
Töfrar austur Afríku: Tansanía, Sansibar og Kenía
Dagsetning: 4. febrúar 2027
Lengd ferðar: 18 dagar
Verð: frá 1.190.000
Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson
Ógleymanlegt ævintýri í hjarta Austur Afríku
Þrír ólíkir áfangastaðir. Villt náttúra, rík menning og vönduð gisting alla leið.
Í þessari ferð upplifum við Austur-Afríku frá mörgum hliðum: mannlífið í Arusha, safarí í þjóðgörðum Tansaníu, kyrrðina við strendur Sansibar og síðasta safaríævintýrið í Kenía. Ferðasetrið sér um skipulagið og velur gististaði af kostgæfni, svo þú getir notið hvers dags til fulls.
Arusha – borgarlíf, kaffi og fyrsti safarídagurinn
Ferðin hefst í Arusha, heimaborg Elinasar fararstjóra. Við skoðum borgina, heimsækjum líflegan markað og fáum innsýn í daglegt líf heimamanna. Á lífrænni kaffirækt kynnumst við ferð kaffibaunarinnar frá bónda í bolla, smökkum nýlagað kaffi og njótum hádegisverðar að hætti heimamanna.
Við förum einnig í Arusha-þjóðgarðinn, þar sem gróskumiklir skógar, opin svæði og útsýni til Meru-fjalls skapa fallega byrjun á safaríferðinni. Þar má meðal annars sjá gíraffa, sebrahesta og fjölbreytt fuglalíf.
Tarangire – fílar og baobab-tré
Í Tarangire-þjóðgarðinum tekur við annað landslag. Garðurinn er þekktur fyrir stórar fílahjarðir, ævaforn baobab-tré og Tarangire-ána, sem dregur að sér dýr, einkum á þurrkatímanum. Við ökum um þjóðgarðinn og fylgjumst með dýralífinu þar sem það á heima.
Serengeti – víðáttan og villta lífið
Síðan liggur leiðin inn á sléttur Serengeti. Hér getur næsti hæðarhryggur falið ljón í grasinu, fílahjörð á ferð eða sebrahesta svo langt sem augað eygir. Engir tveir safarídagar eru eins.
Serengeti er einnig hluti af leið hinna miklu dýraflutninga, The Great Migration. Hvar hjarðirnar eru þegar við komum ræðst af árstíð og aðstæðum í náttúrunni. Það er einmitt óvissan sem gerir safarí svo spennandi.
Um kvöldið bíður okkar gisting í vönduðum safarítjöldum með uppábúnum rúmum og sérbaðherbergi. Þar njótum við þæginda í hjarta náttúrunnar, sofnum við hljóð næturinnar og vöknum þegar sólin rís yfir sléttunni.
Olduvai, Ngorongoro og menning Maasai-fólksins
Við heimsækjum Olduvai-gil, eitt mikilvægasta svæði heims í rannsóknum á þróun mannsins. Þar hafa fundist steinverkfæri og leifar sem varpa ljósi á líf forfeðra okkar fyrir milljónum ára.
Við höldum einnig niður í Ngorongoro-öskjuna, þar sem sléttur, skógar og vötn mynda einstakt heimili fyrir fjölbreytt dýralíf. Hér leitum við meðal annars að ljónum, fílum, buffölum og nashyrningum. Hvaða dýr við sjáum ræðst alltaf af náttúrunni sjálfri.
Á leið okkar kynnumst við menningu Maasai-fólksins í heimsókn þar sem heimamenn segja okkur frá daglegu lífi sínu og hefðum. Við skoðum einnig afríska list og handverk.
Sansibar – tími til að njóta
Eftir safarídagana tekur Sansibar á móti okkur með hvítum ströndum og hlýjum sjó. Við gistum á glæsilegu strandhóteli á norðurhluta eyjunnar, þar sem allt er innifalið. Hér má njóta góðs matar, slaka á við sundlaugina og gefa sér tíma til að gera nákvæmlega það sem hugurinn girnist.
Þau sem vilja skoða meira geta meðal annars farið í sjóferðir, snorklað eða heimsótt Stone Town og kynnst sögu eyjunnar. Dvölin á Sansibar er jafnt fyrir þau sem vilja ævintýri og þau sem vilja einfaldlega hvíla sig.
