top of page
IMG_5532_edited_edited.jpg

Föstudagsfjör á Esjunni
Blikdalshringur 3. maí 2024

Föstudagsfjör á Esjunni er gönguverkefni þar sem við ætlum að kynnast gönguleiðum á Esjunni betur. Allar göngurnar verða á föstudagsmorgnum kl. 9 eða 10. Gengið verður einu sinni í mánuði og göngurnar verða 10 talsins.

​

Föstudaginn 3.5 kl.8 göngum við Blikdalshringinn á Esjunni. Gangan er 23 km, 1400 metra hækkun og tekur um 8-9 klst. 

​

Blikdalshringurinn er frábær hringur á Esjunni, hann er krefjandi en vel þess virði með frábæru útsýni. Gengið er upp Dýjadalshnúk og eftir brúnum Esjunnar, þar til komið er að Kerhólakambi og þar göngum við niður hjá Smáþúfum og að bílum aftur 

​​

Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir

​

Verð: 7.900 kr​

bottom of page