
Sansibar - Paradísareyjan í Indlandshafi
Ógleymanlegt ævintýri í hjarta Austur-Afríku
Sansibar paradísareyjan í Indlandshafi þar sem draumurinn um fullkomna slökun verður að veruleika. Þar eru þig hvítar strendur, glitrandi fagurblár sjór og suðrænir vindar sem umlykja þig. Auk þess er Sansibar rík af menningu og sögu, með litríka markaði, dásamlega matargerð og einstakt andrúmsloft. Það bjóðum við upp á einstaka dvöl á 5 stjörnu lúxus hóteli þar sem allt er innifalið fyrir fullkomið frí. Hótelið er staðsett á hinni heimsþekktu Nungwi-strönd, sem er á norðurhluta eyjunnar og þekkt fyrir einstaklega fallegar og hreinar strendur með glitrandi hvítum sandi og tærum, fagurbláum sjó. Hótelið býður upp á fjölbreytta upplifun, þar sem ókeypis sjósport og spennandi skemmtidagskrá eru í boði alla daga. Hvort sem þig langar að prófa paddle board, snorkla í tærum sjónum eða einfaldlega slaka á í sólbaði við ströndina, þá er allt til staðar til að gera dvölina ógleymanlega. Útsýni yfir hafið, framúrskarandi veitingastaðir og fjölbreyttir barir skapa fullkomna umgjörð fyrir draumafríið. Allt sem þú þarft er til staðar – frá afslöppun við sundlaugarbakkann til ævintýra á sjónum.
Sansibar er paradís fyrir þá sem elska fjölbreytt ævintýri og ógleymanlegar upplifanir. Á þessari töfrandi eyju er hægt að kafa í tærum sjónum við kóralrif og uppgötva heillandi undraheim neðansjávar. Fyrir þá sem vilja nánari tengingu við hafið er einstakt tækifæri til að synda með höfrungum eða skjaldbökum – upplifanir sem verða geymdar í hjarta þínu að eilífu.
Ef þig langar í spennandi afþreyingu er hægt að sigla um kristalbláan sjóinn, fara í para-gliding og njóta útsýnisins yfir eyjuna eða ríða á hestbaki með hafið í bakgrunni. Sansibar býður einnig upp á menningar- og náttúruskoðunarferðir sem eru ekki síður heillandi. Í höfuðstaðnum Stone Town, sem er skráður á heimsminjaskrá UNESCO, geturðu kynnst ríkri sögu eyjunnar. Skoðaðu hin heillandi þröngu stræti, heimsæktu Freddie Mercury safnið og lærðu um tónlistargoðsögnina sem fæddist á eyjunni. Fyrir þá sem elska náttúrufegurð er fiðrildabúgarðurinn tilvalinn staður til að dást að litríku fiðrildum í þeirra náttúrulega umhverfi. Þetta er aðeins brot af því sem Sansibar hefur upp á að bjóða – frá menningu og náttúru til ótrúlegrar afþreyingar. Eyjan er sannkölluð paradís fyrir þá sem vilja blanda saman spennu, fróðleik og afslöppun í draumaferð.
Ferðasetrið getur búið til hið fullkomna frí og þú ræður dagsetningunni og tímalengd.
Afþreying á Sansibar
-
Stone Town
-
The Rock
-
Prison Island
-
Pemba Island
-
Stórfenglegar strendur
-
Fiðrildabúðgarður
-
Siglingar
-
Hægt að synda með höfrungum
-
Falleg kóralrif
-
Hægt að kafa