Kenía – síðasta safaríævintýrið
Frá Sansibar förum við til Kenía, þar sem Nairobi National Park verður lokakafli safaríferðarinnar. Þjóðgarðurinn liggur við borgarmörk Naíróbí og býður upp á óvenjulega sýn: villt dýr á sléttunni með stórborgina í fjarska. Við eigum þar heilan safarídag og leitum meðal annars að ljónum, gíröffum, sebrahestum og nashyrningum.
Ferðinni lýkur með skemmtilegri matarupplifun og ríkulegu hlaðborði. Þau sem vilja prófa eitthvað nýtt geta meðal annars smakkað krókódíl og strút.
Gistingin er hluti af ferðinni
Ferðasetrið leggur ríka áherslu á að velja gististaði sem gera ferðina enn betri. Í Arusha njótum við rólegs og fallegs umhverfis, í Serengeti gistum við í safarítjöldum með þægindum, í Karatu bíður okkar hótel með hlýlegu andrúmslofti og á Sansibar tökum við því rólega á glæsilegu strandhóteli þar sem allt er innifalið.
Þannig fylgja góðar máltíðir, notaleg kvöld og góður svefn þeim stóru upplifunum sem dagarnir færa okkur.
Hótel í Arusha: https://planet-lodges.com/lodges/arusha-planet-lodge/
Tjaldgisting í Serengeti: https://planet-lodges.com/lodges/jackals-lair-camp/
Hótel í Karatu: https://heartandsoullodge.com/
Hótel á Sansibar: https://riujambo.tz-zanzibar.com/en/
Þessi ferð er ekki aðeins upplifun heldur minning sem verður með þér að eilífu. Taktu skrefið inn í heim Tansaníu: Frá Serengeti til Sansibar. Þessi ferð er fullkomin blanda af menningu, fræðslu og upplifun sem gefur þér dýpri tengingu við landið og fólkið sem þar býr.
Hápunktur ferðarinnar
-
Arusha þjóðgarðurinn
-
Tarangire þjóðgarðurinn
-
Serengeti þjóðgarðurinn
-
Ngorongoro náttúruverndarsvæði sem er á heimslista UNESCO
-
Nairobi þjóðgarðurinn
-
Stærsta askja heims
-
Villt dýr í sínu náttúrlega umhverfi
-
Menning Tansaníubúa
-
Massai ættbálkurinn
-
Markaðir heimamanna
-
Listagallerí
-
Matargerð sem kitlar bragðlaukana
-
Kaffiplantekra heimamanna 100% organic
-
Frá bónda í bolla - skoðunarferð
-
Paradísareyjan Sansibar
-
Lúxusgisting á Nungwi ströndinni
-
The Rock - veitingastaður staddur á kletti í Indlandshafi
-
Skoðunarferð um Stone Town
Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er kr. 190.000 kr og er óendurkræft. Greiða þarf lokagreiðslu 1.000.000 kr fyrir 4.12.2026. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is
Lágmarksfjöldi 6 hámark 12
Verð: 1.190.000 kr*
*miðað við tvíbýli, aukakostnaður fyrir einbýli er 190.000 kr
Innifalið í verði:
-
Flug Kenía
-
Flug til Sansibar
-
Flug til Nairobi
-
Allur akstur
-
Akstur og leiðsögn í safaríferð á opnum 4x4 sérútbúnum jeppum
-
Aðgangur í skoðunarferðina "frá bónda til bolla"
-
Skoðunarferð um mibæ Arusha
-
Þjóðgarðsgjöld í Arusha þjóðgarðinn
-
Þjóðgarðsgjöld í Tarangire þjóðgarðinn
-
Þjóðgarðsgjöld í Serengeti þjóðgarðinn
-
Þjóðgarðsgjöld í Nairobi þjóðgarðinn
-
Aðgangur í Olduvai gilið
-
Aðgangur inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið
-
Heimsóknn í Massai þorp
-
Gisting í 2 nætur á hóteli í Arhusa
-
Gisting í 3 nætur á hóteli á Karantu Hásléttunni
-
Gisting í 3 nætur í lúxus tjöldum í Serengeti þar sem allt er innifalið í mat og drykk
-
Gisting í 2 nætur á lúxus 4 stjörnu hóteli á austurhluta Sansibar, allt innifalið í mat og drykk
-
Gisting í 3 nætur á lúxus 5 stjörnu hóteli á Sansibar þar sem allt er innifalið í mat, drykk og sjósporti.
