top of page
IMG_1631_edited.jpg

Madeira “Havaí” Evrópu – Að endurvekja lífskraftinn með jóga og göngum

16. september 2025
8 dagar
frá 399.000 kr

Madeira perla Atlantshafsins er ein af vinsælustu áfangastöðum í Evrópu. Þar finna allir eitthvað við sitt hæfi og mjög auðvelt er að blanda saman afslöppun, menningu, göngum og jóga. Eyjan tilheyrir Portúgal og hluti þess er á heimsminjaskrá UNESCO. Hún er þekkt fyrir mikla náttúrufegurð og milt loftslag allt árið. Gróskumikil fjöll, suðræn náttúra, háir kletta og oddhvassir tindar. Þrátt fyrir að vera lítil eyja, býður Madeira upp á fjöldann allan af dáleiðandi náttúruperlum. Funchal höfuðborgin er uppfull af sögu og menningu eyjarinnar, þar sem gamalt blandast nýju.

Hugarsetrið og Hugarþol í samstarfi við Ferðasetrið ætla að endurvekja lífskraftinn í þessari kvennaferð.  Ferðin er sambland af fræðslu, jóga og göngum. Í ferðinni þá kenna þær Edith og Kolla námskeiðið: Að endurvekja lífskraftinn, hægt að lesa hér.

Einnig verður námskeiðið Hugarró og slökun kennt í ferðinni. Edith Gunnarsdóttir hjá Hugarsetrinu er með einu íslensku rannsóknina sem gerð hefur verið um áhrif jóga og jóga nidra á streitu, kvíða og þunglyndi. Hægt að lesa hér.

Markmiðið er að skapa djúpa slökun, innri ró og betri líðan með því að sameina öflugar aðferðir sem auðvelt er að yfirfæra á daglegt líf. Þátttakendur öðlast reynslu og valdeflandi verkfæri til að efla jákvæða heilsu og vellíðan, bæði til skamms og langs tíma. Í gegnum námskeiðið fá þátttakendur tækifæri til að:

• Læra aðferðir til að draga úr streitu og álagi í daglegu lífi

• Byggja upp innri ró og jafnvægi

• Upplifa verkfæri sem stuðla að betri líkamlegri og andlegri heilsu

Kennslan hentar öllum, óháð fyrri reynslu eða bakgrunni, sem vilja staldra við, endurheimta orku og öðlast nýjar leiðir til vellíðunar. Þessi ferð er frábært tækifæri til að stíga út úr hraða hversdagsins og tileinka sér hugleiðslu, jóga og slökun sem leiðir til meiri vellíðunar og vonar í lífinu. Hentar fyrir alla sem vilja auka vellíðan og jafnvægi.

Í þessari ferð er nánast allt innifalið. Gist verður á 5 stjörnu hóteli

Riu hótel:

  • Allt innifalið í mat og drykk 

  • Skemmtidagskrá 6 daga vikunnar

  • Líkamsræktarsalur

  • Gufubað

  • Tennisvöllur

  • Tvær útisundlaugar 

  • Upphituð Innisundlaug 

  • Frítt wifi

  • Spa og nudd gegn gjaldi

  • Frí rúta frá hóteli til Funchal kl.9.30/10.30/11.30

  • Frí rúta frá Funchal að hóteli kl.15/16/17

  • 10 km frá flugvelli

  • 13 km frá Funchal höfuðborginni

  • 2 km í næsta bæ

  • 50 m í strætóstöð

  • 10 m að sjó


Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 49.000 kr og er óendurkræft. Lokagreiðsla 350.000 þarf að greiða fyrir 16.7.2025. Hægt að skipta greiðslum niður. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is.

Lágmarksfjöldi 16, hámark 22

Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Kolbrún Magnúsdóttir

Verð: 399.000 kr​* 

*miðað við tvíbýlí, aukagjald vegna einbýli er 100.000 kr

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga og Kennarasamband Íslands veita styrki til félagsmanna sinna vegna námskeiða og ferða sem stuðla að sjálfstyrkingu. 

Innifalið í verði:

  • Flug til Madeira

  • 1x 10 kg handfarangur og 1x 20 kg innrituð taska

  • Akstur til og frá flugvelli að hóteli 

  • Gisting í 7 nætur á 5 stjörnu lúxushóteli þar sem allt er innifalið í mat og drykk

  • Námskeiðið: Að Endurvekja Lífskraftinn (verðmæti 99.900 kr.)

  • Námskeiðið: Hugarró og slökun (verðmæti 69.900)

  • Jóga, hugleiðslur og öndunaræfingar

  • 2 gönguferðir

  • 2 fararstjórar

Ekki innifalið í verði:

  • Ferða-, slysa- og farangurstrygging

  • Forfallatrygging

  • Skoðunarferðir (hægt að fara í margar skoðurnarferðir um eyjuna)

  • Þjórfé

Dagskrá:

Dagur 1. Þriðjudagur 16. september. Ferðadagur

Ferðadagur, flug frá Íslandi til Madeira kl. 9. Lendum í Madeira kl. 13:55. Akstur á hótel og frjáls dagur

Innifalið: Akstur, allur matur og drykkir á hóteli

Dagur 2. Miðvikudagur 17. september. Jóga og námskeið

Byrjum daginn á léttum yin jóga teygjum fyrir morgunmat. Morgunmatur. Námskeiðið: Að endurvekja lífskraftinn. Hádegismatur og jóga nidra. Frjáls dagur eftir kl.14

Innifalið: Jóga, gisting, matur og drykkir á hóteli

Dagur 3. Fimmtudagur 18. september. Jóga og gönguferð

Byrjum daginn á léttum yin jóga teygjum fyrir morgunmat. Morgunmatur. Létt ganga með fræðslu, hugleiðslu og jóga. Frjáls dagur eftir kl.14

Innifalið: Jóga, gönguferð, gisting, matur og drykkir á hóteli

Dagur 4. Föstudagur 19. september. Frjáls dagur

Tilvalið að skoða eyjuna

Innifalið: Gisting, matur og drykkir á hóteli

Dagur 5. Laugardagur 20. september. Jóga og námskeið

Byrjum daginn á léttum yin jóga teygjum fyrir morgunmat. Morgunmatur. Námskeiðið: Að endurvekja lífskraftinn. Hádegismatur og jóga nidra. Frjáls dagur eftir kl.14

Innifalið: Jóga, gisting, matur og drykkir á hóteli

Dagur 6. Sunnudagur 21. september. Jóga og gönguferð

Byrjum daginn á léttum yin jóga teygjum fyrir morgunmat. Morgunmatur. Létt ganga með fræðslu, hugleiðslu og jóga. Frjáls dagur eftir kl.14

Innifalið: Jóga, gönguferð, gisting, matur og drykkir á hóteli

Dagur 7. Mánudagur 22. september. Frjáls dagur

Tilvalið að skoða eyjuna

Innifalið: Jóga, gisting, matur og drykkir á hóteli 

Dagur 8. Þriðjudagur 23. september. Ferðadagur

Frjáls dagur til hádegis. Ferðadagur, flug frá Madeira til Ísland kl. 14:55. Lendum á Íslandi kl. 20:20. 

Innifalið: Matur og drykkir á hóteli og akstur á flugvöll

bottom of page