
Bólivía: Einstakt ævintýri í Suður Ameríku
1. júní 2027
9 dagar
frá 299.000 kr
Upplifðu ógleymanlega ævintýraferð í Bólivíu! Fyrir eða eftir göngu á Inkastíginn Perú.
Ferðin byrjar í byrjar í Cusco Perú. Þar sem þátttakendur eru annað hvort að ljúka göngu um Inkastíginn eða ætla ganga hann eftir Bólivíu. Við fljúgum til La Pas sem er hæsta höfuðborg heims, staðsett í yfir 3.600 metra hæð yfir sjávarmáli. La Pas býður upp á einstaka blöndu af stórbrotinni náttúrufegurð og menningu þar sem hefðbundinn menning frumbyggja blandast við nútímalegan lífsstíl. Göngutúr um götur borgarinnar og heimsókn á sögufræga markaði, eins og nornamarkaðinn er ómissandi upplifun.
Við byrjum á skoðunarferð um Tungldalinn, það er eins og stíga inn í annan heim. Tungldalurinn í Bólivíu heillar með ótrúlegu landslagi sem minnir á tunglið sjálft og er einstakt náttúrusvæði aðeins um 10 km frá miðbæ La Pas. Þetta hrífandi svæði samanstendur af óreglulegum leirstöpum og turnum sem vindur og rigning hafa mótað í þúsundir ára. Útkoman? Draugalegt, en ótrúlega fallegt landslag sem lítur út eins og það sé af annarri plánetu.
Eftir að hafa skoðað Tungldalinn og La Pas leggjum við í 3ja daga ferð um hinar frægu Saltsléttur Uyuni (Salar de Uyuni), sem eru stærstu saltsléttur heims. Þetta ótrúlega landslag líkist engu öðru: Endalausir hvítir saltkristallar, spegilslétt yfirborð og einstakar sólarupprásir og sólsetur gera þessa ferð að sannkölluðu ævintýri. Ferðin leiðir okkur einnig um fjölbreytt svæði í kring, þar á meðal litrík vötn, gífurleg eldfjöll og heitar uppsprettur.
Eftir frábæra ferð um saltslétturnar og hálendi Bólivíu höldum við aftur til La Pazs og þá er förinni haldið í Tiwanaku rústunum sem eru fornminjar í hjarta Andesfjallanna. Á hásléttum Bólivíu standa leifar af einni merkilegustu siðmenningu Suður Ameríku, Tiwanaku. Þessar dularfullu rústir eru minjar um háþróað og áhrifamikið samfélag sem blómstraði löngu áður en Inkarnir tóku við völdum í Andesfjöllunum. Þar munum við skoða Akapana pýramídann, Kalasasaya hofið, Sólarskraðshliðið og Pumapunku. Tiwanaku - rústirnar eru á heimslista UNESCO og teljast meðal mikilvægustu fornleifa í Suður Ameríku.
Þessi ferð er einstakt tækifæri til að upplifa bæði menningarlega og náttúrulega undraheima í Bólivíu. Saltflatirnar í Uyuni eru sannarlega eitthvað sem verður eftirminnilegt til æviloka.
Hápunktar ferðarinnar
-
La Pas - hæsta höfuðborg heims 3.600 metrar
-
El Alto - hæsti flugvöllur heims 4.150 metrar
-
Tungldalur - sérstakt náttúruundur
-
Saltslétturnar í Uyuni, stærstu saltsléttur heims
-
Hálendi Bólivíu
-
Hverasvæði
-
Tiwanaku rústirnar - mikilvægustu fornleifar í Suður Ameríku - á heimslista UNESCO
Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 50.000 kr sem er óendurkræft. Lokagreiðsla greiðist 1. apríl. 2027. Hægt að skipta greiðslum vaxtalaust. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is
A.T.H - Aðeins 13 sæti í boði. 3 jeppar, 5 manns í hverjum bíl
Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson
Verð: 299.000*
*miðað við tvíbýlí, aukagjald vegna einbýli er 50.000kr
Innifalið í verði
-
Undirbúningsfundur
-
Flug til Uyuni Bólivíu
-
Akstur í Bólivíu
-
Skoðunarferð um La Pas
-
Skoðunarferð um Tungldalinn
-
Skoðunarferð um Salslétturnar í Uyuni
-
Skoðunarferð um hálendi Bólivíu
-
Þjóðgarðsgjöld
-
Skoðunarferð um Tiwanaku rústirnar
-
Sérútbúnir 4x4 jeppar um saltsléttur og hálendi Bólivíu
-
Gisting 3 nætur á 5 stjörnu hóteli í La Pas með morgunmat
-
Gisting 1 nótt á 4ra stjörnu hóteli í Uyuni með morgunmat
-
Gisting 1 nótt á salthóteli með morgunmat, hádegismat og kvöldmat
-
Gisting 1 nótt í fjallaskála (4.500 metra hæð) með morgunmat og hádegismat
-
Íslensk og erlend fararstjórn
Ekki innifalið í verði:
-
Flug til Bólivíu - Ferðasetrið aðstoðar með kaup á flugi
-
Annar matur sem er ekki í dagskrá
-
Þjórfé
-
Forfallatrygging
-
Ferða-, slysa- og farangurstrygging
Ferðatilhögun
Dagur 1. Þriðjudagur 1. júní - Ferðadagur Perú (fyrir þau sem eru í júní ferðinni)
Flug Cusco Perú. Nema þeir sem eru í maí ferðinni um Inkastíginn. Þeir eru nú þegar í Cusco.
