
Fararstjóri
Edith Gunnarsdóttir
Edith Gunnarsdóttir er eigandi og stofnandi Ferðasetursins. Hún veit fátt betra en að ferðast og hreyfa sig. Skiptir ekki máli hvenær sem er á árinu, allar árstíðar hafa sinn sjarma, líka tjaldútilegur á veturnar. Hún elskar ævintýri og ferðalög og er óhrædd við að stíga út fyrir þægindaramma og ögra sjálfri sér. "Töfrarnir og lærdómurinn gerast þegar þú stígur út fyrir þægindarmannann".
Edith hefur margra ára reynslu í leiðsögn bæði erlendis og hér heima. Hún hefur mikinn áhuga á heilsueflingu með útivist og jóga og telur það jafn mikilvægt að hlúa að huganum og sálinni eins og að rækta líkamann. Hugur, líkami og sál, hin heilaga þrenning.
Þar fyrir utan er hún menntuð í sálfræði og heilbrigðisvísindum ásamt því að vera með kennararéttind í jóga og jóga nidra. Hún rekur einnig Hugarsetrið.