
Sérferðir
Dreymir þig um ferð sem er sniðin að þínum óskum? Ferðasetrið býður upp á sérferðir til Tansaníu, Perú og Nepal þar sem þú velur sjálf/ur hvenær þú ferð, hversu lengi ferðin stendur og hvað þú vilt upplifa.
Í Tansaníu getum við skipulagt allt frá safaríferðum og slökun á Sansibar til gönguferða á Kilimanjaro og Mt. Meru. Í Perú bjóðum við upp á einstakar upplifanir á borð við Machu Picchu, Inkaslóðirnar og Regnbogafjallið. Í Nepal bíða ævintýri við rætur Himalajafjalla með fjölbreyttum gönguleiðum og stórbrotinni náttúru.
Lágmarksfjöldi er aðeins tveir þátttakendur og þú ræður sjálf/ur tímasetningu, lengd og áherslum ferðarinnar. Við sjáum um skipulagið frá upphafi til enda í samstarfi við trausta staðbundna samstarfsaðila okkar, þannig að þú getur notið ferðalagsins áhyggjulaus.
Sérsniðnar ferðir fyrir tvo eða fleiri – á þínum forsendum, á þínum tíma.