-
16 hádegisverðir
-
14 morgunverðir
-
7 kvöldverðir
Ekki innifalið í verði:
-
Forfallatrygging
-
Farangurs-, ferða og slysatrygging
-
Gistináttaskattur greiðist erlendis
-
Vegabréfsáritun til Tansaníu $51
-
Trygging á Sanisbar $40
-
Þjórfé
-
Annar matur sem ekki er talin upp í dagskrá
Ferðatilhögun
Dagur 1. 4. febrúar – Ferðadagur
Flug til Kenía kl.7.40 með Icelandair. Flogið til Amsterdam og þaðan til Nairobi Kenía
Dagur 2. 5. febrúar – Velkomin til Kenía og Tansaníu
Við lendum snemma í Nairobi, kl.6.10. Akstur yfir landamærin til Arusha. Við byrjum daginn rólega – komum okkur fyrir á hótelinu. Hótelið er staðsett á grónu og friðsælu svæði og býður upp á notalega sveitastemningu með einstökum stíl – þar sem þægindi, náttúra og hlýlegt andrúmsloft skapa fullkomið andrými eftir ferðalög eða fyrir komandi ævintýri.
Dagur 3. 6. febrúar– Skoðunarferð og kaffirækt
Uppgötvaðu lífið og menninguna í hjarta Arusha með einstakri upplifun. Við hefjum daginn á skoðunarferð um miðbæinn þar sem þú færð innsýn í daglegt líf heimamanna og heimsækir líflegan markað fullan af litum, ilmi og stemningu.
Að því loknu höldum við í sérstaka upplifun sem nefnist „frá bónda í bolla“. Þar heimsækjum við 100% lífræna kaffirækt og kynnumst öllu ferlinu – allt frá ræktun baunanna til þess þegar kaffi er borið fram í bollanum þínum. Þú færð að sjálfsögðu að smakka ferskt, ilmandi kaffi beint frá upprunanum.
Ferðinni lýkur með ljúffengum hádegisverði að hætti heimamanna þar sem þú færð að njóta ekta bragða úr heimabyggð.
Dagur 4. 7. febrúar– Arusha þjóðgarðurinn
Eftir morgunmat höldum við í Arusha-þjóðgarðinn. Þar tekur á móti okkur fjölbreytt landslag með gróskumiklum skógum, opnum svæðum og útsýni til Meru-fjalls. Við förum úr bílunum og göngum um garðinn í fylgd þjóðgarsvarðar. Það gefur okkur tækifæri til að upplifa náttúruna í návígi og sjá dýr á borð við gíraffa, sebrahesta og buffala úr nýju sjónarhorni.
Að deginum loknum ökum við upp á háslétturnar við Karatu. Þar bíður okkar frábært hótel, góður kvöldverður og notaleg hvíld áður en næsti kafli ævintýrisins hefst.
Dagur 5. 8. febrúar– Tarangire þjóðgarðurinn - land fílanna
Eftir morgunmat ökum við frá Karatu til Tarangire-þjóðgarðsins og verjum deginum í safarí. Garðurinn er þekktur fyrir stórar fílahjarðir, ævaforn baobab-tré og fjölbreytt dýralíf. Við fylgjumst með því sem verður á vegi okkar – mögulega gíröffum, sebrahestum, antilópum og ljónum.
Að safarídeginum loknum höldum við aftur til Karatu. Þar getum við sest niður yfir góðum kvöldverði á hótelinu og rifjað upp það sem við sáum áður en næsta ævintýri tekur við.
