top of page
IMG_1703_edited.jpg

Vetrarfjallamennska - Námskeið
16-18. mars 2026

Vetrarfjallamennska - kynnstu töfrum vetrarins!

Útivist að vetrarlagi er töfraheimur sem alltof fáir kynnast. Þú þarft ekki að vera pólfari eða afreksíþróttamaður til að njóta fegurðar vetrarríkisins á Íslandi – aðeins rétta þekkingu, búnað og öryggisvitund. Sumarið okkar er stutt og veturinn lætur oft sjá sig bæði á haustin og vorin, sem gerir það enn mikilvægara að kunna til verka þegar aðstæður breytast.

Ferðasetrið býður upp á námskeið í vetrarfjallamennsku, ætlað þeim sem vilja öðlast traustan grunn til að ferðast örugglega í vetraraðstæðum. Námskeiðið er tvískipt:


• Fræðslufundur á netinu
• Verkleg æfing í fjalllendi

Námskeið

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnatriði vetrarfjallamennsku, þar á meðal gangtækni í línu, notkun jöklabrodda og ísaxar, ásamt æfingum í öruggri hreyfingu í snjó og bratta.

Það er bæði afar mikilvægt og nauðsynlegt að sækja vetrarfjallanámskeið fyrir þá sem hyggja á jöklaferðir eða aðrar krefjandi vetrarferðir. Slík námskeið veita nauðsynlega þekkingu og færni í notkun búnaðar, auk þess sem lögð er rík áhersla á öryggi, áhættumat og góða ákvarðanatöku við breytilegar og krefjandi aðstæður.

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir:

• Leiðarval í vetraraðstæðum og fjalllendi
• Túlkun veðurspáa og korta
• Næringu, orkubúskap og nesti í göngu- og fjallaferðum
• Klæðnað og nauðsynlegan búnað að vetrarlagi
• Beitingu ísaxar í bratta og hina mikilvægu ísaxarbremsu 
• Tækni við að ganga á jöklabroddum við mismunandi aðstæður
• Ganga í línu 
• Mat á snjóflóðaaðstæðum

Dagskrá

Mánudagur 16. mars: Fræðslufundur á netinu
Miðvikudagur 18. mars: Verkleg æfing í fjalllendi

 

Leiðbeinendur Ferðasetursins búa yfir víðtækri reynslu og óbilandi eldmóði fyrir útivist allt árið um kring. Þau hlakka mikið til að hitta ykkur og deila því sem þau elska mest – að vera utandyra í allri sinni mynd.

Farþegar koma sér sjálfir á upphafsstað á einkabílum. 

A.T.H að í þessari göngu þarf jöklabrodda, belti með læstri karabínu og ísöxi (hægt að fá leigt).

Lágmarks fjöldi er 10 

 

Fararstjórn: Gunnar Ingi Halldórsson

Verð 12.900 kr.*

*Innifalið: Fræðslufundur og leiðsögn 

bottom of page