
Lúxusferð um Dólómítana 2025
Lúxusferð í Dólómítana er einstök upplifun þar sem náttúrufegurðin sameinar stórbrotnar fjallakeðjur, fallega dali og ævintýraleg þorp. Dólómítarnir eru hluti af Ítölsku Ölpunum og eru frægir fyrir klettatinda sem rísa upp eins og virkisveggir í öllum sínum tignarlegu dýrð. Svæðið býður upp á ótal gönguleiðir sem henta bæði byrjendum og lengra komnum, þar sem hver leið býður upp á ógleymanlegt útsýni yfir grænbláa vötn, gróin engi og tinda sem teygja sig upp í himininn.
Fyrir náttúruunnendur er Dólómítasvæðið paradís þar sem hver árstíð hefur sitt einstaka aðdráttarafl. Á sumrin er hægt að ganga um grasi vaxna dali, synda í fjallavötnum eða hjóla í gegnum litríka sveitaþorp. Veturnir bjóða upp á tækifæri til að stunda skíði í frægum skíðasvæðum eins og Cortina d’Ampezzo, sem einnig er þekkt fyrir glæsilega sögu sína sem gestgjafi Vetrarólympíuleikanna.
Þorpin í Dólómítunum, með sínar hefðbundnu ítölsku byggingar og blómaskreyttu svalir, gefa ferðinni heillandi bragð. Að upplifa staðbundna menningu og matargerð – eins og heimabakaða pasta, gnocchi, polenta og staðbundin osta – er ómissandi hluti af ferðinni.
Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson
Innifalið í verði:
-
Undirbúningsfundur
-
Akstur til og frá flugvelli að hóteli
-
Gisting í 4 nætur á 3ja stjörnu hóteli í Chamonix með morgunmat
-
Gisting í 2 nætur á 3ja og 4ra stjörnu hóteli í Les Contamines og Courmayeur með morgumat
-
Gisting 1 nótt í fjallaskála með morgunmat og kvöldmat
-
Aðgangur í alla kláfa
-
Aðgangur í allar strætóferðir
-
Aðgangur í 5 stjörnu Spa, léttar veitingar og drykkur
-
Trúss á farangri milli gististaða
-
Akstur frá Courmayeur til Chamonix
-
Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið í verði:
-
Flug til Genf - Ferðasetrið á bókað flug með Icelandair
-
Forfallatrygging
-
Farangurs-, ferða og slysatrygging
-
Allur annar matur sem er ekki talinn upp og nesti á göngudögum.
Dagskrá
Dagur 1 - 23.7 - Ferðadagur flug frá Íslandi til Genf
Við lendum í Genf um hádegið. Erum sótt á flugvöllin og keyrð á hótel í Chamonix.
Frjáls dagur.
Innifalið: Akstur og hótelgisting
Dagur 2 - 24.7 - Chamonix - Le Brévent - Le Blanc - Chamonix
Eftir morgunmat förum við í Kláf alveg upp á Le Brévent (2526m), drekkum í okkur óviðjafnanlegt útsýni Mont Blanc. Göngum þaðan eftir hlíðum Chamonix yfir að fallegustu vötnum Alpana, Lac Blanc og Lac Chesery. Göngum að Refuge la Flégére og töku kláfinn niður.
Gönguvegalengd:17 km
Gönguhækkun: 850 m
Göngutími: 8 klst
Innifalið: Gisting á hóteli, kláfur og leiðsögn
Dagur 3 - 25.7 -
Eftir morgunmat tökum við stræto til Les Houches og tökum Bellevue kláfinn upp í 1800 metra. Göngum þaðan upp í Fjallaskarðið col de Tricot (2120 m) og niður til Les Contamines.
Gönguvegalengd: 13 km
Göngnuhækkun: 700 metrar hækkun
Göngutími: 8 klst
Innifalið: Gisting á hóteli, strætó, kláfur og leiðsögn
Dagur 4 - 26.7 Les Contamines - Les Chapieux
Eftir morgunmat göngum við til enda Montjoie dalsins til Les Chapieux dalsins. Þetta er langur dagur þar sem við göngum yfir tvö fjallaskörð, Col du Bonhomme (2329 m) og Col du Croix du Bonhomme (2443 m) áður en við göngum niður í síma- og netsambandsleysi í Chapieux. Ein fallegasta gönguleiðin á hringnum með stórbrotnu útsýni.
Gönguvegalend: 19 km
Gönguhækkun: 1400 m
Göngutími: 9 klst
Innifalið: Gisting á fjallahóteli, kvöldmatur og leiðsögn
Dagur 5 - 27.7 - Les Chapieux - Combal
Eftir morgunmat, tökum við strætó í næsta þorp, Ville des Glacier þar sem við byrjum göngu upp í fjallaskarðið Col de la Seigne (2516 m)sem er á landamærum Frakkaland og Ítalíu. Þegar á toppinn er komið er verðlaunin, einstaklega fallegt útsýni yfir Mont Blanc og Aiguille Noire. Við göngum niður dalinn og tökum hádegismat í Rifugio Elisabette. Göngum síðan áfram niður dalinn og gistum í fjallaskálanum Combal
Gönguvegalengd: 15 km
Gönguhækkun: 1000 m
Göngutími: 7 klst
Innifalið: Gisting í skála, morgunmatur, strætó, kvöldmaturog leiðsögn
Dagur 6 - 28.7 Combal - Courmayeur - Chamonix
Eftir morgunmat göngum við frá Combal niður í Courmayeur þar sem við tökum hádegismat. Eftir hádegismat göngum við í gegnum lerkiskóglendi þar til við komum upp að Refuge Bertoni (1989 m) þar opnast eitt fallega útsýni á þessum gönguhring með Mont Blanc og Grands Jorasses beint fyrir ofan dalinn Val Ferret. Við göngum eftir hlíðinni að Bonatti skálanum (2025 m) áður en við hefjum niðurgöngu þar sem við erum sótt og keyrð aftur til Chamonix í gegnum Mont Blanc fjallið.
Gönguvegalengd: 19 km
Gönguhækkun: 1000 m
Göngutími: 9 klst
Innifalið: Gisting á hóteli, akstur og leiðsögn
Dagur 7 - 29.7 - Chamonix
Við ætlum að njóta á 5 stjörnu spa sem er á 3 hæðum og síðan er frjáls dagur í Chamonix. Lokakvöldverður
Innifalið: Gisting á hóteli, aðgangur að spa, léttar veitingar og drykkur.
Dagur 8 - 30.7 - Ferðadagur
Eftir morgunmat pökkum við saman fyrir heimför. Akstur á flugvöll í Genf. Flug til Keflavíkur kl. 14.00.
Innifalið: Gisting á hóteli og akstur