
Fararstjóri
Stefán Guðleifsson
Stefán er einn sá allra hressasti sem fyrirfinnst og býr yfir einstakri hæfileika að tala við alla og gera ferðalagið skemmtilegra. Hann hefur ferðast um hálendi Íslands allt frá unga aldri, bæði bílandi og gangandi, og þekkir víðerni þess eins og lófan á sér. Hann hefur ótrúlega kunnáttu í örnefnum, þekkir fjöll, hóla og hæðir ásamt ríku samhengi við sögu þeirra svæða sem hann fer um.
Ævintýraþráin hefur einnig leitt hann út í heim og má þar nefna að hann hefur toppað bæði Mt. Meru 4.566 m og Kilimanjaro 5.895 m í Afríku.
Stefán á ekki aðeins mikla reynslu í ferðamennsku heldur hefur hann rekið bæði dansskóla og veitingaþjónustu – sem tryggir að hann kann svo sannarlega að skapa góða stemmningu og umhyggju fyrir hópnum.
Stefán er því algjörlega ómissandi í ferðunum okkar – skemmtilegur, fróður og alltaf tilbúinn í ný ævintýri!