top of page
IMG_7479_edited.jpg

Ferðaskíði - Námskeið 8-14. janúar 2026

Ferðaskíði námskeið

Ferðaskíðanámskeið Ferðasetursins er hannað fyrir þá sem vilja byggja upp öryggi, færni og sjálfstæði í ferðaskíðamennsku. Námskeiðið sameinar fræðslu og æfingar – leitt af leiðsögufólki með margra ára þjálfun og útivistarreynslu.

Fræðslufundur – undirbúningur og grunnur

Námskeiðið hefst á fræðslufundi þar sem farið er yfir öryggismál, búnað, aðferðafræði og undirbúning fyrir vetrarferðir. Við ræðum skíðatækni, val á leiðum, veður, búnað og hvernig best er að tryggja öryggi í breytilegu vetrarumhverfi. Markmiðið er að þátttakendur mæti vel upplýstir og tilbúin í verklegar æfingar.

Laugardagur – tækni og aðlögun

Fyrsti verklegi dagurinn er helgaður æfingum og fræðslu. Við stillum búnað, förum yfir grunnþætti ferðaskíðunar og vinnum með uppgöngu- og niðurferðartækni á fjölbreyttu landslagi.
Þetta er dagurinn þar sem nemendur kynnast ferðaskíðunum, snjónum og eigin getu – með persónulegri leiðsögn og markvissri þjálfun.

Miðvikudagskvöld – endurtekning og dýpkun

Á miðvikudagskvöldi hittumst við aftur fyrir styttri æfingar. Þá er unnið með tæknina sem þátttakendur lærðu á laugardeginum, farið yfir atriði sem krefjast meiri æfingar og efla sjálfstraust í mismunandi aðstæðum.
Markmiðið er að styrkja færni og svara öllum spurningum sem hafa vaknað.

Dagskrá

Fimmtudaginn 8.1 kl.18: Fræðslufundur á netinu

Laugardaginn 10.1 kl.10: Verkleg æfing

Miðvikudaginn 14.1 kl.18: Verkleg æfing

Námskeiðið hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna.

 

Farþegar koma sér sjálfir á upphafsstað á einkabílum. 

A.T.H að á þessu námskeið þarf ferðaskíði (hægt að leigja)

Lágmarks fjöldi er 10 

 

Fararstjórn: Gunnar Ingi Halldórsson

Verð 12.900 kr.*

*Innifalið: Fræðslufundur og leiðsögn 

bottom of page