top of page
469678649_574925662132565_2856247318656904038_n_edited.jpg

Perlur Dólómítanna og Gardavatn - létt gönguferð 7 - 14. júlí 2026 

7. júlí 2026
8 dagar
 kr 499.000

Ógleymanlega ferð um fallegustu svæði Dólómítana, þar sem stórbrotin náttúrufegurð sameinar fjallaskörð, dali og ævintýraleg þorp í óviðjafnanlegri upplifun. Dólómítarnir, sem eru hluti af ítölsku Ölpunum, eru þekktir fyrir sína tignarlegu klettatinda sem rísa hátt eins og virkisveggir og skapa ótrúlega sjón í öllum sínum dýrð.

Í þessari ferð heimsækjum við helstu kennileiti Dólómítana og njótum fallegra MJÖG léttra gönguleiða  og kláfa sem henta öllum. Hver leið opnar dyr að ógleymanlegu útsýni yfir grænblá vötn, blómleg engi og háreista tinda sem teygja sig upp í himininn.

Þessi ferð er fullkomin fyrir þau sem vilja njóta einstakra fegurðar Dólómítana, þar sem gönguleiðirnar eru ekki of erfiðar, hámark 3-7 km, ekki mikil hækkun en bjóða upp á stórkostlegt útsýni. Í þessari ferð er oftast hægt að nota kláf og stytta sér leið og við erum með rútu með okkur í ferðunum.

Í lok ferðar er farið á glæsilegt hótel við Gardavatnið. Hótelið er með spa, líkamsrækt, sundlaugum, framúrskarandi veitingastöðum og einstöku umhverfi þar sem fjallgarðar umlykja vatnið.​

 

Gisting er 3 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Ortisei með spa, í tvíbýli með morgunmat

Gisting er 2 nætur á 3ja stjörnu hóteli í Dobbiach með spa, í tvíbýli með morgunmat

Gisting er 2 nætur á 4ra stjörnu hóteli við Gardavatn með spa, í tvíbýli með morgunmat

 ​​

Láttu drauminn um Dólómítana rætast – komdu með okkur í þessa óviðjafnanlegu lúxusferð þar sem náttúrufegurð, afþreying og slökun sameinast í eina einstaka upplifun.

Hápunktur ferðarinnar:

  • Val Gardena

  • Stærsta háfjallaslétta Evrópu, Alpe di Siusi

  • Sassolungo 3.181, eitt af frægustu fjöllum Suður Týról

  • Cinque Torri, eitt helsta kennileiti Cortina

  • Úti stríðssafn frá fyrri heimstyrjöldinni

  • Tre Cime, helsta kennileiti Dólómítana

  • Lake Braise

  • Gardavatn

Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 49.000 kr. Lokagreiðsla þarf að greiða fyrir 7.5 2026. Hægt að skipta greiðslum niður. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Lágmarksfjöldi 16, hámark 24

Fararstjórn: Jóhanna Fríða Dalkvist og Stefán Guðleifsson

Verð:  499.000kr​ * *miðað við tvíbýli

aukagjald vegna einbýli er 99.000 kr

Innifalið í verði:

  • Undirbúningsfundur

  • Flug með Icelandair til Feneyja

  • 1x 10 kg handfarangur og 1x 23 kg innrituð taska 

  • Akstur til og frá flugvelli að hóteli með einkarútu

  • Akstur á milli hótela og upphafsstað göngu með einkarútu

  • Strætó í Ortisei

  • Aðgangur í alla kláfa

  • Gisting í 3 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Ortisei með morgunmat

  • Gisting í 2 nætur á 3ja stjörnu hóteli í Dobbiach með morgunmat

  • Gisting í 2 nætur á 4ra stjörnu hóteli við Gardavatn með morgunmat

  • Aðgangur að spa og sundlaugum á hóteli

  • 2 fararstjórar

Ekki innifalið í verði:

