
Laugardagsfjör - Þegar viðrar vel til fjalla
Gönguhópur fyrir þau sem hafa reynslu af fjallgöngum
Laugardagsfjör er gönguhópur sem gengur einn laugardag í hverjum mánuði og ein helgarferð í ágúst. ÞAÐ VERÐUR BARA GENGIÐ ÞEGAR VIÐRAR VEL TIL FJALLA og við veljum besta svæðið til göngu eftir veðurspá.
Markmiðið er að hafa gaman á fjöllum í lengri göngum á laugardögum, njóta íslenskrar náttúru í skemmtilegum hópi þegar spáin er góð.
Þær gönguleiðir sem koma til greina í þessu verkefni eru:
Baula - Bláfell á Kili - Blikdalur - Botnsúlur - Esjudalir - Eiríksjökull* - Hekla - Hvannárgil* - Hróarstindur - Hrútafjöll - Högnhöfði - Jósepsdalur - Kálfstindar - Kristínartindar - Mýrdalshlaup gönguleið - Ólafsskarðsvegur - Skeggi - Skessuhorn - Skjaldbreiður - Snæfellsjökull - Sólheimajökull
Þær helgarferðir sem koma til greina í þessu verkefni eru:
Dyrfjöll/Stórurð Borgarfirði Eystra, Snæfell, Vonarskarð/Nýidalur eða Þakgil
*Þessar ferðir verða með rútu sem greiðist sér
**Gisting í helgarferð greiðist sér
Verkefni stendur yfir í 12 mánuði frá september 2024 til ágúst 2025, samtals 10 laugardagsgöngur og ein helgarferð 15 - 17. ágúst. Það er gengið annan laugardag í hverjum mánuði og byrja göngurnar kl. 9 eða 10. Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað göngu, en hópurinn hittist alltaf fyrir göngurnar, sameinast í bíla og keyra í samfloti. Gönguhópurinn er ætlaður þeim sem hafa reynslu af fjallgöngum.
Fararstjórn: Fararstjórar Ferðasetursins
Dagsetningar:
Laugardagur 14.09 2024 - Skjaldbreið
Laugardagur 12.10 2024 - Hekla
Laugardagur 09.11 2024 - Flekkudalshringur
Laugardagur 07.12 2024 - Ólafsskarðsvegur
Laugardagur 11.01 2025 - Laugarvatnsfjall
Laugardagur 01.02 2025 - Hrútafjöll
Laugardagur 01.03 2025 - Vestursúla
Laugardagur 12.04 2025 - Kinnar- Axar og Tunguhyrna
Laugardagur 03.05 2025 - Móskarðshnúkar - Kjós
Laugardagur 14.06 2025
Helgi 15 - 17 ágúst 2025**
*Ferðasetrið áskilur sér rétt að breyta ferð vegna veðurs
**Gisting greiðist sér