
Madeira og Porto Santo - Páskar 2027 „Gönguferð fyrir þá sem vilja ganga – en jafn góð ferð fyrir maka eða vini sem vilja ekki ganga.“
-
Tímbabil: 23. mars 2027
-
Lengd: 11 dagar
-
Verð frá: 499.000kr
Velkomin í 10 daga lúxusferð til Madeira, einnar vinsælustu og fallegustu eyju Evrópu. Madeira er sannkölluð perla Atlantshafsins þar sem stórbrotin náttúra, milt loftslag, menning, afslöppun og útivist mynda einstaka heild.
Í þessari ferð sameinum við fallegar gönguferðir, afslöppun og menningarupplifun með heimsókn til hinnar friðsælu Porto Santo. Þar njótum við gullinnar sandstrandar sem teygir sig um alla eyjuna og förum í skemmtilega hjólaferð um nokkra af fallegustu og minna þekktu stöðum eyjarinnar. Að lokinni hjólaferð er fátt betra en að skella sér í sjóinn og njóta strandarinnar sem Porto Santo er þekkt fyrir. Hjólaferðin er valkvæð og því geta þátttakendur auðveldlega notið dagsins á sinn hátt, hvort sem það er á hjóli, í göngutúr um eyjuna eða við afslöppun á ströndinni.
Gist verður á glæsilegu 5 stjörnu hóteli þar sem allt er innifalið – morgunverður, hádegisverður, kvöldverður, drykkir og áfengir drykkir. Markmiðið er að þátttakendur geti notið frísins til fulls án þess að þurfa að hafa áhyggjur af neinu.
Gönguleiðir ferðarinnar eru sérvaldar af leiðsögumönnum Ferðasetursins og liggja um nokkur af stórbrotnustu svæðum Madeira. Við göngum um tignarlega fjallatinda, fallegar strandlengjur og einstaka náttúru sem hefur gert eyjuna að einum vinsælasta útivistaráfangastað Evrópu. Göngurnar eru þó alfarið valkvæðar og engin skylda að taka þátt. Þessi ferð hentar því ekki síður þeim sem vilja njóta afslappandi frís, góðs matar, menningar og þæginda án þess að ganga.
Auk gönguferðanna förum við í stórkostlega skoðunarferð um eyjuna með einkarútu þar sem við heimsækjum helstu náttúruperlur Madeira, falleg strandþorp, stórfenglega útsýnisstaði og aðra staði sem gera eyjuna svo einstaka. Þannig fá allir tækifæri til að upplifa það besta sem Madeira hefur upp á að bjóða, hvort sem þeir kjósa að ganga, hjóla, skoða sig um eða einfaldlega slaka á.
Madeira er þekkt fyrir gróskumikla náttúru, háa kletta, stórbrotna fjallatinda og einstakt útsýni yfir Atlantshafið. Höfuðborgin Funchal býður upp á líflega menningu, sögu, notaleg kaffihús og framúrskarandi veitingastaði þar sem hið gamla og nýja mætast á heillandi hátt.
Ferðasetrið hefur farið með hópa til Madeira undanfarin ár og byggir dagskrá ferðarinnar á reynslu af því sem þátttakendur hafa notið mest. Gönguleiðir, skoðunarferðir, hótel og upplifanir hafa verið vandlega valin til að skapa ferð þar sem ævintýri, afslöppun og þægindi fara saman á einstakan hátt.
Þetta er ferð fyrir þá sem vilja upplifa það besta sem Madeira hefur upp á að bjóða – hvort sem það er á fallegum gönguleiðum, á hjóli um Porto Santo, í skoðunarferð um eyjuna eða með drykk í hönd við sundlaugina. Allt innifalið, glæsilegt 5 stjörnu hótel, sérvaldar gönguleiðir, hjólaferð um Porto Santo, góður matur og drykkir – ferð þar sem allir geta notið Madeira á sínum eigin forsendum.