  • Ferða-, slysa- og farangurstrygging

  • Forfallatrygging

  • Hádegismatur, nesti, snarl og kvöldmatur

  • Drykkir

  • Þjórfé 

Dagskrá

Dagur 1. Þriðjudagur 7. júlí. Ferðadagur

Morgunflug til Feneyja kl.8.20.  Akstur til Ortisei Ítalíu með einkarútu. Frjáls dagur

Innifalið: Akstur og gisting á hóteli með morgunmat

Dagur 2. Miðvikudagur 8. júlí. Alpe di Siusi

Eftir morgunmat tökum við kláf upp á slétturnar. Skoðum okkur um þessa stærstu háfjallasléttu Evrópu sem býður upp á einstakt útsýni yfir fjallgarða og eitt frægasta fjall Suður Týról, Sassolungo. Tökum hádegismat í fjallaskála á svæðinu. Eftir hádegismatinn tökum við kláfa upp í Secda og skoðum okkur um. Einungis 15 mín gangur á milli kláfa.

Gönguvegalengd: 3-5 km, nánast engin upphækkun

Dagur 3. Fimmtudagur 9. júlí. Sassolungo

Eftir morgunmat tökum við strætó upp í Passo Sella 2.218 metra. Tökum kláf upp eitt frægasta fjall Suður Týról, Sassolungo. Einstaklega fallegt útsýni yfir nálægt svæði og stærstu háfjallasléttu Evrópu Alpe di Siusi. Tökum hádegismat í fjallaskála á svæðinu.

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, strætó og leiðsögn

Dagur 4. Föstudagur 10. júlí. Cinque Torri

Eftir morgunmat pökkum við saman og keyrum á næsta svæði. Tökum kláf upp í  Cinque Torri sem er eitt helsta kennileiti Cortina. Við göngum hring um úti stríðssafn frá fyrri heimstyrjöldinni sem er staðsett við Cinque Torri turnana. Við tökum hádegismat í fjallaskála á svæðinu. Göngum síðan niður þar sem rútan bíður eftir okkur. Eftir gönguna er akstur til Dobbiach þar sem við tékkum okkur inn á hótel

Gönguvegalengd: 5 km og engin hækkun

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, akstur og leiðsögn
 

Dagur 5. Laugardagur 11. júlí. Tre Cime

Eftir morgunmat er akstur upp í 2.333 m við Auronzo skálann sem er við Turnanna þrjá. Tre Cime di Lavaredo eða Þrír tindar Lavaredo eru ein þekktustu náttúruundur Alpanna og eitt helsta tákn Dólómítanna á Ítalíu. Þeir rísa skarpt upp úr landslaginu með sínum einkennandi formum: Cima Piccola. Cima Grande og Cima Ovest. Útsýnið á svæðinu er einstakt, víðsýni yfir Dólómítana sem UNESCO hefur skráð á heimsminjaskrá. Svæðið er ekki aðeins náttúrlegt undur heldur líka sögulegt, það var mikilvægt vígsvæði í fyrri heimstyrjöldinni og enn má sjá minjar frá þeim tíma.

Dagur 6. Sunnudagur 5. júlí. Lake Braise - Gardavatnið

Eftir morgunmat pökkum við saman og tékkum okkur út af hótelinu. Akstur að Lake Braise, stutt ganga um þetta himneska vatn. Að lokinni göngu er akstur á Gardavatn þar sem við tékkum okkur inn á glæsilegt hótel í Riva del Garda.​​

Gönguvegalengd: 5 km

Gönguhækkun: 50 m 

Göngutími: 2 klst

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, akstur og leiðsögn

Dagur 7. Mánudagur 6. júlí. Frjáls dagur við Gardavatnið

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat

Dagur 8. Þriðjudagur 7. júlí. Ferðadagur

Akstur á flugvöll til Feneyja. Flug kl. 16.10 til Íslands (lendum 8.7 kl. 1.15)

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat og akstur

bottom of page