top of page
Animal-Family_1480282913-scaled (1).jpg

Tansanía: Safarí og Sansibar

6. ágúst 2026
14 dagar
frá 559.000 kr

Uppselt er í ferðina en hægt að setja sig á biðlista!

Ógleymanlegt ævintýri í hjarta Austur-Afríku

Hvað ef þú gætir upplifað Afríku eins og heimamanneskja – en með öryggi og skipulagi sem Íslendingar treysta? Við hjá Ferðasetrinu bjóðum þér í einstaka tveggja vikna ferð þar sem þú færð bæði óspillta náttúru safarísléttanna og hvítar strendur Sansíbar – fullkomna blöndu ævintýra og slökunar.

Við byrjum ferðina á menningunni í hjarta Arusha með einstakri upplifun. Við hefjum daginn á skoðunarferð um miðbæinn þar sem þú færð innsýn í daglegt líf heimamanna og heimsækir líflegan markað fullan af litum, ilmi og stemningu.

 

Að því loknu höldum við í sérstaka upplifun sem nefnist „frá bónda í bolla“. Þar heimsækjum við 100% lífræna kaffirækt og kynnumst öllu ferlinu – allt frá ræktun baunanna, til þess þegar kaffi er borið fram í bolla. Þú færð að sjálfsögðu að smakka ferskt, ilmandi kaffi beint frá upprunanum. Ferðinni lýkur með ljúffengum hádegisverði að hætti heimamanna.

Fyrsta daginn í safaríferðinni byrjum við á hásléttum Arusha þjóðgarðsins, við rætur hins undurfagra Mount Meru. Með örstuttri göngu yfir gróðursælar sléttur þar sem við komumst í einstakt nálægð við villt dýr á þeirra eigin heimavelli. Gíraffar teygja sig í trjátoppana rétt við okkur. Buffalóar fylgjast grannt með úr fjarska. Apar leika sér í trjánum og kalla hver á annan og auðvitað mætum við Pumba – vinalega viskukollinum úr skóginum! Náttúran tekur á móti okkur með opnum örmum og þetta er aðeins byrjunin.

Annan daginn er keyrt í Tarangire þjóðgarðinn sem er paradís fyrir dýraunnendur. Þar er að finna einn stærsta fílastofn Austur Afríku og á þurrkatímanum safnast hundruðir fíla saman við Tarangire ána sem rennur í gegnum garðinn. Auk fíla má sjá ljón, hlébarða, gíraffa, sebrahesta og fjölda antilóputegunda, ásamt yfir 500 fuglategundum sem gera svæðið að sannkallaðri himnaríki fuglaáhugafólks.

Þriðja daginn í safaríferðinni förum við í Ngorongoro náttúruverndasvæði, sem er eitt af mögnuðustu náttúruundrum Afríku og á heimsminjaskrá UNESCO. Askjan sem myndaðist þegar risavaxið eldfjall hrundi fyrir þúsundum ára, er í dag heimili ótrúlega fjölbreytts dýralífs innan lokaðs vistkerfis. Innan öskjunar er að finna eitt þéttasta safarísvæði heims þar sem þú getur séð „stóru fimm“ – ljón, hlébarða, fíla, nashyrninga og buffala – allt á einum degi. Græn sléttlendi, vötn og skóglendi skapa fullkomnar aðstæður fyrir dýrin og gera hverja ferð einstaka.

Ngorongoro Conservation Area er einnig heimkynni Maasai people sem lifa í sátt við náttúruna og halda í aldagamlar hefðir. Það bætir við menningarlegri dýpt og gerir heimsóknina enn eftirminnilegri. Útsýnið niður í gíginn er einfaldlega stórkostlegt – víðáttan, litirnir og dýralífið skapa upplifun sem margir lýsa sem einni af hápunktum ferðar til Tansaníu.

Við heimsækjum Maasai-þorp þar sem heimamenn taka á móti þér með hlýju og leyfa þér að skyggnast inn í daglegt líf sitt. Þú færð að fræðast um siði, klæðnað, dans og lifnaðarhætti þeirra, og upplifa menningu sem er djúpt tengd náttúrunni.

