top of page
IMG_9566.jpg

Fararstjóri

Elinas Jackson

Elinas Jackson er fæddur og uppalinn við rætur Mt. Meru fjallsins sem er staðsett í Arusha þjóðgarðinum í Tansaníu. Hann byrjaði snemma að þvælast um óbyggðir, fjalllendi og skóga sem umkringdu hans heimaslóðir.

 

Hann fékk strax áhuga á villtu dýralífi og hæstu fjöllum landsins sem rísa upp frá sléttum Tansaníu. Ástríða hans og tenging við náttúruna  varð til þess að hann fór í nám í leiðsögn í COLLAGE OF AFRICAN WILDLIFE MANAGEMENT MWEKA. Elinas er menntaður fjallgöngu-, og safarí leiðsögumaður. Hann hefur margra ára reynslu í leiðsögn út um allan heim: Nepal, Perú, Bólivíu, Evrópu og á hæstu tinda Tansaníu: Mt. Meru og Kilimanjaro. 

 

Hann er þekktur fyrir að vera einstaklega rólegur og yfirvegaður sem kemur sér einstaklega vel í þunna loftinu. Hann hefur einnig margra ára reynslu af leiðsögn af safaríferðum og er uppfullur af visku um dýralíf landsins.

bottom of page