
Gönguferð til Kappadókíu Tyrklandi með Edith Gunnars
3 - 10. september 2026
3. september 2026
10 dagar
frá 359.000 kr
Gönguferð til Kappadókíu Tyrklandi
Gönguævintýri í Kappadókíu um stórbrotna dali, hellakirkjum, sögulegum slóðum og fallegu útsýni. Upplifðu einstakt ævintýri í einu magnaðasta landslagi heims. Kappadókía er þekkt fyrir dularfullar klettamyndanir, djúpa dali og sögur sem ná þúsundir ára aftur í tímann. Í þessari ferð sameinum við spennandi göngur, stórbrotna náttúru og ríkulega menningu – upplifun sem hentar jafnt ævintýragjörnu göngufólki í fallegu og framandi umhverfi.
Við göngum um fjölbreytt landslag: Mjúka moldarstíga og hraunlitaða dali. Á milli göngudaga njótum við tyrkneskrar matargerðar, heimsækjum sögufrægar neðanjarðarborgir og slökum á í notalegum gististöðum. Morgnar þar sem loftbelgir rísa yfir dalina gera upplifunina ógleymanlega.
Þessi ferð er fullkomin fyrir þá sem vilja sameina hreyfingu, ævintýri og menningarupplifun í hlýju loftslagi. Komdu með og upplifðu Kappadókíu – ferð sem situr lengi í minni.
Ferðasetrið verður með FJALLAhjólaferð á sama tíma, þannig vinir/hjón gætu nýtt ferðina þótt annar aðilinn hjólar en hin gengur, það er sofið á sama hóteli. Hægt að lesa um Fjallahjólaferðina hér
Hápunktar ferðarinnar
-
Ihlara dalurinn ganga undir háum klettaveggjum og framhjá fornum hellakirkjum.
-
Þú heyrir bókstaflega bara í eigin fótataki í Rose/Red Valley. Klettarnir verða bleikir, rauðir og appelsínugulir á sama tíma.
-
Pigeon og Love Valley eru eins og önnur pláneta. Furðulegar bergmyndanir, þröngir stígar og endalaust útsýni.
-
Loftbelgir við sólarupprás (valfrjálst). Sjaldgæft tækifæri til að fljúga í loftbelg.
-
Rík saga og menning. Heimsókn í neðanjarðarborg á heimsminjaskrá UNESCO, fornar hellakirkjur, klaustur og dúfnahús sem segja sögu lífsins í Kappadókíu í gegnum aldirnar.
-
Tyrknesk matarmenning. Heimagerðar máltíðir, staðbundnir réttir, ferskir safar og ljúffengar kvöldverðir á veröndum með stórfenglegu útsýni.
-
Smáir hópar og persónuleg leiðsögn. Reyndir leiðsögumenn sem þekkja slóðirnar, söguna og landslagið út í hörgul – með áherslu á öryggi, gleði og gæði upplifunarinnar.
-
Slökun í Hammam. Hefðbundið tyrkneskt bað í lok ferðar – fullkomin leið til að slaka á eftir ævintýralega daga.
Verð og bókun
Verð: 359.000 kr. (miðað við tvíbýli)*
Aukagjald fyrir einbýli: 70.000 kr.
Til að tryggja sæti þarf að greiða staðfestingargjald 50.000 kr. sem er óendurkræft. Lokagreiðsla, 349.000 kr, greiðist fyrir 3. júlí 2026. Hægt er að skipta niður greiðslum.
Frekari upplýsingar: ferdasetrid@ferdasetrid.is
Lágmarksfjöldi: 14
Hámarksfjöldi: 20
Fararstjórar: Edith Gunnarsdóttir, Elinas Jackson og leiðsögumenn frá Tyrklandi
Innifalið í verði
-
Undirbúningsfundur
-
Akstur til og frá flugvelli
-
Akstur til og frá hótelum
-
Hótelgisting í 7 nætur
-
Allir hádegisverðir og snarl
-
Kvöldverðir fyrstu þrjú kvöldin
-
Íslenskur og enskumælandi leiðsögumenn frá Tyrklandi
Ekki innifalið
-
Flug til Kappadókíu (Ferðasetrið aðstoðar með kaup á flugi)
-
Ferða-, slysa- og farangurstryggingar
-
Forfallatrygging
-
Allur matur sem ekki er nefndur í dagskrá
-
Aðgangseyri að sögulegum stöðum og söfnum
-
Loftbeglur (val)
-
Tyrkneskt bað í Hammam
-
Þjórfé
Dagskrá ferðarinnar
Dagur 1 – fimmtudagur 3. september - Ferðadagur
Fyrsti dagurinn er ferðadagur og tími til að koma sér fyrir. Staðar leiðsögumaður sækir hópinn og ekið til Göreme. Um kvöldið nýtur þú heimagerðs matar, hlýlegrar fjölskyldustemningar og gistir í hefðbundnu hellaherbergi.
Dagur 2 – föstudagur 4. september - Ihlara dalurinn
Dagurinn hefst á hefðbundnum tyrkneskum morgunverði. Að því loknu byrjum við af krafti. Ihlara er grænt gljúfur meðfram á, algjör andstæða við þurrt hraunlandslag Kappadókía.
Við hjólum milli klettaveggja, yfir litlar trébrýr og framhjá hellakirkjum sem eru skornar inn í bergið.