 

Að lokinni heimsókn í þorpið höldum við áfram í listasafn þar sem afrísk list og handverk fá að njóta sín. Þar gefst þér kostur á að skoða fjölbreytt listaverk, allt frá hefðbundnum skúlptúrum til nútímalegrar listsköpunar, og kynnast sögunum sem liggja að baki hverju verki.

Þessi ferð er fullkomin blanda af menningu, fræðslu og upplifun sem gefur þér dýpri tengingu við landið og fólkið sem þar býr.

Ferðin endar á paradísareyjunni Sansibar, þar sem draumurinn um fullkomna slökun verður að veruleika. Þar eru hvítar strendur, glitrandi fagurblár sjór og suðrænir vindar sem umlykja þig. Auk þess er Sansibar rík af menningu og sögu, með litríka markaði, dásamlega matargerð og einstakt andrúmsloft. Þar bjóðum við upp á einstaka dvöl á lúxus hóteli þar sem allt er innifalið fyrir fullkomið frí. Hótelið er staðsett á hinni heimsþekktu Nungwi-strönd, sem er á norðurhluta eyjunnar og þekkt fyrir einstaklega fallegar og hreinar strendur með glitrandi hvítum sandi og tærum, fagurbláum sjó. Hótelið býður upp á fjölbreytta upplifun, þar sem ókeypis sjósport og spennandi skemmtidagskrá eru í boði alla daga. Hvort sem þig langar að prófa paddle board, snorkla í tærum sjónum eða einfaldlega slaka á í sólbaði við ströndina, þá er allt til staðar til að gera dvölina ógleymanlega. Útsýni yfir hafið, framúrskarandi veitingastaðir og fjölbreyttir barir skapa fullkomna umgjörð fyrir draumafríið. Allt sem þú þarft er til staðar – frá afslöppun við sundlaugarbakkann til ævintýra á sjónum. 

Sansibar er paradís fyrir þá sem elska fjölbreytt ævintýri og ógleymanlegar upplifanir. Á þessari töfrandi eyju er hægt að kafa í tærum sjónum við kóralrif og uppgötva heillandi undraheim neðansjávar. Fyrir þá sem vilja nánari tengingu við hafið er einstakt tækifæri til að synda með höfrungum eða skjaldbökum – upplifanir sem verða geymdar í hjarta þínu að eilífu.

Ef þig langar í spennandi afþreyingu er hægt að sigla um kristalbláan sjóinn, fara í para-gliding og njóta útsýnisins yfir eyjuna eða ríða á hestbaki með hafið í bakgrunni. Sansibar býður einnig upp á menningar- og náttúruskoðunarferðir sem eru ekki síður heillandi. Í höfuðborginni Stone Town, sem er skráð á heimsminjaskrá UNESCO, geturðu kynnst ríkri sögu eyjunnar. Skoðaðu hin heillandi þröngu stræti, heimsækja Freddie Mercury safnið og læra um tónlistargoðsögnina sem fæddist á eyjunni. Fyrir þá sem elska náttúrufegurð er fiðrildabúgarðurinn tilvalinn staður til að dást að litríku fiðrildum í þeirra náttúrulega umhverfi. Þetta er aðeins brot af því sem Sansibar hefur upp á að bjóða – frá menningu og náttúru til ótrúlegrar afþreyingar. Eyjan er sannkölluð paradís fyrir þá sem vilja blanda saman spennu, fróðleik og afslöppun í draumaferð.

 

Hótel í Arusha: https://planet-lodges.com/lodges/arusha-planet-lodge/

Hótel í safaríferð í Karatu: https://heartandsoullodge.com/

Hótel á Sansibar: https://riujambo.tz-zanzibar.com/en/

​​​

Þessi ferð er ekki aðeins upplifun heldur minning sem verður með þér að eilífu. Taktu skrefið inn í heim Tansaníu og Sansibar og upplifðu blöndu af spennu, friði og fegurð sem er ólýsanleg með orðum.. 