Dagur 2. Miðvikudagur 2. júní - Perú
Velkomin til Perú. Akstur á hótel. Sama hótel og við notum þegar við förum í gönguferðina um Inkastíginn. Hér getum við skilið göngubúnaðinn okkar eftir áður en við höldum til Bólivíu. Hvíld eftir langt ferðalag og frjáls dagur í Cusco
Dagur 3. Fimmtudagur 3. júní - Ferðadagur Bólivía
Flug til La Pas í hádeginum. Aðeins 75 mín flug til La Pas Bóliviu. Akstur á hótel og frjáls dagur í La Pas
Dagur 4. Föstudagur 4. júní - Saltslétturnar í Uyuni
Flug til Uyuni. Fyrsti dagur ferðarinnar hefst með ógleymanlegri heimsókn á eina af einstöku náttúruperlum heimsins – Saltsléttuna í Uyuni, stærstu saltsléttu heims. Við byrjum á stuttri en áhrifaríkri heimsókn í hinn dularfulla lestarkirkjugarð, þar sem ryðgaðir gufulestarteinar og vagnar frá 19. öld segja sögu um horfna tíma iðnvæðingar og drauma um framtíð sem aldrei rættist. Að því loknu höldum við áfram inn á þessa óendanlegu, hvítu víðáttu – saltsléttuna sjálfa. Þessi hrífandi slétta, sem nær yfir meira en 10.000 ferkílómetra, býður upp á ólýsanlega sjón – spegilslétt yfirborð, himinbláa vídd og síbreytilega sýn eftir birtu og árstíðum. Hér tökum við okkur tíma til að njóta landslagsins, mynda skemmtilegar sjónhverfingar og upplifa þetta stórbrotna undur náttúrunnar. Dagurinn endar með sólsetri yfir saltsléttunni – litadýrð sem endurspeglast í saltnum og skilur eftir sig minningu sem gleymist aldrei. Gisting er á Salthóteli með kvöldverð.
Dagur 5. Laugardagur 5. júní- Hálendi Bólivíu
Annar dagur ferðarinnar um Uyuni leiðir okkur lengra í mögnuðu Eduardo Avaroa þjóðminjasvæðis, þar sem ótrúleg náttúra og landslag í öðrum heimi taka á móti okkur. Við byrjum daginn með akstri í gegnum Siloli-eyðimörkina, sem oft er lýst sem „eyðimörkinni við enda heimsins“ – kyrrlát og tignarleg með hrjúfum fjallatoppum og víðáttumiklu, hráslagalegu landslagi sem grípur í sálina. Á leið okkar skoðum við fræga Steintréð (Árbol de Piedra) – náttúrulega klettamyndun sem vegna árþúsunda af roki og veðrun hefur tekið á sig ótrúlega mynd sem minnir á tré sem stendur eitt og sér í eyðimörkinni.
Ferðin heldur áfram að einu af mögnuðustu náttúruundrum landsins – Rauða lóninu (Laguna Colorada). Þetta lón, sem fær djúprauðan lit sinn frá örsmáum þörungum og steinefnum í vatninu, er ekki aðeins sjónrænt undur heldur líka heimili þúsunda bleikra flamingóa sem njóta sín í sínu náttúrulega umhverfi. Við fylgjumst með þessum tignarlegu fuglum í nánum tengslum við náttúruna, í litríkri og nærri yfirnáttúrulegri stemningu.
Næsta stop er jarðhitasvæðið Sol de Mañana, þar sem gufustrókar, goshverir og bubblandi leirhverir skapa töfrandi og að nokkru leyti yfirnáttúrulegt andrúmsloft. Eftir það bíður okkur afslöppun í heitu laugunum, náttúrulegum jarðböðum þar sem við getum notið útsýnisins og hvílt okkur um stund í hlýjunni. Gisting á fjallahóteli í 4.500 metra hæð með morgunmat og kvöldmat.
Dagur 6. Sunnudagur 6. júní - Hálendi Bólivíu og Uyuni
Við byrjum daginn snemma, næst liggur leiðin um hið draumkennda landslag Dalí-eyðimerkurinnar, sem dregur nafn sitt af því hversu súrrealískt og óraunverulegt það er – eins og landslag úr málverki Salvador Dalí. Hér endurspeglast list náttúrunnar sjálfrar í formum, tónum og tómlæti tímans.