Eftir ljúffengan hádegisverð heldur ævintýrið áfram niður Ihlara gljúfrið. Um kvöldið gistir þú á hellahóteli ofan við yfirgefið klaustur og hefur möguleika á að kanna svæðið nánar í sólsetursgöngu. Kvöldið endar á glæsilegum hlaðborðskvöldverði og drykkjum á verönd með útsýni yfir Klaustradalinn.
Leng gönguferðar: 14 km | +2-400 m
Dagur 3 – laugardagur 5. september - Soganli dalurinn
Ef þú vilt sjá Kappadókíu án mannmergðar – þá er þetta dagurinn. Soğanlı dalur og Gölgölí eru rólegri og minna um ferðamenn. Hér finnur þú kyrrð sem er orðin sjaldgæf á vinsælustu stöðunum.. Við göngum um mjúka moldarstíga milli klettaturna, hellakirkna og lítilla bæja þar sem daglegt líf heldur áfram óbreytt. Í dalnum eru fjölmargar kirkjur höggnar inn í bergið, sem segja sögur frá fyrstu kristnu samfélögunum á svæðinu. Gölgölí svæðið bætir við víðáttumiklu útsýni, opnum hæðum og fallegum sveitastígum.
Hádegisverður er snæddur á fallegum veitingastað með frábæru útsýni og ljúffengum mat. Gisting er í fallegu gömlu grísku herragarðshóteli með frábærum veitingastað.
Lengd gönguferðar: 10 km | +2-400 m
Dagur 4 – sunnudagur 6. september - Gomeda dalur
Fallegur morgunn bíður – víðáttumiklar sléttur og grænir, mjóir dalir þar sem slóðir liðast niður á við. Síðan tekur við skemmtileg niðurleið inn í Gomeda dalinn þar sem óvænt gróður og dýralíf tekur á móti þér. Dúfnahúsin, sem þú hefur séð í klettunum ofan frá, verða aðgengileg þegar þú klifrar upp tré stiga til að sjá hvernig fólk safnaði áður dúfnaskít sem aðaltekjulind.
Eftir Gomeda dalinn er gengið í gegnum fallegt gljúfur og níu milljón ára gamlan dal með dúfuhúsum og hellakirkjum. Létt gönguleið með stórkostlegu útsýni og hádegisverði í Uçhisar. Kvöldverður og síðan ganga að Sunset Point þar sem þú heldur áfram að dást að þessu einstaka landslagi.
Lengd gönguferðar: 12 km | +2-400 m
Dagur 5 – mánudagur 7. september - Red Rose dalurinn
Við göngum um mjóa stíga milli rauðbleikra klettamyndana sem breyta lit eftir birtu. Landslagið er mjúkt í formi en dramatískt í útliti – þröng gljúfur og opnar hásléttur með víðáttumiklu útsýni.
Á leiðinni leynast falnar hellakirkjur, gömul klaustur og útsýnisstaðir sem kalla á stopp – ekki af því þú sért þreytt/ur, heldur af því útsýnið krefst þess.
Leng gönguferðar: 12 km | +2-400 m
Dagur 6 – Þriðjudagur 8. september - Valfrjáls loftbelgjarferð – Love dalurinn og Pigeon dalurinn
Veður ræður því hvort hægt sé að fljúga í loftbelg – eða hjóla undir þeim – við sólarupprás. Hvort tveggja krefst snemmra morguns en eru upplifanir sem maður upplifir aðeins einu sinni á ævinni. Ef aðstæður leyfa ferðu í stutta en stórbrotna morgunferð eftir morgunverð og uppgötvar nýjar slóðir í klettum og dölum.
Hádegishlé á veitingastað í gljúfrinu.. Ef syfja sækir að er hægt að leggja sig í púðafylltum hellum fyrir ofan veitingastaðinn. Allir veitingastaðir ættu að hafa svefnherbergi!
Lengd gönguferðar: 11 km | +2-400 m
Dagur 7 – miðvikudagur 9. september - Zemi dalurinn
Allar góðar gönguferðir taka enda – en síðasti dagurin er fullkominn lokadagur í gönguviku – blanda af grænum dal og opnu útsýni af hásléttu. Við byrjum í Zemi dalnum þar sem stígurinn liggur á milli klettaveggja, yfir litlar trébrýr og meðfram gróðri sem gefur svæðinu ferskt yfirbragð.
Dalurinn er rólegri en margir aðrir, en landslagið er fjölbreytt. Hér færðu góða göngu án mikillar mannmergðar og finnur fyrir kyrrðinni sem einkennir Kappadokíu
Eftir dalinn opnast landslagið upp á svokallað „Table Top“ svæði – flatar klettahæðir og náttúrulegar hásléttur með stórbrotnu útsýni yfir dali og klettamyndanir.
Þetta er staðurinn til að stoppa, anda djúpt og horfa yfir það landslag sem þú hefur gengið í gegnum síðustu daga. Vítt útsýni, opinn himinn og róleg stemning.
Bestu endalok heimsóknarinnar til Göreme eru hefðbundið tyrkneskt bað (Hammam) sem hreinsar bæði líkama og sál. Tími til að slaka á og rifja upp ógleymanlega upplifun fulla af góðu fólki, dásamlegum mat og bestu hjólaleiðum Tyrklands.
Lengd gönguferðar: 11 km | +2-400 m
Dagur 8 – fimmtudagur 10. september - Ferðadagur
Ferðadagur, akstur á flugvöll