​​​

Hápunktur ferðarinnar

  • Arusha þjóðgarðurinn

  • Tarangire þjóðgarðurinn​

  • Ngorongoro náttúruverndarsvæði sem er á heimslista UNESCO

  • Stærsta askja heims

  • Villt dýr í sínu náttúrlega umhverfi

  • Menning Tansaníubúa

  • Massai ættbálkurinn

  • Markaðir heimamanna

  • Listagallerí

  • Matargerð sem kitlar bragðlaukana

  • Kaffiplantekra heimamanna 100% organic

  • Frá bónda í bolla - skoðunarferð

  • Paradísareyjan Sansibar

  • Lúxusgisting á Nungwi ströndinni

  • Skoðunarferð í Stone Town

  • The Rock veitingarstaður 

​​​​​

Greiða þarf staðfestingargjald  til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er  kr. 59.000kr og er óendurkræft. Greiða þarf 150.000kr 6.5.2026 og lokagreiðsla 350.000kr þarf að greiða fyrir 6.6.2026. Greiðsluseðill verður sendur í heimabanka. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Lágmarksfjöldi 10 hámark 12

Verð: 559.000 kr*  

*miðað við tvíbýli, aukakostnaður fyrir einbýli er 150.000 kr

Innifalið í verði:

  • Flug til Sansibar

  • Allur akstur

  • Akstur og leiðsögn í safaríferð á opnum 4x4 sérútbúnum jeppum

  • Aðgangur í skoðunarferðina "frá bónda til bolla"

  • Skoðunarferð um mibæ Arusha

  • Þjóðgarðsgjöld í Arusha þjóðgarðinn

  • Þjóðgarðsgjöld í Tarangire þjóðgarðinn

  • Aðgangur inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið

  • Heimsóknn í Massai þorp

  • Gisting í 4 nætur á hóteli í Arhusa

  • Gisting í 2 nætur á hóteli í safaríferð

  • Gisting í 6 nætur í Jr. Suits á 5 stjörnu lúxus hóteli á Sansibar þar sem allt er innifalið í mat, drykk og sjósporti. A.T.H þetta hótel opnaði 2026 og hluti af Riu hótelkeðjunni sem á yfir 150 hótel víðsvegar um heiminn

  • Morgunmatur alla morgna

  • 10 hádegisverðir 

  • 8 kvöldverðir 

  • Allt innifalið í mat og drykk í 7 daga á Sansibar

  • Erlendir og íslenskir leiðsögumenn

 

Ekki innifalið í verði:​

  • Flug til Tansaníu - Ferðasetrið hjálpar við kaup á flugi

  • Forfallatrygging

  • Farangurs-, ferða og slysatrygging

  • Gistináttaskattur greiðist úti

  • Vegabréfsáritun til Tansaníu $51

  • Trygging á Sanisbar $40

  • Þjórfé

  • Annar matur sem ekki er talin upp í dagskrá

Ferðatilhögun

​​

Dagur 1. 6. ágúst – Ferðadagur

Flug til Tansaníu

 

Dagur 2. 7. ágúst – Velkomin til Tansaníu 

Við byrjum daginn rólega – komum okkur fyrir á hótelinu og njótum dásamlegs morgunverðar í friðsælu umhverfi. Hótelið er staðsett á grónu og friðsælu svæði og býður upp á notalega sveitastemningu með einstökum stíl – þar sem þægindi, náttúra og hlýlegt andrúmsloft skapa fullkomið andrými eftir ferðalög eða fyrir komandi ævintýri.

Dagur 3.  8. ágúst– Skoðunarferð og kaffirækt

Uppgötvaðu lífið og menninguna í hjarta Arusha með einstakri upplifun. Við hefjum daginn á skoðunarferð um miðbæinn þar sem þú færð innsýn í daglegt líf heimamanna og heimsækir líflegan markað fullan af litum, ilmi og stemningu.

Að því loknu höldum við í sérstaka upplifun sem nefnist „frá bónda í bolla“. Þar heimsækjum við 100% lífræna kaffirækt og kynnumst öllu ferlinu – allt frá ræktun baunanna til þess þegar kaffi er borið fram í bollanum þínum. Þú færð að sjálfsögðu að smakka ferskt, ilmandi kaffi beint frá upprunanum.

Ferðinni lýkur með ljúffengum hádegisverði að hætti heimamanna þar sem þú færð að njóta ekta bragða úr heimabyggð.

