top of page
Animal-Family_1480282913-scaled (1).jpg

Tansanía: Lúxus safaríferð
Frá Serengeti til Sansibar

3. febrúar 2027
15 dagar
frá 790.000 kr
Uppselt

Uppselt er í ferðina!

Ógleymanlegt ævintýri í hjarta Austur Afríku

Hvað ef þú gætir upplifað Afríku eins og heimamanneskja – en með öryggi og skipulagi sem Íslendingar treysta? Við hjá Ferðasetrinu bjóðum þér í einstaka tveggja vikna ferð þar sem þú færð bæði óspillta náttúru safarísléttanna og hvítar strendur Sansíbar – fullkomna blöndu ævintýra og slökunar.

Við byrjum ferðina á menningunni í hjarta Arusha með einstakri upplifun. Við hefjum daginn á skoðunarferð um miðbæinn þar sem þú færð innsýn í daglegt líf heimamanna og heimsækir líflegan markað fullan af litum, ilmi og stemmingu.

Að því loknu höldum við í sérstaka upplifun sem nefnist „frá bónda í bolla“. Þar heimsækjum við 100% lífræna kaffirækt og kynnumst öllu ferlinu – allt frá ræktun baunanna til þess, þegar kaffi er borið fram í bolla. Þú færð að sjálfsögðu að smakka ferskt, ilmandi kaffi beint frá upprunanum. Ferðinni lýkur með ljúffengum hádegisverði að hætti heimamanna.

Næst stígur þú inn í eina mögnuðustu náttúruheimsklukku heimsins – Serengeti þjóðgarðinn. Upplifðu „The Great Migration“ – stærstu og tilkomumestu dýraflutninga jarðar, þar sem milljónir villidýra, sebrahesta og antilópa fara í gegnum lífshættulega en stórbrotna ferð í leit að fersku vatni og grænum beitilöndum. Þar rennur tímalaus fegurð yfir endalausar gresjur, þar sem ljónin ráða ríkjum, fílar þramma um með reisn og gasellur dansa í þúsundatali. Fáðu að sjá „The Big Five“ í sínu náttúrulega umhverfi.

Við heimsækjum hið sögufræga Olduvai gil, eitt mikilvægasta fornleifasvæði heims. Þessi djúpi dalur í norðurhluta Tansaníu er stundum kallaður vagga mannkynsins, því þar hafa fundist elstu mannvistarleifar sem nokkru sinni hafa komið í ljós. Í gilinu hafa fornleifafræðingar fundið steinverkfæri og beinleifar sem eru yfir 1,8 milljón ára gamlar,  sem varpa ljósi á uppruna og þróun mannsins. Olduvai Gorge – þar sem saga mannkynsins byrjar.

Við förum einnig í Ngorongoro, sem er eitt af mögnuðustu náttúruundrum Afríku og á heimsminjaskrá UNESCO. Askjan sem myndaðist þegar risavaxið eldfjall hrundi fyrir þúsundum ára, er í dag heimili ótrúlega fjölbreytts dýralífs innan lokaðs vistkerfis. Innan öskjunar er að finna eitt þéttasta safarísvæði heims þar sem þú getur séð „stóru fimm“ – ljón, hlébarða, fíla, nashyrninga og buffala – allt á einum degi. Græn sléttlendi, vötn og skóglendi skapa fullkomnar aðstæður fyrir dýrin og gera hverja ferð einstaka. Útsýnið niður í öskjuna er einfaldlega stórkostlegt – víðáttan, litirnir og dýralífið skapa upplifun sem margir lýsa sem einni af hápunktum ferðar til Tansaníu.

Ngorongoro náttúruverndarsvæði er einnig heimkynni Maasai ættbálksins þar sem þú kynnist einstökum menningarheim þessa fólks. Þau lifa í sátt við náttúruna og halda í aldagamlar hefðir. Það bætir við menningarlegri dýpt og gerir heimsóknina enn eftirminnilegri.

