
Fararstjóri
Skúli M. Júlísson
Skúli hefur stundað útivist frá unga aldri. Hann flutti frá Reykjavík til Egilsstaða árið 1987 og hefur búið þar allar götur síðan. „Ég sá hvað ég var kominn nálægt náttúrunni þegar ég kom austur og hugsaði að þarna vildi ég vera“.
Skúli hefur starfað við Fjallaleiðsögn frá árinu 2010 og stjórnaði um árabil fjallgönguklúbbnum Fjallhress sem fór reglulega á fjöll í fjórðungnum og víðar. Útskrifaðist úr Fjallamennskunámi FAS árið 2015 og hefur tekið fjölmörg námskeið tengd fjöllum og fjallamennsku. Hann skrifaði einnig gönguleiðabækurnar „101 Austurland – Tindar og toppar“ og „101 Austurland - Gönguleiðir fyrir alla“ en þær hafa fengið mjög góðar viðtökur.
Skúli er þekktur fyrir yfirvegun og rólegt yfirbragð sem fólki líkar almennt vel. Af ferðum erlendis hefur hann ferðast um Alpana, toppað Mt.Meru og Mt.Kilimanjaro í Tanzaníu ásamt leiðangri á Mt.Aconcagua í Argentínu. Skúli kann best við sig á fjöllum, í tjaldi eða á skíðum og helst öllu þrennu saman. Uppáhalds fjöll Skúla eru Dyrfjöllin og að sjálfsögðu Snæfellið.