 

Dagur 4. 9. ágúst– Arusha þjóðgarðurinn

Eftir dásamlegt morgunverðarhlaðborð á hótelinu keyrum við af stað í safarí. Við byrjum safaríið á hásléttum Arusha þjóðgarðsins, við rætur hins undurfagra Mount Meru. Þar hefst ævintýrið með örstuttri göngu yfir gróðursælar sléttur þar sem við komumst í einstakt nálægð við villt dýr á þeirra eigin heimavelli. Gíraffar teygja sig í trjátoppana rétt við okkur. Buffalóar fylgjast grannt með úr fjarska. Apar leika sér í trjánum og kalla hver á annan og auðvitað mætum við Pumba – vinalega viskukollinum úr skóginum! Náttúran tekur á móti okkur með opnum örmum og þetta er aðeins byrjunin. 

Dagur 5. 10. ágúst – Tarangire þjóðgarðurinn

Eftir morgunmat þá keyrum við í Tarangire þjóðgarðinn. Tarangire er paradís fyrir dýraunnendur. Þar er að finna einn stærsta fílastofn Austur-Afríku, og á þurrkatímanum safnast hundruðir fíla saman við Tarangire-ána sem rennur í gegnum garðinn. Auk fíla má sjá ljón, hlébarða, gíraffa, sebrahesta og fjölda antilóputegunda, ásamt yfir 500 fuglategundum sem gera svæðið að sannkallaðri himnaríki fuglaáhugafólks.

Eftir ævintýralega heimsókn í þjóðgarðinn keyrum við upp á hásléttur Karatu, þar sem við munum dvelja næstu tvær nætur á einstöku sjálfbærnu hóteli. Þetta hótel er meira en bara gististaður – það er sannkölluð upplifun fyrir þá sem kunna að meta náttúru, sjálfbærni og þægindi. Allt hráefni sem notað er í matargerðina er ræktað á staðnum, og maturinn er í hæsta gæðaflokki, undir áhrifum „slow cooking“ þar sem áherslan er á ferskleika, bragð og gæði. Hver máltíð verður sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Þjónustan á hótelinu er persónuleg og framúrskarandi, og hver dagur endar með stórkostlegu sólsetri sem lýsir himininn með rauðum, appelsínugulum og gylltum tónum – upplifun sem fyllir hjartað friði.

Dagur 5. 11. ágúst – Ngororngoro - Heimslistaskrá UNESCO

Eftir ljúffengan morgunmat leggjum við af stað inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið, sem er skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta svæði er einstakt á heimsvísu og þekkt fyrir stærsta gíg í heimi, þar sem villt dýr og menn lifa saman í sátt og samlyndi – staður sem fangar bæði fegurð og kraft náttúrunnar. Við byrjum daginn á heimsókn í þorp Massai ættbálksins sem hefur varðveitt sínar fornu hefðir og kýs að lifa án allra nútímaþæginda. Hér fáum við innsýn í lífsstíl þeirra, menningu og siði sem gefur ferðinni einstakan menningarlegan blæ. Að heimsókn lokinni keyrum við niður í hið stórfenglega Ngorongoro-gíg, þar sem náttúran opinberar sig í sinni allra bestu mynd.

Þessi einstaka staður er heimili ótrúlega fjölbreytilegs dýralífs. Hér fáum við tækifæri til að sjá ljón, buffalo, sebrahesta, nashyrninga, flamingóa, hlébarða, flóðhesta og fleiri tegundir í sínu náttúrulega umhverfi. Ef heppnin er með okkur getum við jafnvel séð öll „The Big 5“ – ljón, nashyrning, fíla, hlébarða og buffala – í einni heimsókn.

 ​​​

Dagur 6. 12. ágúst– Listagallerí og flug til Sansibar

Við tökum þennan dag með ró – njótum morgunverðar með stórkostlegu útsýni yfir náttúruna og fjallasýnina í fjarska. Við pökkum saman og dagurinn heldur áfram í léttum og listrænum tónum þegar við heimsækjum fallegt listagallerí, þar sem við fáum innsýn í menningu, handverk og sköpunarkraft heimamanna. Litir, form og sögur blandast saman og skapa innblástur og notalega stemningu – fullkomið jafnvægi við afslappaðan morguninn.