Við leggjum einnig leið okkar til Massai ættbálksins, þar sem þú kynnist einstökum menningarheimi þessa fólks. ​Þau lifa í sátt við náttúruna og halda í aldagamlar hefðir. Heimaeimamenn taka á móti þér með hlýju og leyfa þér að skyggnast inn í daglegt líf sitt. Þú færð að fræðast um siði, klæðnað, dans og lifnaðarhætti þeirra og upplifa menningu sem er djúpt tengd náttúrunni. Að lokinni heimsókn í þorpið höldum við áfram í listasafn þar sem afrísk list og handverk fá að njóta sín. Þar gefst þér kostur á að skoða fjölbreytt listaverk, allt frá hefðbundnum skúlptúrum til nútímalegrar listsköpunar, og kynnast sögunum sem liggja að baki hverju verki.

​​​​

Ferðin endar á paradísareyjunni Sansibar, þar sem draumurinn um fullkomna slökun verður að veruleika. Þar eru hvítar strendur, glitrandi fagurblár sjór og suðrænir vindar sem umlykja þig. Auk þess er Sansibar rík af menningu og sögu, með litríka markaði, dásamlega matargerð og einstakt andrúmsloft. Þar bjóðum við upp á einstaka dvöl á lúxus hóteli þar sem allt er innifalið fyrir fullkomið frí. Hótelið er staðsett á hinni heimsþekktu Nungwi-strönd, sem er á norðurhluta eyjunnar og þekkt fyrir einstaklega fallegar og hreinar strendur með glitrandi hvítum sandi og tærum, fagurbláum sjó. Hótelið býður upp á fjölbreytta upplifun, þar sem ókeypis sjósport og spennandi skemmtidagskrá eru í boði alla daga. Hvort sem þig langar að prófa paddle board, snorkla í tærum sjónum eða einfaldlega slaka á í sólbaði við ströndina, þá er allt til staðar til að gera dvölina ógleymanlega. Útsýni yfir hafið, framúrskarandi veitingastaðir og fjölbreyttir barir skapa fullkomna umgjörð fyrir draumafríið.

Ef þig langar í spennandi afþreyingu er hægt að sigla um kristalbláan sjóinn, fara í para-gliding og njóta útsýnisins yfir eyjuna eða ríða á hestbaki með hafið í bakgrunni. Sansibar býður einnig upp á menningar- og náttúruskoðunarferðir sem eru ekki síður heillandi. Í höfuðstaðnum Stone Town, sem er skráður á heimsminjaskrá UNESCO, geturðu kynnst ríkri sögu eyjunnar. Skoðaðu hin heillandi þröngu stræti, heimsæktu Freddie Mercury safnið og lærðu um tónlistargoðsögnina sem fæddist á eyjunni. Fyrir þá sem elska náttúrufegurð er fiðrildabúgarðurinn tilvalinn staður til að dást að litríku fiðrildum í þeirra náttúrulega umhverfi. Þetta er aðeins brot af því sem Sansibar hefur upp á að bjóða – frá menningu og náttúru til ótrúlegrar afþreyingar. Eyjan er sannkölluð paradís fyrir þá sem vilja blanda saman spennu, fróðleik og afslöppun í draumaferð.

Gistingin í safaríferðinni er sérhönnuð til að gera dvölina ógleymanlega. Lúxus í hjarta Serengeti. Tjaldgistingu sem þú gleymir aldrei. Í miðri víðáttunni, þar sem náttúran stjórnar og dýrin ráða för, bíður þín lúxus sem sameinar þægindi og ævintýri á óviðjafnanlegan hátt.
Við gistum í glæsilegum safarítjöldum, þar sem gamli stíllinn mætir nútímanum – með uppábúnum rúmum, sérbaðherbergi og öllu sem þú þarft til að slaka á eftir dag fullan af upplifunum. Kvöldverðurinn er borinn fram undir stjörnubjörtum himni, með fjallasýn í fjarska og hljóð náttúrunnar í kring. Morgunkaffið nýtur þú á veröndinni á meðan fyrstu geislar sólarinnar lýsa upp sléttuna – og mögulega með fíla eða sebrahesta sem gesti í fjarska.