Riu Hótel:
-
Allt innifalið í mat
-
Allir drykkir: Vatn, áfengir drykkir, óáfengir drykkir, gos og kaffi (drykkir í boði 24 klst á sólarhring)
-
Skemmtidagskrá 6 daga vikunnar
-
Ræktarsalur
-
Gufubað
-
Tennisvöllur
-
Tvær útisundlaugar og einn er upphituð yfir vetrartímann
-
Innisundlaug upphituð
-
Frítt wifi
-
Spa og nudd gegn gjaldi
-
Frí rúta til Funchal (tekur c.a 10 mín)
-
10 km frá flugvelli
-
13 km frá Funchal höfuðborginni
-
2 km í næsta bæ
-
50 m í strætóstöð
-
10 m að sjó
Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 59.000 kr sem er óendurkræft. Lokagreiðsla 450.000 þarf að greiða fyrir 23. janúar 2027. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is
Lágmarksfjöldi 20, hámark 28
Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson
Verð: 499.000 kr*
*miðað við tvíbýlí, aukagjald vegna einbýli er 99.000 kr
Innifalið í verði:
-
Flug
-
1x 23 kg innrituð taska
-
1x 10 kg handfarangur
-
Akstur til og frá flugvelli að hóteli
-
Gisting í 9 nætur á fimm stjörnu lúxushóteli þar sem allt er innifalið í mat og drykk
-
9 morgunverðir
-
9 hádegisverðir
-
9 kvöldverðir
-
4 gönguferðir með leiðsögn og akstri
-
Aðgangseyrir fyrir gönguferðir
-
Skoðunarferð um eyjuna í einkarútu
-
Leiðsögn á Porto Santo
-
2 fararstjórar
Ekki innifalið í verði:
-
Ferða-, slysa- og farangurstrygging
-
Forfallatrygging
-
Þjórfé
-
Aðgangseyrir í ferju og leiga á hjóli (val um að fara í hjólaferð til Porto Santo)
-
Annar matur sem er ekki talin upp í dagskrá
Ferðaáætlun: Madeira 2027
Dagur 1. Þriðjudagur 23. mars. Ferðadagur
Flug frá Íslandi til Madeira með Icelandair kl.8.30
Dagur 2. Miðvikudagur 24. mars. Frjáls dagur
Frjáls dagur á Madeira. Tilvalið að skella sér til Funchal með rútunni frá hótelinu og skoða þennan fallega bæ
Dagur 3. Fimmtudagur 25. mars (Skírdagur). Gönguferð Porto da Crus til Machico
Eftir morgunmat ökum við að upphafsstað göngunnar. Fram undan er ein fallegasta og fjölbreyttasta gönguleið austan megin á Madeira, frá Porto da Cruz til Machico.
Leiðin fylgir gamla veginum sem áður tengdi þessi tvö þorp áður en nútíma vegakerfi tók við. Gengið er um grónar hlíðar, eftir gömlum steinlögðum stígum og um landslag sem einkennist af stórbrotnu samspili hafs og fjalla.
Gönguferðin hefst í hinu heillandi sjávarþorpi Porto da Cruz, sem er þekkt fyrir svarta sandströnd sína og hefðbundna rommframleiðslu. Þaðan liggur leiðin upp um grænar fjallshlíðar þar sem sífellt opnast nýtt og víðáttumeira útsýni yfir norðurströnd Madeira og til Machico-dalsins í suðri.
Göngunni lýkur í Machico, einu elsta byggða svæði eyjarinnar og þeim stað þar sem portúgalskir landkönnuðir komu fyrst að landi árið 1419. Þar gefst tækifæri til að njóta stemningarinnar áður en haldið er til baka á hótelið.
Vegalengd: 15 km
Hækkun: 450 metrar
Göngutími: 5-6 klst.
Dagur 4. Föstudagur 26. mars (Föstudagurinn langi). Skoðunarferð
Eftir morgunmat er í boði að fara í skoðunarferð á einkarútu um vesturhluta Madeira, þar sem við upplifum nokkra af fallegustu og sérstæðustu stöðum eyjarinnar.
Fyrsti viðkomustaður dagsins er hinn töfrandi Fanal-skógur, hluti af UNESCO-vernduðum laurissilva-regnskógi Madeira. Þar má finna aldagömul, mosavaxin tré sem skapa einstaka og dulúðlega stemningu. Fanal er sannkölluð náttúruperla og tilvalinn staður til að rölta um og njóta kyrrðarinnar.
Þaðan höldum við að Porto Moniz, sem er þekkt fyrir einstakar náttúrulegar sjólaugar sínar sem myndast hafa í hrauni við ströndina. Hér gefst kostur á að synda í tærum Atlantshafssjónum á meðan stórbrotið útsýni yfir hafið og klettótta strandlengjuna nýtur sín til fulls.
Næst heimsækjum við hinn fallega strandbæ Seixal, þar sem svört sandströnd, grænar fjallshlíðar og fossar sem falla niður að sjó skapa einstaka umgjörð. Hér gefst tími til að njóta umhverfisins, taka myndir eða setjast niður yfir kaffibolla með útsýni yfir Atlantshafið.
Á leiðinni stoppum við einnig við Cabo Girão, einn hæsta sjávarhamar Evrópu. Þar göngum við út á frægan glerpall sem svífur hátt yfir klettabrúninni og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir suðurströnd Madeira, hafið og ræktunarsvæðin langt fyrir neðan.
Dagurinn býður upp á stórbrotna náttúru, falleg þorp, einstakt útsýni og ógleymanlega upplifun af fjölbreytileika Madeira áður en haldið er aftur á hótelið síðdegis.
Dagur 5. Laugardagur 27. mars. Ponta de Sao Lourenco
Eftir ríkulegan morgunverð á hótelinu ökum við að upphafsstað göngunnar við Ponta de São Lourenço, austasta odda Madeira. Hér tekur við ein sérstæðasta gönguleið eyjarinnar þar sem landslagið er gjörólíkt því sem flestir tengja við Madeira. Í stað grænna skóga og fossa blasir við hrjúft og litríkt berglandslag, mótað af vindi og hafi í þúsundir ára.