Að lokum heimsækjum við tvö stórkostleg fjallalón: Græna lónið (Laguna Verde) og Hvíta lónið (Laguna Blanca). Þessi lón, staðsett við rætur hins tignarlega Licancabur-eldfjalls, bjóða upp á litbrigði og fegurð sem standa engan veginn að baki hinum fyrri – grænblá vatnið, hvítt salt og dökkur eldfjallatoppur skapa ógleymanlega sjón sem fullkomnar ferðalagið. Keyrum aftur til Uyuni, gisting á 4ra stjörnu hóteli með morgunmat
Dagur 7. Mánudagur 7. júní - La Pas skoðunarferð
Flug frá Uyuni til La Pas um morguninn. Eftir hádegi er skoðunarferð um La Pas og Tungldalinn. Þessi einstaka skoðunarferð sameinar borgarævintýri í hæst liggjandi höfuðborg heims, La Pas og náttúruundur Tungldalsins– aðeins steinsnar frá borginni. Við hefjum daginn með því að aka frá miðbæ La Pas í Tungldalinn, þar sem vindur og rigning hafa mótað jarðveginn í hrífandi leirstalla, dýpri dali og oddhvassa tinda sem minna á yfirborð tunglsins. Gönguleiðir í gegnum svæðið bjóða upp á stórkostlegt útsýni yfir landslagið og eru auðveldar yfirferðar fyrir flesta.
Eftir rólega göngu í þessu einstaka landslagi snúum við aftur til La Pas þar sem við förum í skoðunarferð um borgina. Við göngum um miðbæinn, þar sem San Francisco kirkjan og steinlagðar götur segja sögu samruna spænskrar og andesrar menningar. Í La Pas eru hæstu samgöngur í heimi, því borgarbúar nota kláfa eins og við strætó. Við notum tækifærið til að njóta útsýnis yfir borginga og dásamlega fjallahring sem umlykur hana. Við heimsækjum nornamarkaðinn (Mercado de las Brujas), þar sem hefðir og þjóðtrú Aymara fólksins birtast í formi jurtalyfja og andlegra athafna.
Ferðin endar á einum af vinsælu útsýnispöllunum borgarinnar, þar sem við fáum tækifæri til að sjá La Paz í allri sinni dýrð – borg sem hefur byggst upp í hjarta Andesfjallanna, þar sem gömul trú og nútímalíf lifa hlið við hlið. Þetta er fullkomin dagsferð fyrir þá sem vilja upplifa fjölbreytta náttúru og menningu á einum degi, með leiðsögn sem dýpkar skilninginn á þessu einstaka svæði.
Dagur 8. Þriðjudagur 8. júní - Tiwanaku
Við bjóðum upp á dagferð til hinnar dularfullu og áhrifamiklu fornminjasvæðis Tiwanaku, sem er eitt merkasta arfleifðarsvæði Suður-Ameríku og stendur við suðurenda Titicaca-vatnsins. Þessi forna borg var miðstöð öflugrar menningar sem blómstraði löngu fyrir tíma Inka, á bilinu 500 f.Kr. til um 1000 e.Kr.
Á svæðinu sjáum við áhrifamiklar rústir sem bera vitni um þróaða verkfræði og djúpa andlega menningu.
Meðal hápunkta eru:
-
Puerta del Sol (Sólhliðið) – stórbrotin steinbogahurð útskorin með dularfullum táknum sem tengjast sólardýrkun og tímatal.
-
Kalasasaya-hofið – hásléttuhof úr risasteinum, hugsanlega notað í stjörnuspekiathafnir.
-
Monólítar og styttur – til dæmis Pachamama og Ponce, háar mannlíkamalíkar steinstyttur með flóknum útskurði og trúarlegum táknum.
-
Akapan-pýramídinn – flókin upphækkuð bygging sem hefur verið notuð til trúariðkana og helgiathafna.
Skoðunarleiðsögnin veitir innsýn í hvernig Tiwanaku-fólkið skipulagði samfélag sitt, sótti vatn, þróaði landbúnað og byggði með ótrúlegri nákvæmni án málmverkfæra eða hestsins.
Ferðin sameinar fornleifafræði, sagnfræði og náttúrufegurð hásléttunnar – ógleymanleg upplifun fyrir alla áhugasama um menningu, sögu og leyndardóma Andesfjalla.
Dagur 9. Miðvikudagur 9. júní - Ferðadagur flug til Cusco Perú
Þá kveðjum við Bólivíu og fljúgum aftur til Cusco um hádegið. Frjáls dagur í Cusco
Dagur 10. Fimmtudagur 10. júní - Ferðadagur
Flug til Íslands fyrir maí hópinn. En júní hópur byrjar ferðina sína












