top of page
IMG_1811[2094].jpg

Lúxus á Víknaslóðum 12-15.7.2026

13. júlí 2024
4 dagar
129.000 kr

Víknaslóðir eru eitt af sannkölluðum náttúruperlum Austfjarða – þar sem fjöll, firðir og víkur mynda óviðjafnanlegt landslag. Gönguleiðin liggur um svæði sem áður var byggt, þar sem bændur og sjómenn lifðu og störfuðu, en nú ríkir kyrrðin og fuglasöngurinn einn.

 

Leiðin liggur frá Borgarfirði eystri og yfir í víkurnar austan megin, meðal annars Húsavík, Breiðuvík og Loðmundarfjörð. Á göngunni opnast hver sjónarhornið á fætur öðru – djúpbláar víkur, græn móa, há fjöll og mjúkir dalir. Hér má finna leifar af gömlum bæjum, fjárgötum og sögulegum minjum sem segja frá harðbýlu lífi fyrri tíma.

 

Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar og það verður í boði að ganga upp á Hvítserk á leið yfir í Húsavík.

Á leiðinni gefst tækifæri til að fylgjast með ríku fuglalífi, njóta kyrrðarinnar og upplifa hið einstaka samband manns og náttúru sem einkennir þetta svæði. Víknaslóðir eru staður þar sem tíminn hægir á sér, og maður nær að vera algerlega til staðar í núinu.

Þetta er ferð með trússi, gistingu í skála, morgun- og kvöldverður og grillveislu seinasta kvöldið. Þátttakendur þurfa aðeins að bera dagspoka með vökva og nesti, allt annað er trússað á milli skála.

Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 29.000 kr og er óendurkræft. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Í þessa ferð þarf lágmark 20 manns hámark 26 manns

Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson

Verð: 129.000 kr

Innifalið

  • Undirbúningsfundur

  • Trúss á farangri

  • 4 göngudagar

  • Gisting í 3 nætur í skála

  • 3 morgunverðir

  • 2 kvöldverðir

  • Grillveisla

  • Kaffi, te, mjólk og kakó

  • 2 Fararstjórar

Ekki innifalið

  • Gisting fyrir og eftir göngu

  • Akstur Austur

  • Nesti í göngum

  • Forfallatrygging

  • Ferða og slysatrygging

        Dagskrá

Dagur 1 - 12. júlí 2026

Hópurinn hittist á Borgarfirði Eystra. Gott að vera komin 11. júlí, flott tjaldsvæði á staðnum. Gengið frá Borgarfirði Eystra í Breiðuvík

Gönguvegalengd: 12,5 km og tekur um 6 klst

Innifalið: Trúss á farangri, gisting í skála, morgun- og kvöldmatur

Dagur 2 - 13. júlí 2026

Gengið frá Breiðuvík í Húsavík. Ef veður leyfir þá verður í boði að ganga upp á Hvítserk á leið í Húsavík

Gönguvegalengd: 11 km  og tekur um 7-8 klst

Innifalið: Trúss á farangri, gisting í skála, morgun- og kvöldmatur 

Dagur 3 - 14. júlí 2026

Gengið frá Húsavík í Loðmundarfjörð. Grillveisla um kvöldið

Gönguvegalengd 13 km, 800 metrar hækkun og tekur um 8 klst

Innifalið: Trúss á farangri, gisting í skála, morgunmatur og grillveisla

Dagur 4 - 15. júlí 2026

Gengið frá Loðmundarfirði yfir Kækjuskörðin og niður í Borgarfjörð Eystra.

Gönguvegalend 14 km tekur um 7 klst

Innifalið: Trúss á farangri, gisting í skála og morgunmatur

bottom of page