
Fjallasæla vor 2027
Fjallasæla - gönguhópur ætlaður fólki sem vill njóta en ekki þjóta og hafa gaman á fjöllum!
Vorið 2027 göngum við fjölbreyttar og skemmtilegar gönguleiðir á Reykjanesi og í Hvalfirði. Svæðin bjóða upp á ólíka náttúru og margt að uppgötva, allt frá víðáttumiklum hraunbreiðum og sérkennilegum móbergsfjöllum til gróinna dala og fjalla með fallegu útsýni yfir fjörðinn.
Á Reykjanesi kynnumst við hrjóstrugri fegurð skagans, göngum um eldfjallalandslag og njótum útsýnis til fjalla og sjávar. Í Hvalfirði taka við fjallshlíðar, gil og dalir þar sem við fylgjumst með náttúrunni vakna til lífsins eftir veturinn.
Við njótum vorsins í góðum félagsskap, eflum gönguþolið og kynnumst bæði þekktum leiðum og minna förnum slóðum. Við förum líka í eina óvissuferð, slökum á í heitum böðum og út að borða.
Fjallasælu lýkur með helgarferð um hvítasunnuhelgina. Við látum veðurspána ráða för og veljum þann stað þar sem best viðrar til gönguferða – Snæfellsnes, Vík í Mýrdal eða Vestmannaeyjar. Helgarferðin verður kynnt nánar fyrir þeim sem eru skráðir í hópinn.
Fjallasæla gönguhópur fyrir þau sem vilja gera útivist að lífsstíl og halda sér í góðu fjallgönguformi. Markmiðið er að njóta íslenskrar náttúru, upplifa fjallasæluna í góðum félagsskap og kynnast nýjum, fjölbreyttum gönguleiðum víðs vegar um landið.
Hópurinn er ætlaður fólki sem hefur reynslu af fjallgöngum og er í ágætis formi.
Við göngum annan hvern miðvikudag og annan hvern laugardag í sömu viku – og tökum frí hina vikuna.
Fjallasæla sameinar áskorun, samveru og náttúrufegurð – því það er fátt sem gleður eins og dagur á fjöllum í góðum hópi.
Gengið er annan hvern miðvikudaga og annan hvern laugardag í sömu viku og frí hina. Miðvikudagsgöngurnar byrja kl.18 og helgargöngunar kl.9/10. Þátttakendur koma sér sjálfir á upphafsstað göngu en það er alltaf í boðið að keyra í samfloti og sameinast í bíla.
Fyrsta ganga hópsins er kynningarganga laugardaginn 9. janúar 2027 kl.10, hægt að sjá viðburð hér. Síðan byrjar verkefnið á laugardaginn 6. febrúar kl.10
Fjallasæluhópurinn okkar fer einnig í jöklaferðir og ferðir erlendis, en þær ferðir eru auglýstar sér og einungis fyrir gönguhópinn og með afslætti!
Gönguhópurinn er með FB hóp þar sem búin er til viðburður með öllum helstu upplýsingum. Ef veðrið er ekki hagstætt á laugardegi þá kemur til greina að færa gönguna yfir á sunnudag eða helgina þar á eftir eða breyta um staðsetningu. Við veljum svæði/fjöll eftir veðri. Þau fjöll sem koma til greina þessa önnina verða:
Miðvikudagsgöngur: Arnarfell og Bæjarfell, Brautarholtsborg, Glymur, Hattur og Hetta, Írafell og Hádegisfell, Keilir, Meðalfell, Sandfell, Stórhöfði og Þorbjörn
Laugardagsgöngur: Óvissuferð, 100 Gíga leiðin, 3ja tinda ganga um Sveifluháls, Bollafell, Esjuhorn, Eyrarfjall, Prestastigur, Reynivallaháls og Kirkjustígur, Tindstaðahnúkur, Trölladyngja og Grænadyngja
Helgarferð: Snæfellsnes eða Vík í Mýrdal eða Vestmannaeyjar
Dagsetningar:
Janúar: Laugardagurinn 9
Febrúar: Miðvikudagurinn 17. Laugardagurinn 6 og 20
Mars: Miðvikudagurinn 3, 17 og 31. Laugardagurinn 6 og 20
Apríl: Miðvikudagurinn 14 og 28. Laugardagurinn 3 og 17
Maí: Miðvikudagurinn 12.5. Laugardagurinn 1.5. Helgarferð 15-16
Verð: 69.900
15% afsláttur er veittur af seinna gjaldinu fyrir fjölskyldumeðlim með lögheimili á sama stað
15% afsláttur er veittur til elli- og örorkulífeyrisþega
Hægt að skipta greiðslum vaxtalaust í 3 mánuði. Flest stéttarfélög taka þátt í kostnaði
Fararstjórn: Edith Gunnars, Elinas Jackson, Stefán Guðleifsson og Gunnar Ingi Halldórsson