Gengið er eftir vel merktum stíg sem liðast um kletta og hryggi með stórbrotnu útsýni yfir Atlantshafið á báðar hendur. Á leiðinni njótum við rauðra, gylltra og brúnleitra bergmynda sem skapa einstaka litasamsetningu og gera svæðið að einu myndrænasta landslagi Madeira. Víða eru útsýnisstaðir þar sem gefst tækifæri til að staldra við og njóta víðáttunnar og krafts hafsins sem brýtur sér leið að ströndinni.
Fyrir þá sem vilja bæta við smá áskorun er hægt að ganga upp á Pico do Furado, þaðan sem útsýnið yfir klettana, hafið og austurenda eyjarinnar er sannarlega ógleymanlegt.
Að göngu lokinni gefst þeim sem vilja kostur á að kæla sig niður með hressandi sjósundi áður en haldið er aftur á hótelið.
Vegalengd: 8,5 km
Hækkun: 650 m
Göngutími: 5–6 klst.
Dagur 6. Sunnudagur 28. mars. Páskasunnudagur. Frjáls dagur
Frjáls dagur á Madeira. Tilvalið að slaka á hótelinu og njóta alls þess sem það hefur upp á að bjóða.
Dagur 7. Mánudagur 29. mars. Pico Ruico 1.862 metrar
Eftir morgunmat ökum við upp í fjöllin að Pico do Arieiro, þriðja hæsta tindi Madeira í 1.818 metra hæð. Þar hefst ein magnaðasta og þekktasta gönguleið eyjarinnar, leiðin milli Pico do Arieiro og Pico Ruivo, hæsta tinds Madeira í 1.862 metra hæð.
Gönguleiðin liggur um stórbrotið fjallalandslag þar sem stígar, göng og tröppur hafa verið höggvin inn í klettana. Á leiðinni opnast sífellt ný og stórfengleg útsýni yfir tinda, dali og skýjahafið langt fyrir neðan. Þetta er sannkölluð ævintýraganga þar sem hrikaleg náttúrufegurð Madeira nýtur sín til fulls.
Leiðin krefst ágæts gönguþols þar sem nokkrar brattar brekkur og löng tröppukaflar eru á leiðinni. Verðlaunin eru þó einstök upplifun á einu glæsilegasta fjallasvæði Atlantshafsins. Á toppi Pico Ruivo bíður okkur stórbrotið 360 gráðu útsýni yfir eyjuna áður en haldið er niður af fjallinu og aftur til baka.
Þessi dagur er án efa einn af hápunktum ferðarinnar fyrir þá sem vilja upplifa hið stórbrotna fjallalandslag Madeira af eigin raun.
Vegalengd: 12 km
Hækkun: 1.000 m
Göngutími: 6–7 klst
Dagur 8. Þriðjudagur 30. mars. Porto Santo - Stranda- og hjólaferð*
Við byrjum daginn snemma til að ná ferjunni yfir til Porto Santo, hinnar friðsælu nágrannaeyju Madeira. Eftir morgunmat ökum við niður á höfn þar sem ferjan bíður okkar og fram undan er falleg sigling yfir Atlantshafið.
Við komuna til Porto Santo og leigjum okkur rafmagnshjól og leggjum af stað í skemmtilega hjólaferð um eyjuna. Porto Santo er gjörólík Madeira; hér taka við víðáttumiklar gullnar sandstrendur, hrjóstrugt en fallegt landslag og rólegt andrúmsloft sem gerir eyjuna einstaka.
Á leiðinni hjólum við um falleg þorp, meðfram strandlengjunni og upp á útsýnisstaði þar sem útsýnið yfir Atlantshafið og nærliggjandi eyjar er stórkostlegt. Við heimsækjum einnig nokkra minna þekkta staði sem ferðamenn fara sjaldan á og fáum þannig að kynnast Porto Santo frá annarri og persónulegri hlið.
Dagurinn býður upp á blöndu af fallegum hjólaleiðum, stórbrotnu útsýni, áhugaverðri sögu og einstöku eyjalífi ásamt strandaferð. Eftir eftirminnilegan dag á Porto Santo tökum við ferjuna aftur til Madeira um kl.21.30.
A.T.H það er einnig hægt að koma með í ferð á þessa eyjun, ganga um og njóta þess að vera á ströndinni og sleppa því að hjóla. Við tökum ferjuna kl.8, siglingin tekur um 2,5 klst og erum við að koma til Porto Santo kl.10.30. Við tökum síðan ferjuna aftur til baka kl.19 og erum komin aftur til Funchal kl.21.30.
Frekar auðveldar hjólaleiðir og ekki mikið um brekkur.
*Greiða þarf aukalega fyrir aðgangseyrir í ferjuna, leigu á hjóli og hádegis- og kvöldmat þennan daginn.
Dagur 8. Þriðjudagur 30. mars. Frjáls dagur
Frjáls dagur á Madeira
Dagur 10. Fimmtudagur 1. apríl. Ferðadagur
Flug til Íslans kl.9.30