Þú sefur til hljóða náttúrunnar, vaknar til lífsins – í fullkomnu jafnvægi við umhverfið.

Serengeti í lúxusstíl – villt, en með stjörnum. 

Karatu hótel með sál. Hér mætast þægindi, sjálfbærni og náttúrufegurð í fullkomnu jafnvægi. Þú nýtur stórbrotnu útsýnisins yfir hásléttur Tansaníu, þar sem sólin sekkur í glóðrauðan sjóndeildarhringinn og skapar óviðjafnanlega stemningu við sólsetur. Matargerðin á staðnum er byggð á sjálfbærum grunni, þar sem hráefnið er ferskt og ræktað á staðnum. Hver máltíð er dásamleg upplifun sem kitlar bragðlaukana og styður við heilbrigði og vellíðan. Gistingin leggur einnig áherslu á núvitund, þar sem þú getur slakað á og tengst umhverfinu í rólegu og fallegu umhverfi. Þetta er ekki bara gisting – þetta er upplifun sem fangar kjarna safaríævintýrisins og leyfir þér að njóta náttúrunnar til fulls.

Hótel í Arusha: https://planet-lodges.com/lodges/arusha-planet-lodge/

Tjaldgisting í Serengeti: https://planet-lodges.com/lodges/jackals-lair-camp/

Hótel í Karatu: https://heartandsoullodge.com/

Hótel á Sansibar: https://riujambo.tz-zanzibar.com/en/

​​​

Þessi ferð er ekki aðeins upplifun heldur minning sem verður með þér að eilífu. Taktu skrefið inn í heim Tansaníu: Frá Serengeti til Sansibar. Þessi ferð er fullkomin blanda af menningu, fræðslu og upplifun sem gefur þér dýpri tengingu við landið og fólkið sem þar býr.

​​​

Hápunktur ferðarinnar

  • Serengeti þjóðgarðurinn

  • Ngorongoro náttúruverndarsvæði sem er á heimslista UNESCO

  • Stærsta askja heims

  • Villt dýr í sínu náttúrlega umhverfi

  • Menning Tansaníubúa

  • Massai ættbálkurinn

  • Markaðir heimamanna

  • Listagallerí

  • Matargerð sem kitlar bragðlaukana

  • Kaffiplantekra heimamanna 100% organic

  • Frá bónda í bolla - skoðunarferð

  • Paradísareyjan Sansibar

  • Lúxusgisting á Nungwi ströndinni

​​​​​

Greiða þarf staðfestingargjald  til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er  kr. 90.000 kr og er óendurkræft. Greiða þarf lokagreiðslu 700.000 kr fyrir 3.12.2026. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Lágmarksfjöldi 6 hámark 12

Verð: 790.000 kr*  

*miðað við tvíbýli, aukakostnaður fyrir einbýli er 150.000 kr

Innifalið í verði:

  • Flug til Sansibar

  • Allur akstur

  • Akstur og leiðsögn í safaríferð á opnum 4x4 sérútbúnum jeppum

  • Aðgangur í skoðunarferðina "frá bónda til bolla"

  • Skoðunarferð um mibæ Arusha

  • Þjóðgarðsgjöld í Serengeti þjóðgarðinn

  • Aðgangur í Olduvai gilið

  • Aðgangur inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið

  • Heimsóknn í Massai þorp

  • Gisting í 3 nætur á hóteli í Arhusa

  • Gisting í 3 nætur í lúxus tjöldum í Serengeti þar sem allt er innifalið í mat og drykk

  • Gisting í 1 nótt á hóteli í Karatu í safaríferð

  • Gisting í 5 nætur á lúxus hóteli á Sansibar þar sem allt er innifalið í mat, drykk og sjósporti. 