Dagur 6. 9. febrúar– Serengeti þjóðgarðurinn
Eftir ljúffengan morgunmat pökkum við saman og leggjum við af stað í næsta garð. Við keyrum í Serengeti þjóðgarðinn en fyrsta stopp er Olduvai gilið – Vagga mannkynsins. Við heimsækjum hið sögufræga gil sem er eitt mikilvægasta fornleifasvæði heims. Þessi djúpi dalur í norðurhluta Tansaníu er stundum kallaður vagga mannkynsins, því þar hafa fundist einhver elstu mannvistarleifarnar sem nokkru sinni hafa komið í ljós. Í gílinu hafa fornleifafræðingar fundið steinverkfæri og beinleifar sem eru yfir 1,8 milljón ára gamlar – sem varpa ljósi á uppruna og þróun mannsins. Eftir frábæran dag þá keyrum við inn í Serengeti þjóðgarðinn þar sem lúxus tjaldgisting býður eftir okkur. Kvöldið endar á dásamlegum kvöldverði, þar sem ljúffengir réttir úr fersku, staðbundnu hráefni eru í forgrunni. Þetta er hinn fullkomni endir á ævintýraríkum og ógleymanlegum degi.
Dagur 7 og 8. 10-11. febrúar – Serengeti – Villta Afríka í sinni tærustu mynd!
Næstu tvo daga erum við í hjarta Serengeti, þar sem við förum í safarí og fylgjumst með dýralífinu í sínu náttúrulega umhverfi. Við ökum um víðáttumiklar sléttur og fylgjumst með dýrunum lifa sínu daglega lífi – ótrufluð og frjáls. Ljón hvíla sig í skugga, fílar þramma þöglir, sebrahestar og antilópur mynda mynstralínur á víðáttunni. Það er eitthvað töfrandi við að verða vitni að þessari óspilltu náttúru – þar sem allt er í sínu rétta samhengi og jafnvægi.
Dagur 9. 12. febrúar – Serengeti og Ngorongoro
Eftir ljúffengan morgunverð, er komið að því að pakka og kveðja þennan dásamlega stað. Við höldum áfram ferð okkar í gegnum Serengeti og áfram inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið, sem er skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta svæði er einstakt á heimsvísu og þekkt fyrir stærsta gíg í heimi, þar sem villt dýr og menn lifa saman í sátt og samlyndi – staður sem fangar bæði fegurð og kraft náttúrunnar. Við byrjum daginn á heimsókn í þorp Massai ættbálksins sem hefur varðveitt sínar fornu hefðir og kýs að lifa án allra nútímaþæginda. Hér fáum við innsýn í lífsstíl þeirra, menningu og siði sem gefur ferðinni einstakan menningarlegan blæ. Að heimsókn lokinni keyrum við niður í hið stórfenglega Ngorongoro-gíg, þar sem náttúran opinberar sig í sinni allra bestu mynd.
Þessi einstaka staður er heimili ótrúlega fjölbreytilegs dýralífs. Hér fáum við tækifæri til að sjá ljón, buffalo, sebrahesta, nashyrninga, flamingóa, hlébarða, flóðhesta og fleiri tegundir í sínu náttúrulega umhverfi. Ef heppnin er með okkur getum við jafnvel séð öll „The Big 5“ – ljón, nashyrning, fíla, hlébarða og buffala – í einni heimsókn
Eftir ævintýralega heimsókn í þjóðgarðinn keyrum við upp á hásléttur Karatu, þar sem við munum dvelja á einstöku sjálfbærnu hóteli. Þetta hótel er meira en bara gististaður – það er sannkölluð upplifun fyrir þá sem kunna að meta náttúru, sjálfbærni og þægindi. Allt hráefni sem notað er í matargerðina er ræktað á staðnum, og maturinn er í hæsta gæðaflokki, undir áhrifum „slow cooking“ þar sem áherslan er á ferskleika, bragð og gæði. Hver máltíð verður sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Þjónustan á hótelinu er persónuleg og framúrskarandi, og hver dagur endar með stórkostlegu sólsetri sem lýsir himininn með rauðum, appelsínugulum og gylltum tónum – upplifun sem fyllir hjartað friði.
Dagur 10. 13. febrúar – Sansibar austur ströndin
Við tökum þennan dag með ró – njótum morgunverðar með stórkostlegu útsýni. Við pökkum saman og dagurinn heldur áfram í léttum og listrænum tónum þegar við heimsækjum fallegt listagallerí, þar sem við fáum innsýn í menningu, handverk og sköpunarkraft heimamanna. Litir, form og sögur blandast saman og skapa innblástur og notalega stemningu – fullkomið jafnvægi við afslappaðan morguninn.
