top of page
IMG_0429_edited.jpg

Perú: Inkastígurinn til Machu Picchu

Sérferðir til Perú – Inkastígurinn til Machu Picchu

 

Fetaðu í fótspor Inkanna og upplifðu ævintýri í Andesfjöllum.

Inkastígurinn til Machu Picchu sameinar stórbrotna fjallasýn, fornar minjar og einstaka gönguupplifun. Leiðin liggur um gróna dali, steinlagðar tröppur og há fjallaskörð, þar sem saga Inkanna fylgir þér við hvert fótmál.

​

Hápunkturinn er að koma gangandi að Machu Picchu og sjá þessa fornu Inkaborg birtast milli fjallanna – augnablik sem gerir alla áreynsluna þess virði.

 

Ferðasetrið skipuleggur sérferðir frá apríl til september og hjálpar þér að setja saman ferð eftir þínum óskum. Hvort sem þið eruð par, vinir eða lítill hópur getur Inkastígurinn orðið ykkar næsta stóra ævintýri.

​

Sendu okkur tölvupóst með óskum um ferðatíma og fjölda þátttakenda og fáðu tilboð í þína Perúferð.

bottom of page