
Gönguferð á Kilimanjaro og Mt. Meru
Sérferðir á Kilimanjaro og Mt. Meru
Þitt ævintýri – þinn ferðatími.
Dreymir þig um að standa á tindi Kilimanjaro eða ganga á hið stórbrotna Mt. Meru? Ferðasetrið skipuleggur sérferðir fyrir pör, vini og minni hópa sem vilja ferðast á eigin forsendum. Aðeins tvo þarf til að leggja af stað.
Veldu þá gönguleið sem heillar þig:
-
Kilimanjaro – norðurleið, 9 dagar. Fyrir þig sem vilt gefa ævintýrinu góðan tíma og njóta fjölbreyttrar náttúru á leið á hæsta tind Afríku.
-
Kilimanjaro – Machame-leið, 7 dagar. Heillandi fjallganga um ólíkt landslag, frá gróskumiklum regnskógi upp í háfjallaheim Kilimanjaro.
-
Mt. Meru, 4 dagar, og Kilimanjaro um Machame-leið, 6 dagar. Tvö stórbrotin fjöll í sömu ferð. Gangan á Mt. Meru er undirbúningur fyrir næsta áfanga: Kilimanjaro.
-
Mt. Meru, 5 dagar. Sjálfstætt fjallaævintýri í stórfenglegu umhverfi fyrir þig sem vilt upplifa annað af þekktustu fjöllum Tansaníu.
Fjöll, safarí eða strandlíf?
Þú getur bætt safaríferð við fjallgönguna eða endað ferðina með afslöppun á Sansibar. Við hjálpum þér að setja saman ferð sem hentar þínum óskum, tíma og markmiðum.
Sendu okkur tölvupóst með óskum um leið, ferðatíma og fjölda þátttakenda – og fáðu tilboð í þína sérferð.