið í verði:

  • Ferða-, slysa- og farangurstrygging

  • Forfallatrygging

  • Allur annar matur sem er ekki talinn upp og nesti/hádegismatur á göngudögum

  • Þjórfé

Dagskrá

Dagur 1 - 17.7 - Ferðadagur flug frá Íslandi til Genf

Við lendum í Genf um hádegið. Erum sótt á flugvöllinn og keyrð á hótel í Chamonix.

Frjáls dagur.

Innifalið: Akstur og gisting á hóteli

Dagur 2 - 18.7 - Chamonix - Le Brévent - Le Blanc - Chamonix

Eftir morgunmat förum við í Kláf alveg upp á Le Brévent (2526m), drekkum í okkur óviðjafnanlegt útsýni Mont Blanc. Göngum þaðan eftir hlíðum Chamonix yfir að fallegustu vötnum Alpanna, Lac Blanc og Lac Chesery. Göngum að Refuge la Flégére og töku kláfinn niður. Gisting á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix

Gönguvegalengd: 17 km

Gönguhækkun: 850 m 

Göngutími: 8 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, kláfur og leiðsögn

Dagur 3 - 19.7 - Les Houches - Les Contamines

Eftir morgunmat tökum við stræto til Les Houches og tökum Bellevue kláfinn upp í 1800 metra. Göngum þaðan upp í Fjallaskarðið col de Tricot (2120 m) og niður til Les Contamines. Akstur og gisting á 4ra stjörnu hóteli Saint Gervais

Gönguvegalengd: 13 km

Göngnuhækkun: 700 metrar hækkun

Göngutími: 8 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, kláfur, akstur á hótel, trúss og leiðsögn

Dagur 4 - 20.7 Les Contamines - Les Chapieux

Eftir morgunmat göngum við til enda Montjoie dalsins til Les Chapieux dalsins. Þetta er langur dagur þar sem við göngum yfir tvö fjallaskörð, Col du Bonhomme (2329 m) og Col du Croix du Bonhomme (2443 m) áður en við göngum niður í síma- og netsambandsleysi í Chapieux. Ein fallegasta gönguleiðin á hringnum með stórbrotnu útsýni. Akstur og gisting á 3ja stjörnu hóteli í Bourg Saint Maurice

Gönguvegalend: 19 km

Gönguhækkun: 1400 m

Göngutími: 9 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, akstur á hótel, trúss og leiðsögn

Dagur 5 - 21.7 - Les Chapieux - Combal 

Eftir morgunmat, tökum við strætó í næsta þorp, Ville des Glacier þar sem við byrjum göngu upp í fjallaskarðið Col de la Seigne (2516 m)sem er á landamærum Frakkland og Ítalíu. Þegar á toppinn er komið er verðlaunin, einstaklega fallegt útsýni yfir Mont Blanc og Aiguille Noire. Við göngum niður dalinn og tökum hádegismat í Rifugio Elisabette. Göngum síðan áfram niður dalinn og gistum í fjallaskálanum Combal

Gönguvegalengd: 15 km

Gönguhækkun: 1000 m

Göngutími: 7 klst

Innifalið: Gisting í skála, morgun- og kvöldmatur og leiðsögn
 

Dagur 6 - 22.7 Combal - Courmayeur - Chamonix

Eftir morgunmat göngum við frá Combal niður í Courmayeur þar sem við tökum hádegismat. Eftir hádegismat göngum við í gegnum lerkiskóglendi þar til við komum upp að Refuge Bertoni (1989 m) þar opnast eitt fallega útsýni á þessum gönguhring með Mont Blanc og Grands Jorasses beint fyrir ofan dalinn Val Ferret. Við göngum eftir hlíðinni að Bonatti skálanum (2025 m) áður en við hefjum niðurgöngu þar sem við erum sótt og keyrð aftur til Chamonix í gegnum Mont Blanc fjallið. Akstur og gisting á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix

Gönguvegalengd: 19 km

Gönguhækkun: 1000 m

Göngutími: 9 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, akstur, trúss og leiðsögn
 

Dagur 7 - 23.7 - Chamonix

Við ætlum að njóta á 5 stjörnu spa sem er á 3 hæðum og síðan er frjáls dagur í Chamonix. Lokakvöldverður. Gisting á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix

Innifalið: Gisting á hóteli, aðgangur að spa, léttar veitingar og drykkur.

Dagur 8 - 24.7 - Ferðadagur

Eftir morgunmat pökkum við saman fyrir heimför. Akstur á flugvöll í Genf. Flug til Keflavíkur kl. 14.00.

Innifalið: Gisting á hóteli og akstur

bottom of page