  • Morgunmatur alla morgna

  • 9 hádegisverðir 

  • 8 kvöldverðir 

  • Allt innifalið í mat og drykk í 3 daga í Serengeti

  • Allt innifalið í mat og drykk í 5 daga á Sansibar

 

Ekki innifalið í verði:​

  • Flug til Tansaníu - Ferðasetrið aðstoðar við kaup á flugi

  • Forfallatrygging

  • Farangurs-, ferða og slysatrygging

  • Gistináttaskattur greiðist erlendis

  • Vegabréfsáritun til Tansaníu $51

  • Trygging á Sanisbar $40

  • Þjórfé

  • Annar matur sem ekki er talin upp í dagskrá

Ferðatilhögun

​​

Dagur 1. 3. febrúar – Ferðadagur

Flug til Tansaníu

 

Dagur 2. 4. febrúar – Velkomin til Tansaníu 

Við byrjum daginn rólega – komum okkur fyrir á hótelinu. Hótelið er staðsett á grónu og friðsælu svæði og býður upp á notalega sveitastemningu með einstökum stíl – þar sem þægindi, náttúra og hlýlegt andrúmsloft skapa fullkomið andrými eftir ferðalög eða fyrir komandi ævintýri.

Dagur 3.  5. febrúar– Skoðunarferð og kaffirækt

Uppgötvaðu lífið og menninguna í hjarta Arusha með einstakri upplifun. Við hefjum daginn á skoðunarferð um miðbæinn þar sem þú færð innsýn í daglegt líf heimamanna og heimsækir líflegan markað fullan af litum, ilmi og stemningu.

Að því loknu höldum við í sérstaka upplifun sem nefnist „frá bónda í bolla“. Þar heimsækjum við 100% lífræna kaffirækt og kynnumst öllu ferlinu – allt frá ræktun baunanna til þess þegar kaffi er borið fram í bollanum þínum. Þú færð að sjálfsögðu að smakka ferskt, ilmandi kaffi beint frá upprunanum.

Ferðinni lýkur með ljúffengum hádegisverði að hætti heimamanna þar sem þú færð að njóta ekta bragða úr heimabyggð.

 

Dagur 4. 6. febrúar– Serengeti þjóðgarðurinn

Eftir ljúffengan morgunmat pökkum við saman og leggjum við af stað í safarí. Við keyrum í Serengeti þjóðgarðinn en fyrsta stopp er Olduvai gilið – Vagga mannkynsins. Við heimsækjum hið sögufræga gil sem er eitt mikilvægasta fornleifasvæði heims. Þessi djúpi dalur í norðurhluta Tansaníu er stundum kallaður vagga mannkynsins, því þar hafa fundist einhver elstu mannvistarleifarnar sem nokkru sinni hafa komið í ljós. Í gílinu hafa fornleifafræðingar fundið steinverkfæri og beinleifar sem eru yfir 1,8 milljón ára gamlar – sem varpa ljósi á uppruna og þróun mannsins. Eftir frábæran dag þá keyrum við inn í Serengeti þjóðgarðinn þar sem lúxus tjaldgisting býður eftir okkur. Kvöldið endar á dásamlegum kvöldverði, þar sem ljúffengir réttir úr fersku, staðbundnu hráefni eru í forgrunni. Þetta er hinn fullkomni endir á ævintýraríkum og ógleymanlegum degi.

 

Dagur 5 og 6. 7 og 8. febrúar – Serengeti – Villta Afríka í sinni tærustu mynd!

Næstu tvo daga erum við í hjarta Serengeti, þar sem við förum í safarí og fylgjumst með dýralífinu í sínu náttúrulega umhverfi. Við ökum um víðáttumiklar sléttur og fylgjumst með dýrunum lifa sínu daglega lífi – ótrufluð og frjáls. Ljón hvíla sig í skugga, fílar þramma þöglir, sebrahestar og antilópur mynda mynstralínur á víðáttunni. Það er eitthvað töfrandi við að verða vitni að þessari óspilltu náttúru – þar sem allt er í sínu rétta samhengi og jafnvægi.

