
Safarí: Serengeti, Arusha, Tarangire og Ngorongoro
Sérferðir – safarí og Sansibar
Þín draumaferð, á þínum forsendum – aðeins tvo þarf til að leggja af stað.
Langar þig að upplifa dýralíf Tansaníu, njóta lífsins á Sansibar eða sameina hvort tveggja í eina ógleymanlega ferð? Ferðasetrið setur saman sérferð eftir þínum óskum, hvort sem þið ferðist sem par, með fjölskyldunni eða vinahópnum.
Safarí í Tansaníu
Veldu úr safaríferðum í Arusha-þjóðgarðinum, Tarangire, Serengeti og Ngorongoro. Við hjálpum þér að velja svæði og lengd ferðar og setjum saman dagskrá þar sem stórbrotin náttúra og villt dýralíf eru í aðalhlutverki.
Sólarparadísin Sansibar
Ljúktu safaríævintýrinu með afslöppun á Sansibar, eyjunni í Indlandshafi, eða láttu strandfríið vera ferðina sjálfa. Við bjóðum upp á gistingu á glæsilegu fimm stjörnu hóteli við Nungwi-ströndina, þar sem hvítur sandur og hlýr sjór skapa umgjörð fyrir ljúfa frídaga.
Safarí, Sansibar eða bæði? Þú velur – við setjum ferðina saman.
Sendu okkur tölvupóst með óskum um ferðatíma, fjölda ferðalanga og hvað þig langar að upplifa. Við hjálpum þér að móta ferðina og gerum þér tilboð.
Hafðu samband og fáðu tilboð í þína draumaferð.
























