top of page
eyJidWNrZXQiOiAicnV2LXByb2QtcnV2aXMtcHVibGljIiwgImtleSI6ICJtZWRpYS9wdWJsaWMvb3JpZ2luYWxfaW

Strandir: Lúxus jóga og gönguferð

Skoða:

Strandir búa yfir kynngimagnaðri orku, dulúð, stórkostlegri náttúru og fegurðin er sem töfrum líkast. Allir koma alltaf endurnærðir heim eftir dvöl á Ströndum. 

Gist verður í 2ja manna herbergjum á Hótel Djúpavík með morgunmat og kvöldmat.

 

Gönguferð um Djúpavík, Glissu og Reykjaneshyrnu. Skoðum fossa í Ófeigsfirði og förum í Gong tónheilun í Ingólfsfirði. Í boði verður að fara í sund í Krossneslaug og sigling í Drangaskörð. Á hverjum morgni verður í boði að fara í sjósund og jóga í fjörunni ásamt jóga nidra djúpslökun í náttúrunni.

Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 29.000 kr og er óendurkræft. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Í þessa ferð þarf lámark 10 manns hámark 18 manns

Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir 

Verð: 129.000 kr

Innifalið í verði:

  • Undirbúningsfundur

  • Gisting í 2ja manna hótelherbergjum á hótel Djúpavík

  • Morgun- og kvöldmatur með eftirrétt

  • Sigling í Drangaskörð

  • Sýning í Síldarverksmiðju

  • Jóga

  • Sund

  • Leiðsögn

Ekki innifalið í verði:

  • Nesti á göngudögum

  • Forfallatrygging

  • Farangurs-, ferða og slysatrygging

Dagur 1. Fimmtudagur 15. ágúst 2024

Þátttakendur hittast á hótel Djúpavík. Jóga og göngur

Innifalið: Gisting á hóteli, kvöldmatur, jóga og leiðsögn

IMG_0071.JPG

Dagskrá:

Dagur 2. Föstudagur 16. ágúst 2024

Jóga og sjósund í morgunsárið. Eftir morgunmat keyrum við í Ófeigsfjörð, göngur og jóga

Innifalið: Gisting á hóteli, morgun- og kvöldmatur, sigling, sund og leiðsögn

IMG_0162.jpg

Dagur 3. Laugardagur 17. ágúst 2024

Jóga og sjósund í morgunsárið. Eftir morgunmat jóga og göngur. Sýning í Síldarverksmiðjunni

Innifalið: Gisting á hóteli, morgun- og kvöldmatur, eftirrétur, jóga, aðgangur að sýningu og leiðsögn

IMG_9958.jpg

Dagur 4. Sunnudagur 19. ágúst 2024

Jóga og sjósund í morgunsárið. Eftir morgunmat jóga og göngur. Hádegismatur fyrir heimför

Innifalið: Gisting á hóteli, morgun- og hádegismatur, jóga og leiðsögn

IMG_2015_edited.jpg
bottom of page