Dagur 7. 9. febrúar – Serengeti og Ngorongoro

Eftir ljúffengan morgunverð, er komið að því að pakka og kveðja þennan dásamlega stað. Við höldum áfram ferð okkar í gegnum Serengeti og áfram inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið, sem er skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta svæði er einstakt á heimsvísu og þekkt fyrir stærsta gíg í heimi, þar sem villt dýr og menn lifa saman í sátt og samlyndi – staður sem fangar bæði fegurð og kraft náttúrunnar. Við byrjum daginn á heimsókn í þorp Massai ættbálksins sem hefur varðveitt sínar fornu hefðir og kýs að lifa án allra nútímaþæginda. Hér fáum við innsýn í lífsstíl þeirra, menningu og siði sem gefur ferðinni einstakan menningarlegan blæ. Að heimsókn lokinni keyrum við niður í hið stórfenglega Ngorongoro-gíg, þar sem náttúran opinberar sig í sinni allra bestu mynd.

Þessi einstaka staður er heimili ótrúlega fjölbreytilegs dýralífs. Hér fáum við tækifæri til að sjá ljón, buffalo, sebrahesta, nashyrninga, flamingóa, hlébarða, flóðhesta og fleiri tegundir í sínu náttúrulega umhverfi. Ef heppnin er með okkur getum við jafnvel séð öll „The Big 5“ – ljón, nashyrning, fíla, hlébarða og buffala – í einni heimsókn

Eftir ævintýralega heimsókn í þjóðgarðinn keyrum við upp á hásléttur Karatu, þar sem við munum dvelja á einstöku sjálfbærnu hóteli. Þetta hótel er meira en bara gististaður – það er sannkölluð upplifun fyrir þá sem kunna að meta náttúru, sjálfbærni og þægindi. Allt hráefni sem notað er í matargerðina er ræktað á staðnum, og maturinn er í hæsta gæðaflokki, undir áhrifum „slow cooking“ þar sem áherslan er á ferskleika, bragð og gæði. Hver máltíð verður sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Þjónustan á hótelinu er persónuleg og framúrskarandi, og hver dagur endar með stórkostlegu sólsetri sem lýsir himininn með rauðum, appelsínugulum og gylltum tónum – upplifun sem fyllir hjartað friði.

Dagur 8. 10. febrúar – Sansibar

 ​Við tökum þennan dag með ró – njótum morgunverðar með stórkostlegu útsýni. Við pökkum saman og dagurinn heldur áfram í léttum og listrænum tónum þegar við heimsækjum fallegt listagallerí, þar sem við fáum innsýn í menningu, handverk og sköpunarkraft heimamanna. Litir, form og sögur blandast saman og skapa innblástur og notalega stemningu – fullkomið jafnvægi við afslappaðan morguninn.

Eftir heimsókn á listagalleríið höldum áfram ferð okkar og keyrum á flugvöllinn í Arusha og fljúgum til paradísareyjunnar Sansibar. Við lendingu bíður okkar loftkæld rúta sem keyrir okkur á norðurhluta eyjarinnar, þar sem paradís bíður með sínum hvítu ströndum og tærbláa sjónum. Þessi dagur er fullur af upplifunum sem tengja saman ævintýri, menningu og afslöppun – hinn fullkomni millikafli á leið til draumaeyju.

 

Paradísareyjan Sanzibar – Fullkomin slökun í Indlandshafi. Eftir ævintýralega safaríferð er dásamlegt að slaka á í þessu nærandi umhverfi, þar sem allt snýst um afslöppun, vellíðan og fegurð. Það er um að gera að nýta daginn til að njóta alls þess sem hótelið hefur upp á að bjóða og uppgötva þetta stórkostlega svæði. Á hótelinu er allt innifalið – matur, drykkir og fjölbreytt afþreying. Hótelgarðurinn er til fyrirmyndar, með útpældu landslagi og rólegri stemningu sem umlykur gesti. A.T.H þetta er nýtt hótel sem opnaði 2026.

