top of page
IMG_7468_edited.jpg

Þingvellir á ferðaskíðum 7. febrúar 2026

Þingvellir á ferðaskíðum

Upplifðu Þingvelli á annan og rólegri hátt – á ferðaskíðum um eitt sögufrægasta og fallegasta svæði landsins. Þessi dagsferð hentar þeim sem vilja njóta vetrarnáttúrunnar og kyrrðarinnar í einstöku umhverfi.

 

Við ferðumst um fjölbreytt landslag með útsýni yfir hraun, vatn og fjöll. Ferðin er í hægum og notalegum takti þar sem lögð er áhersla á upplifun, öryggi og ánægju þátttakenda. Stoppað verður reglulega til að njóta, fá sér nesti og taka inn fegurð vetrarríkisins.

Ferðin hentar bæði byrjendum og lengra komnum

Farþegar koma sér sjálfir á upphafsstað á einkabílum. 

A.T.H að á þessu námskeið þarf ferðaskíði (hægt að fá leigt).

Lágmarks fjöldi er 10 

 

Fararstjórn: Gunnar Ingi Halldórsson

Verð 9.900 kr.*

*Innifalið: Leiðsögn 

bottom of page