top of page
IMG_9388_edited.jpg

UPPSELT Hvannadalshnúkur 25. apríl 2026

Gönguferð á Hvannadalshnúk – ævintýri sem þú gleymir aldrei

 

Stefnir þú á ógleymanlegt ævintýri? Þá er gönguferð á Hvannadalshnúk, hæsta tind Íslands, algjör skylduferð fyrir þig! Þetta er einstakt tækifæri til að upplifa ótrúlegt útsýni, hreinan jökulsvind og kraft náttúrunnar – allt á einum degi.

Ferðin hefst við rætur Öræfajökuls, þar sem leiðin liggur upp fallegar hlíðar og í ferðinni blasir við stórkostleg náttúra. Hápunkturinn er sjálfur Hvannadalshnúkur – þar bíður þín eigið „top moment“. Útsýnið af tindinum er hreint út sagt magnað, á góðum degi sérðu yfir stóran hluta Suðurlands og endalausa víðáttu Vatnajökuls.

 

Þetta er krefjandi en ótrúlega gefandi dagsferð fyrir alla sem sem eru í góðu fjallaformi. Með góðum undirbúningi færðu upplifun sem skilur eftir sig ævintýralegar minningar – og ómetanlega sigurtílfinningu þegar þú stendur á hæsta tindi á Íslandi.

A.T.H að í þessari göngu þarf jöklabrodda, belti með læstri karabínu og ísöxi (hægt að fá leigt hjá GG Sport).

Vegalengd 24 km, uppsöfnuð hækkun er 2.110 metrar og tekur um 14-16 klst.


Þátttakendur verða að vera komnir austur og í startholunum dagana 24 - 25. júní, því við veljum að sjálfsögðu besta veðrið. Við förum ekki á jökulinn ef veðið er ömurlegt og ekkert ústýni. Þátttakendur fá endurgreitt ef hætt verður við ferðina á jökulinn vegna veðurs. 

Lámarks fjöldi er 12, hámark 24

Fararstjórn: Gunnar Ingi Halldórsson og aðrir fararstjórar Ferðasetursins

 

bottom of page