UPPSELT Fjallasæla 2024
Fjallasæla er gönguhópur fyrir þau sem vilja gera útivist að lífsstíl og halda sér í góðu fjallgöngu formi allt árið. Markmiðið er að hafa gaman á fjöllum, njóta íslenskrar náttúru í skemmtilegum hópi og kynnast nýjum og fjölbreyttum gönguleiðum. Gönguhópurinn er ætlaður þeim sem hafa REYNSLU af fjallgöngum og eru í ÁGÆTIS formi.
Gengið er annan hvern laugardag fyrir utan páska- og sumarfrí. Verkefnið saman stendur af 22 helgargöngum yfir allt árið og þar af tveimur helgarferðum. Þátttakendur koma sér sjálfir að upphafsstað göngu en hópurinn sameinast oftast í bíla. Þátttakendur fá frítt í æfingagöngur á miðvikudögum sem Ferðasetrið auglýsir. Því miður er ekki hægt að kaupa stakar göngur.
Fararstjórn: Fararstýrur og fararstjórar Ferðasetursins
Verð 99.900 kr
Dagskrá 2024:
13.01 Brattafell 8 km/400 m
27.01 Kjölur 10 km/500
10.02 Reykjafell, Reykjaborg og Þverfell 9 km/400 m
24.02 Geitafell 11 km/500 m
09.03 Vörðufell 10 km/600 m
PÁSKAFRÍ
06.04 Dagmálafell 8 km/ 500 m
20.04 Hestfjall 8 km/200 m
04.05 Vikrafell 7 km/700 m
25.05 Elliðatindur 13 km/1000 m
01.06 Lómagnúpur 20 km/1400 m
15.06 Hvalfell og Glymur 10 km/850 m
Júní Miðnætur Sumarsólstöðuganga yfir Fimmvörðuháls*
SUMARFRÍ
16-18.08 Snæfell (1833 m) hæsta fjall utan jökla 13 km/ 1000 m. Múlagljúfur 5,5 km/350 m**
07.09 Uppgönguhryggur Landmannalaugum 17 km/700 m
21.09 Hafursfell 9 km/900 m
05.10 Tröllatindar og Hólsfjall 11,5 km/980 m
19.10 Þyrill 8 km/400
02.11 Þúfufjall 8 km/400 m
16.11 Hraunsnefsöxl 7 km/400 m
30.11 Herdísarvíkurfjall 9 km/400 m og jólagleði***
*Gisting, grillveisla og akstur greiðist sér
**Gisting og akstur greiðist sér. Í þessa ferð þarf jöklabrodda og exi.
***Jólagleði - matur greiðist sér
***Ferðasetrið áskilur sér rétt að breyta ferð vegna veðurs