
Fararstjóri
Sara Björg Pétursdóttir
Sara ólst upp við útivist og veiði og eyddi öllum sumrum í sveit fyrir norðan sem og í sumarbústað ömmu sinnar og afa við Þingvallavatn. Sem barn safnaði hún hnýttum flugum og þar kviknaði snemma áhugi á náttúru, fjöllum og ævintýrum.
Sara lauk fjallamennskunámi hjá FAS og útskrifaðist með AIMG-réttindi í jökla- og fjallaleiðsögn. Hún hefur sérstaklega gaman af klifri, bæði kletta- og ísklifri, og er einnig mikill hlaupaáhugamaður. Hún tekur reglulega þátt í keppnishlaupum, aðallega utanvega.
Undanfarin ár hefur Sara starfað við fjallaleiðsögn og hún elskar allar tegundir fjallamennsku, þó hún hafi sérstakt dálæti á vetrarfjallamennsku og jöklatímabilunum á vorin.
Þar fyrir utan er hún lærður ÍAK-einkaþjálfari og með landvarðarréttindi.
Samhliða fjallamennskunni starfar hún í fullu starfi sem hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.