top of page
IMG_4383_edited.jpg

Dólómítarnir hjarta ítölsku Alpanna og Gardavatn - gönguferð 23 - 30. júní 2026

23. júní 2026
8 dagar
 kr 499.000

Ógleymanlega ferð um fallegustu svæði Dólómítana, þar sem stórbrotin náttúrufegurð sameinar fjallaskörð, dali og ævintýraleg þorp í óviðjafnanlegri upplifun. Dólómítarnir, sem eru hluti af ítölsku Ölpunum, eru þekktir fyrir sína tignarlegu klettatinda sem rísa hátt eins og virkisveggir og skapa ótrúlega sjón í öllum sínum dýrð.

Í þessari ferð heimsækjum við helstu kennileiti Dólómítana og njótum ótal gönguleiða sem henta bæði byrjendum og lengra komnum. Hver leið opnar dyr að ógleymanlegu útsýni yfir grænblá vötn, blómleg engi og háreista tinda sem teygja sig upp í himininn.

Þessi ferð er fullkomin fyrir þau sem vilja njóta einstakra gönguleiða sem eru ekki of krefjandi, en bjóða upp á stórkostlegt útsýni.

Í lok ferðar er farið á glæsilegt hótel við Gardavatnið. Hótelið er með spa, líkamsrækt, sundlaugum, framúrskarandi veitingastöðum og einstöku umhverfi þar sem fjallgarðar umlykja vatnið.​

 

Gisting er 3 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Ortisei með spa, í tvíbýli með morgunmat

Gisting er 2 nætur á 3ja stjörnu hóteli í Dobbiach með spa, í tvíbýli með morgunmat

Gisting er 2 nætur á 4ra stjörnu hóteli við Gardavatn með spa, í tvíbýli með morgunmat

 ​​

Láttu drauminn um Dólómítana rætast – komdu með okkur í þessa óviðjafnanlegu lúxusferð þar sem náttúrufegurð, afþreying og slökun sameinast í eina einstaka upplifun.

Hápunktur ferðarinnar:

  • Val Gardena svæðið

  • Stærsta háfjallaslétta Evrópu, Alpe di Siusi

  • Sassolungo 3.181, eitt af frægustu fjöllum Suður Týról

  • Cinque Torri, eitt helsta kennileiti Cortina

  • Úti stríðssafn frá fyrri heimstyrjöldinni

  • Tre Cime, helsta kennileiti Dólómítana

  • Lake Braise

  • Gardavatn

Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 49.000 kr. Lokagreiðsla þarf að greiða fyrir 23.4 2026. Hægt að skipta greiðslum niður. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Lágmarksfjöldi 16, hámark 24

Fararstjórn: Gunnar Ingi Halldórsson og Hafrún Dögg Hilmarsdóttir

Verð:  499.000kr​ * *miðað við tvíbýli

aukagjald vegna einbýli er 99.000 kr

Innifalið í verði:

  • Undirbúningsfundur

  • Flug með Icelandair til Feneyja

  • 1x 10 kg handfarangur og 1x 23 kg innrituð taska 

  • Akstur til og frá flugvelli að hóteli með einkarútu

  • Akstur á milli hótela og upphafsstað göngu með einkarútu

  • Strætó í Ortisei

  • Aðgangur í alla kláfa

  • Gisting í 3 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Ortisei með morgunmat

  • Gisting í 2 nætur á 3ja stjörnu hóteli í Dobbiach með morgunmat

  • Gisting í 2 nætur á 4ra stjörnu hóteli við Gardavatn með morgunmat

  • Aðgangur að spa og sundlaugum á hóteli

  • 2 fararstjórar

Ekki innifalið í verði:

  • Ferða-, slysa- og farangurstrygging

  • Forfallatrygging

  • Hádegismatur, nesti, snarl og kvöldmatur

  • Drykkir

  • Þjórfé 

Dagskrá

Dagur 1. Þriðjudagur 23. júní. Ferðadagur

Morgunflug til Feneyja kl.8.20. Akstur til Ortisei Ítalíu með einkarútu. Frjáls dagur

Innifalið: Akstur og gisting á hóteli með morgunmat

Dagur 2. Miðvikudagur 24. júní. Alpe di Siusi

Eftir morgunmat tökum við kláf upp á slétturnar. Göngum hring um þessa stærstu háfjallasléttu Evrópu sem býður upp á einstakt útsýni yfir fjallgarða og eitt frægasta fjall Suður Týról, Sassolungo. Tökum hádegismat í fjallaskála á svæðinu. Eftir gönguna er möguleiki á að taka kláfa upp í Secda og skoða sig þar um. Einungis 15 mín gangur á milli kláfa.

Gönguvegalengd: 12 km

Göngnuhækkun: 400 metrar hækkun

Göngutími: 5-7 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat og leiðsögn

Dagur 3. Fimmtudagur 25. júní. Sassolungo

Eftir morgunmat tökum við strætó upp í Passo Sella 2.218 metra. Göngum upp í skrað á einu af frægasta fjalli Suður Týról, Sassolungo. Einstaklega falleg gönguleið með stórbrotnu útsýni yfir nálægt svæði og stærstu háfjallasléttu Evrópu Alpe di Siusi. Tökum hádegismat í fjallaskála á svæðinu.

Gönguvegalend: 13 km

Gönguhækkun: 1000 m

Göngutími: 8 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, strætó og leiðsögn

Dagur 4. Föstudagur 26. júní. Cinque Torri

Eftir morgunmat pökkum við saman og keyrum á næsta svæði. Göngum hring um Cinque Torri sem er eitt helsta kennileiti Cortina. En Vetrarólympíuleikarnir verða haldnir þar 2026. Við göngum hring um úti stríðssafn frá fyrri heimstyrjöldinni sem er staðsett við Cinque Torri turnana. Við tökum hádegismat í fjallaskála á svæðinu. Eftir gönguna er akstur til Dobbiach þar sem við tékkum okkur inn á hótel

Gönguvegalengd: 9 km

Gönguhækkun: 400 m

Göngutími: 5-6 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, akstur og leiðsögn
 

Dagur 5. Laugardagur 27. júní. Tre Cime

Eftir morgunmat er akstur upp í 2.333 m þar sem gangan byrjar við Auronzo skálann. Við göngum hring um þessa einstöku turna og tökum hádegismat Locatelli fjallaskálanum þar sem útsýnið er stórkostlegt. Ein fallega gangan um Dólómítana að okkar mati.

Gönguvegalengd: 12 km

Gönguhækkun: 500 m

Göngutími: 6 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat og leiðsögn

Dagur 6. Sunnudagur 28. júní. Lake Braise - Gardavatnið

Eftir morgunmat pökkum við saman og tékkum okkur út af hótelinu. Akstur að Lake Braise, stutt ganga um þetta himneska vatn. Að lokinni göngu er akstur á Gardavatn þar sem við tékkum okkur inn á glæsilegt hótel í Riva del Garda.​​

Gönguvegalengd: 5 km

Gönguhækkun: 50 m 

Göngutími: 2 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, akstur og leiðsögn

Dagur 7. Mánudagur 29. júní. Frjáls dagur við Gardavatnið

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat

Dagur 8. Þriðjudagur 30. júní. Ferðadagur

Akstur á flugvöll í Feneyjum. Flug kl. 16.10 til Íslands

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat og akstur

bottom of page