​​

Dagur 9 - 12. 11 - 14. febrúar - Sansibar frjáls tími

Frjáls dagur til að njóta Sansibar. Eftir að hafa endurnært líkama og sál með slökun og hvíld er tilvalið að nýta þennan dag til að skoða allt það sem Sansibar hefur upp á að bjóða. Eyjan er ekki aðeins þekkt fyrir stórkostlegar strendur heldur líka fyrir ríka sögu og menningu – og er fæðingarstaður tónlistargoðsagnarinnar Freddie Mercury.

Hér er úrval af spennandi afþreyingu:

  • Siglingar á glitrandi hafinu, þar sem þú getur notið sjávarlofts og útsýnis.

  • Stone Town, höfuðstaður Sansibar og heimsminjaskrá UNESCO, býður upp á heillandi gönguferðir um þröng stræti, markaði og sögulega staði.

  • Freddie Mercury safnið, þar sem þú færð innsýn í líf þessa heimsfræga tónlistarmanns.

  • Prison Island, þar sem þú getur séð risaskjaldbökur og notið útsýnis yfir tæran sjó.

  • The Rock veitingarstaðurinn, einstakur staður sem stendur á kletti úti í sjónum og býður upp á dásamlega máltíð í óviðjafnanlegu umhverfi.

  • Fiðrildabúgarður, þar sem litríkar fiðrildi dansa um í gróðursælum garði.

  • Kryddskoðunarferðir, þar sem þú lærir um ræktun hinna heimsþekktu krydda eyjunnar.

  • Synda með höfrungum, einstakt tækifæri til að komast í návígi við þessi heillandi sjávarspendýr.

Þetta er aðeins hluti af því sem Sansibar hefur upp á að bjóða. Næstu daga færðu tækifæri til að kanna eyjuna á eigin forsendum, fylla hann af ævintýrum eða einfaldlega halda áfram að njóta afslöppunar í þessari paradís. Veldu þína leið – Sansibar er fullkomin blanda af hvíld og ævintýri.

​​​​

Dagur 13. 15. febrúar – Sansibar - Arusha

Eftir morgunmat er komið að kveðjustund við þessa stórkostlegu paradísareyju og við höldum út á flugvöll til að fljúga aftur til Arusha. Eftir að við lendum í Arusha förum við aftur á sama hótel og í byrjun ferðarinnar. Lokakvöldverður á hóteli í Arusha og kvöldið er tilvalið til að slaka á, endurspegla ferðalagið og pakka saman fyrir flugdaginn eftir. Þetta er góð stund til að njóta lokakaflans í ferð sem hefur verið fyllt af ævintýrum, slökun og minningum sem vara að eilífu.

​​​

Innifalið: Allt innifalið á hóteli á Sansibar, matur, drykkir og sjósport. Gisting á hóteli í Arusha með morgunmat

​​​

Dagur 14. 16. febrúar - Ferðadagur

Ferðadagur flug til Ísland

Dagur 15. 17. febrúar - Ísland

Mikilvægar upplýsingar

Bólusetningar og lyf: Mikilvægt er að hafa samband við heilsuhægslustöð varðandi bólusetningar og lyf. Einnig er hægt að hafa samband við Vinnuvernd/Ferðavernd og bóka viðtal /ráðgjöf vegna bólusetningar hægt að sjá hér:

https://www.vinnuvernd.is/en_GB/bolusetningar-ferdalog

Vegabréf: Þarf að vera í gildi 6 mánuði eftir að viðkomandi lendir í Tansaníu

Vegabréfsáritun: Sækja þarf um vegabréfsáritun til Tansaníu. Það tekur c.a 5 - 10 daga. Viðkomandi fyllir út umsókn á netinu (sér umsókn fyrir maka og börn). Með umsókn þarf að fylgja passamynd(má vera tekin á síma eða af FB), mynd af vegabréfi og flugmiði(pdf skjal). Hægt að sækja um hér:

https://visa.immigration.go.tz/

bottom of page