top of page
32118265865_a2e4b2fc21_b.jpg

Tansanía - Safarí & Zansibar

07. febrúar 2025
12 dagar
frá 799.900 kr

Ógleymanlegt ferðalag um Austur Afríku þar sem þú upplifir margar af fallegustu perlum sem Tansanía hefur upp á að bjóða í einni ferð. Tansanía er mjög framandi og heillandi land, sambland af ævintýri og slökun. Í þessari ferð ætlum við að byrja á safarí og skoða allt það fjölbreytta og framúrskarandi villta dýralíf sem Tansaníu býður upp á. Skoða stærstu öskju heims Ngorongoro gíginn sem er á heimslista UNESCO og við heimsækjum Massai ættbálkinn. Við endum síðan ferðina á slökun á Zansibar, eyjuna sem er þekkt fyrir afslappað umhverfi, fallegar strendur, fagurbláan sjó og einstaka menningu.

Gist er á 3ja stjörnu hóteli í Arusha fyrir og eftir safari. Planet Lodge Arusha, hægt að skoða hótelið hér. Hótelið er mjög sjarmerandi og flott, herbergin eru lítil hús í grónum og fallegum garði.

Gist er á 4ra stjörnu hóteli í safari ferðinni, Heart and Soul lodge, hægt að skoða hér. Einstaklega vinarlegt og þægilegt hótel, maturinn ótrúlega góður og ferskur þar sem hótelið ræktar allt krydd, ávexti og grænmeti á svæðinu þar sem hótelið er staðsett.

Gist er á 5 stjörnu lúxus hóteli á Zansibar, Riu Jambo, hægt að skoða hér. Þar sem ALLT er INNIFALIÐ. Hótelið býður upp á allskyns frítt sjósport og skemmtidagskrá alla daga. Hótelið er staðsett á Nuwunga ströndinni sem er á norðurhluta eyjunnar þar sem fallegustu og hreinustu strendurnar eru. 

Hápunktur ferðarinnar:

 

  • Tarangire þjóðgarðuinn

  • Villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi

  • Ngorongoro náttúruverndarsvæði sem er á heimslista UNESCO

  • Massai ættbálkurinn

  • Zansibar 

Greiða þarf staðfestingargjald  til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er  kr. 100.000 og er óendurkræft. Greiða þarf ferðina fyrir 7. desember.. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Lámarksfjöldi 12, hámark 18

Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir

Verð: 799.900 kr*  

*miðað við tvíbýli, aukakostnaður fyrir einbýli er 80.000 kr

Innifalið í verði:

  • Flug til Tansaníu

  • Akstur til og frá flugvelli að hóteli í Arusha og Zansibar

  • Þjóðgarðsgjöld fyrir safarí ferðir

  • Flug til Zansibar

  • Gisting á 5 stjörnu hóteli í Arhusa: 3 nætur með morgunmat

  • Gisting á 4 stjörnu hóteli í safarí: 2 nætur með morgunmat

  • Gisting á 5 stjörnu lúxus hóteli á Zansibar: 5 nætur þar sem allt er innifalið, allur matur,  drykkir og sjósport

  • Akstur og leiðsögn í safarí ferð á opnum 4x4 sérútbúnum jeppum

Ekki innifalið í verði:

  • Forfallatrygging

  • Farangurs-, ferða og slysatrygging

  • Vegabréfsáritun til Tansaníu

  • Þjórfé

  • Hádegis- og kvöldmatur í Arusha

  • Kvöldmatur á hóteli í safarí

  • Leigubílar á Zansibar

  • Skoðunarferðir á Zansibar

 

Dagskrá:

Dagur 1. Föstudagur 07. febrúar 2025

Ferðadagur, flug frá Íslandi til Tansaníu

Dagur 2. Laugardagur 08. febrúar 2025

Velkomin til Tansaníu. Ævintýrið byrjar í Arusha, akstur á hótel og frjáls tími. Upplýsingafundur með fararstjórum ferðarinnar kl. 18. 

Innifalið: akstur, hótelgisting, morgunmatur

Dagur 3. Sunnudagur 09. febrúar 2025

Eftir morgunverð á hótelinu pökkum við saman farangrinum okkar. Keyrum í Tarangire þjóðgarðinn á opnum 4x4 sérútbúnum safarí jeppum. Í þjóðgarðinum upplifum við hið magnaða villta dýralíf. Eftir daginn keyrum við á hótel í Karatu 2 nætur.

Innifalið: gisting á hóteli, morgun- og hádegismatur. Leiðsögn og akstur

Dagur 4. Mánudagur 10. febrúar 2025

Eftir morgunverð á hótelinu keyrum við inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið sem er á heimslista UNESCO. Heimsækjum Massai ættbálkinn. Keyrum niður í Ngorongoro gíginn sem er stærsta askja heims. Skoðum villta dýralíf á svæðinu. Eftir daginn keyrum við til baka á hótel í Karatu.

Innifalið: gisting á hóteli, morgun og hádegismatur. Leiðsögn og akstur.

Dagur 5. Þriðjudagur 11. febrúar 2025

Eftir morgunverð á hótelinu pökkum við saman farangrinum okkar og höldum aftur til Arusha. Á leiðinni stoppum við í listagallerí þar sem hægt er að skoða og kaupa list af heimamönnum. Við endum þennan dag á að fara og sjá kaffirækt, beint frá bónda í bolla. Fljúgum síðan til Zansibar seinni partinn.

Innifalið: gisting á hóteli, morgun og hádegismatur. Leiðsögn, akstur og flug til Zansibar

Dagur 6. Miðvikudagur 12. febrúar 2025

Frjáls dagur. Flott að slaka á eftir safarí ferðina. Fullt af spa meðferðum í boði (greiðist sér).

Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport

Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)

Dagur 7. Fimmtudagur 13. febrúar 2025

Frjáls dagur.

Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport

Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)

Dagur 8. Föstudagur 14. febrúar 2025

Frjáls dagur. Í boði að fara á The Rock veitingastað sem er staðsettur úti á kletti í Indlandshafi.

Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport. Rúta á The Rock

Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)

Dagur 9. Laugardagur 15. febrúar 2025

Frjáls dagur. 

Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport

Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)

Dagur 10. Sunnudagur 16. febrúar 2025

Frjáls dagur til kl.12 en þá bókum við okkur út og leggjum af stað út á flugvöll, eigum flug aftur til Arusha

Innifalið: allt innifalið á hóteli á Zansibar, matur, drykkir og sjósport. Gisting á hóteli í Arusha

Dagur 11. Mánudagur 17. febrúar 2025

Ferðadagur, flug frá Tansaníu til Íslands.

Innifalið: gisting á hóteli í Arusha með morgunmat og akstur á flugvöll

Dagur 12. Þriðjudagur 18. febrúar 2025

Ísland

bottom of page