
Fararstjóri
Gunnar Ingi Halldórsson
Gunnar Ingi hefur starfað við leiðsögn af ýmsu tagi í 10 ár með vinnu eftir að hafa látið æskudrauminn rætast og gerast björgunarsveitarmaður um fertugt þegar ungbarnastússinu var lokið, en segja má að ferðaþráin hafi rækilega vaknað í löngu ferðalagi um Afríku eftir útskrift úr háskóla 1998.
Hann hefur töluverða reynslu af styttra og lengra hálendis- fjalla- og jöklabrölti og mörg námskeiðin að baki, s.s. skyndihjálp í óbyggðum, jöklaleiðsögn og fjallabjörgun. Hann vill helst sofa undir berum himni eða í tjaldi, sumar sem vetur. Hálendið allt, Fjallabak, jöklar og Hornstrandir eru í miklu uppáhaldi. Það er mikil hreyfiþörf í gangi og þegar ekki er verið á fjöllum er notast við fjallahlaup og crossfit, ferðaskíði og fjallaskíði og svo hefur allskonar yoga bæst við hin síðari ár, enda mikilvægt að hlúa að heilsunni heildrænt.
Gunnar er sögumaður eins og afi sinn og grípur gjarnan bók með í leiðangra. Hann mun seint hætta þessu.