
Fjallasæla haust 2026 - Hengilsvæði og nágrenni
Fjallasæla - gönguhópur ætlaður fólki sem vill njóta en ekki þjóta og hafa gaman á fjöllum!
Haustið 2026 þá ætlar hópurinn að ganga um Hengilsvæðið og nágrenni. Á svæðinu er flest sem prýðir íslenska náttúru: Áhugavert landslag, hvera- og gígasvæði, fjölbreytt gróðurfar, ár og stöðuvötn. Hengilsvæðið er meðal stærstu háhitasvæða á Íslandi og tengist þremur eldst
Fjallasæla gönguhópur fyrir þau sem vilja gera útivist að lífsstíl og halda sér í góðu fjallgönguformi. Markmiðið er að njóta íslenskrar náttúru, upplifa fjallasæluna í góðum félagsskap og kynnast nýjum, fjölbreyttum gönguleiðum víðs vegar um landið.
Hópurinn er ætlaður fólki sem hefur reynslu af fjallgöngum og er í ágætis formi.
Við göngum annan hvern miðvikudag og annan hvern laugardag í sömu viku – og tökum frí hina vikuna.
Fjallasæla sameinar áskorun, samveru og náttúrufegurð – því það er fátt sem gleður eins og dagur á fjöllum í góðum hópi.
Gengið er annan hvern miðvikudaga og annan hvern laugardag í sömu viku og frí hina. Miðvikudagsgöngurnar byrja kl.18 og helgargöngunar kl.9/10. Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað göngu en það er alltaf í boðið að keyra í samfloti og sameinast í bíla. Alls eru þetta 13 göngur og ein helgarferð: 7 miðvikudagsgöngur, 6 laugardagsgöngur og helgarferð.
Fyrsta ganga hópsins er kynningarganga miðvikudaginn 26. ágúst kl.18, hægt að sjá viðburð hér. Síðan byrjar verkefnið á helgarferð í Landmannahellir helgina 28-30. ágúst
Fjallasæluhópurinn okkar fer einnig í jöklaferðir og ferðir erlendis, það eru ferðir sem eru auglýstar einungis fyrir hópinn með afslætti.
Gönguhópurinn er með FB hóp en tölvupóstur verður sendur á þátttakendur á mánudegi fyrir miðvikudagsgöngunar og á fimmtudegi fyrir laugardagsgöngunar. Ef veðrið er ekki hagstætt á laugardegi þá kemur til greina að færa gönguna yfir á sunnudag eða helgina þar á eftir eða breyta um staðsetningu. Við veljum svæði/fjöll eftir veðri. Þau fjöll sem koma til greina þessa önnina verða:
Miðvikudagsgöngur: Jórutindur, Hátindur, Litli Meitill, Stóri Meitill, Eldborgargígar, Reykjafell, Sköflungur, Skálafell, Bjarnafell, Blákollur, Skarðsmýrarfjall, Gráuhnúkar og Stakihnúkur, Þrengslahnúkur og Lágaskarðshnúkur
Laugardagsgöngur: 9 tindar Jósepsdal, Hróðmundartindur, Tjarnahnúkur og Lakahnúkur, Marardalur, Vörðuskeggi, Ingólfsfjall frá Hvammi, Reykjafjall, Botnahnúkar og Álútur, Grændalur, Kyllisfell, Kattartjarnir og Dalafell, Stóra Sandfell
Helgarferð 28-30. ágúst 2026. Landmannahellir: Loðmundur, Herbjarnarfell og Laufdalaeggjar
Opin kynningarganga 26. ágúst kl.18. Hægt að sjá viðburð hér
Dagsetningar:
Ágúst: 26 og helgarferð 28-30*
September: Miðvikudagurinn 9 og 23. Laugardagurinn 12 og 26
Október: Miðvikudagurinn 7 og 21. Laugardagurinn 10 og 24
Nóvember: Miðvikudagurinn 4 og 18. Laugardagurinn 7 og 21(loka helgarganga hópsins og þá förum við á jólahlaðborð eftir gönguna)**
Desember: Miðvikudagurinn 2
Verð: 69.900
15% afsláttur er veittur af seinna gjaldinu fyrir fjölskyldumeðlim með lögheimili á sama stað
15% afsláttur er veittur til elli- og örorkulífeyrisþega
*Gisting greiðist sér
**Jólahlaðborð greiðist sér
Hægt að skipta greiðslum vaxtalaust í 3 mánuði. Flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði
Skráning með því að senda fullt nafn og kennitölu hér. Eftir skráningu þá kemur krafa í netbankann sem þarf að greiða fyrir 28. ágúst 2026
Fararstjórn: Edith Gunnars og aðrir fararstjórar Ferðasetursins