Eftir heimsókn á listagalleríið höldum áfram ferð okkar og keyrum á flugvöllinn í Arusha og fljúgum til paradísareyjunnar Sansibar. Við lendingu bíður okkar loftkæld rúta sem keyrir okkur á norðurhluta eyjarinnar, þar sem paradís bíður með sínum hvítu ströndum og tærbláa sjónum. Þessi dagur er fullur af upplifunum sem tengja saman ævintýri, menningu og afslöppun – hinn fullkomni millikafli á leið til draumaeyju.
Paradísareyjan Sanzibar – Fullkomin slökun í Indlandshafi. Eftir ævintýralega safaríferð er dásamlegt að slaka á í þessu nærandi umhverfi, þar sem allt snýst um afslöppun, vellíðan og fegurð.
Það er um að gera að nýta daginn til að njóta alls þess sem hótelið hefur upp á að bjóða og uppgötva þetta stórkostlega svæði. Á hótelinu er allt innifalið í mat og drykk
Dagur 11. 14. febrúar– Sansibar austur ströndin
Frjáls dagur til að njóta á Sansibar. Um kvöldið er í boði að fara á The Rock veitingastað sem er staðsettur á kletti úti á Indlandshafi. Frábær upplifun sem engin má missa af
Dagur 12. 15. febrúar– Sansibar Stone Town og Nwungi ströndin
Eftir morgunmat þá pökkum við saman. Byrjum á skoðunarferð um Stone Town áður en við förum á næsta hótel sem er staðsett á fallegustu strönd Sansibar.
Dagur 13-15. 16 - 18. febrúar - Sansibar frjáls tími
Frjáls dagur til að njóta Sansibar. Eyjan er ekki aðeins þekkt fyrir stórkostlegar strendur heldur líka fyrir ríka sögu og menningu – og er fæðingarstaður tónlistargoðsagnarinnar Freddie Mercury. Næstu daga færðu tækifæri til að kanna eyjuna á eigin forsendum, fylla hann af ævintýrum eða einfaldlega halda áfram að njóta afslöppunar í þessari paradís. Veldu þína leið – Sansibar er fullkomin blanda af hvíld og ævintýri.
Dagur 15. 19. febrúar – Sansibar - Nairobi Kenía
Eftir morgunmat er komið að kveðjustund við þessa stórkostlegu paradísareyju og við höldum út á flugvöll til að fljúga til Nairobi Kenía þar sem ný ævintýri taka við.
Dagur 16. 20. febrúar – Nairobi Kenía
Eftir morgunmat er farið í dagssafarí í Nairobi þjóðgarðinn. Eftir frábæran dag í þjóðgarði Nairobi fer hópurinn sama í lokakvöldverð. Sérstakur steikarstaður þar sem hægt er að smakka allskyns kjöt, meðal annars krókódíl og strút. Þetta er góð stund til að njóta lokakaflans í ferð sem hefur verið fyllt af ævintýrum, slökun og minningum sem vara að eilífu.
Dagur 17. 20. febrúar - Ferðadagur
Ferðadagur flug frá Nairobi til Amsterdam. Erum að lenda í Amsterdam seinni partinn. Gisting ein nótt í Amsterdam og frjáls tími til að fara niðri miðbæ í góðan kvöldverð
Dagur 18. 21. febrúar - Ísland ferðadagur
Eftir morgunverð pökkum við saman og tökum flug kl.12.55 til Íslands. Lending kl.15.20
Mikilvægar upplýsingar
Bólusetningar og lyf: Mikilvægt er að hafa samband við heilsuhægslustöð varðandi bólusetningar og lyf. Einnig er hægt að hafa samband við Vinnuvernd/Ferðavernd og bóka viðtal /ráðgjöf vegna bólusetningar hægt að sjá hér:
https://www.vinnuvernd.is/en_GB/bolusetningar-ferdalog
Vegabréf: Þarf að vera í gildi 6 mánuði eftir að viðkomandi lendir í Tansaníu
Vegabréfsáritun: Sækja þarf um vegabréfsáritun til Tansaníu. Það tekur c.a 5 - 10 daga. Viðkomandi fyllir út umsókn á netinu (sér umsókn fyrir maka og börn). Með umsókn þarf að fylgja passamynd(má vera tekin á síma eða af FB), mynd af vegabréfi og flugmiði(pdf skjal). Hægt að sækja um hér:
























