top of page
IMG_4435_edited.jpg

Nepal: Grunnbúðir Everest

Sérferðir til Nepal – grunnbúðir Everest og Gokyo-vötnin

Upplifðu stórbrotinn fjallaheim Himalaja og gakktu að grunnbúðum Everest.

Nepal heillar með tignarlegum fjöllum, litríkum bænafánum og þorpum þar sem lífið mótast af nálægðinni við hæstu tinda heims. Ganga að grunnbúðum Everest er ævintýri þar sem náttúra, menning og persónuleg áskorun fara saman.

 

Ferðasetrið býður upp á tvær leiðir:

​

Grunnbúðir Everest
Gengið er um Khumbu-dalinn, í gegnum þorp Sherpa-fólksins og fram hjá klaustrum, með stórbrotna fjallasýn á leið að grunnbúðum hæsta fjalls heims.

​

Grunnbúðir Everest um Gokyo-vötnin
Fyrir þig sem vilt lengra gönguævintýri og meiri fjölbreytni. Leiðin liggur um Gokyo-vötnin, þar sem blágrænt vatnið sker sig úr hrikalegu fjallalandslaginu, og áfram að grunnbúðum Everest.

Ferðatími er í apríl og maí eða október og nóvember.

​

Við hjálpum þér að velja leið og setja saman ferð sem hentar þínum óskum og markmiðum.

Sendu okkur tölvupóst með óskum um leið, ferðatíma og fjölda þátttakenda og fáðu tilboð í þína Nepalferð.

bottom of page