Eftir heimsókn á listagalleríið höldum áfram ferð okkar og keyrum á flugvöllinn í Arusha og fljúgum til paradísareyjunnar Sansibar. Við lendingu bíður okkar loftkæld rúta sem keyrir okkur á norðurhluta eyjarinnar, þar sem paradís bíður með sínum hvítu ströndum og tærbláa sjónum. Þessi dagur er fullur af upplifunum sem tengja saman ævintýri, menningu og afslöppun – hinn fullkomni millikafli á leið til draumaeyju.

 

Paradísareyjan Sanzibar – Fullkomin slökun í Indlandshafi. Eftir ævintýralega safaríferð er dásamlegt að slaka á í þessu nærandi umhverfi, þar sem allt snýst um afslöppun, vellíðan og fegurð. Það er um að gera að nýta daginn til að njóta alls þess sem hótelið hefur upp á að bjóða og uppgötva þetta stórkostlega svæði. Á hótelinu er allt innifalið – matur, drykkir og fjölbreytt afþreying. Hótelgarðurinn er til fyrirmyndar, með útpældu landslagi og rólegri stemningu sem umlykur gesti. A.T.H þetta er nýtt hótel sem opnaði 2026.

​​

Dagur 7 - 12. 13 - 17. ágúst - Sansibar frjáls tími

Frjáls dagur til að njóta Sansibar. Eftir að hafa endurnært líkama og sál með slökun og hvíld er tilvalið að nýta þennan dag til að skoða allt það sem Sansibar hefur upp á að bjóða. Eyjan er ekki aðeins þekkt fyrir stórkostlegar strendur heldur líka fyrir ríka sögu og menningu – og er fæðingarstaður tónlistargoðsagnarinnar Freddie Mercury.

Hér er úrval af spennandi afþreyingu:

  • Siglingar á glitrandi hafinu, þar sem þú getur notið sjávarlofts og útsýnis.

  • Stone Town, höfuðstaður Sansibar og heimsminjaskrá UNESCO, býður upp á heillandi gönguferðir um þröng stræti, markaði og sögulega staði.

  • Freddie Mercury safnið, þar sem þú færð innsýn í líf þessa heimsfræga tónlistarmanns.

  • Prison Island, þar sem þú getur séð risaskjaldbökur og notið útsýnis yfir tæran sjó.

  • The Rock veitingarstaðurinn, einstakur staður sem stendur á kletti úti í sjónum og býður upp á dásamlega máltíð í óviðjafnanlegu umhverfi.

  • Fiðrildabúgarður, þar sem litríkar fiðrildi dansa um í gróðursælum garði.

  • Kryddskoðunarferðir, þar sem þú lærir um ræktun hinna heimsþekktu krydda eyjunnar.

  • Synda með höfrungum, einstakt tækifæri til að komast í návígi við þessi heillandi sjávarspendýr.

Þetta er aðeins hluti af því sem Sansibar hefur upp á að bjóða. Næstu daga færðu tækifæri til að kanna eyjuna á eigin forsendum, fylla hann af ævintýrum eða einfaldlega halda áfram að njóta afslöppunar í þessari paradís. Veldu þína leið – Sansibar er fullkomin blanda af hvíld og ævintýri.

​​​​

Dagur 13. 24. 18. ágúst – Sansibar - Arusha

Eftir morgunmat er komið að kveðjustund við þessa stórkostlegu paradísareyju og við höldum út á flugvöll til að fljúga aftur til Arusha. Eftir að við lendum í Arusha förum við aftur á sama hótel og í byrjun ferðarinnar. Lokakvöldverður á hóteli í Arusha og kvöldið er tilvalið til að slaka á, endurspegla ferðalagið og pakka saman fyrir flugdaginn eftir. Þetta er góð stund til að njóta lokakaflans í ferð sem hefur verið fyllt af ævintýrum, slökun og minningum sem vara að eilífu.

​​​

Innifalið: Allt innifalið á hóteli á Sansibar, matur, drykkir og sjósport. Gisting á hóteli í Arusha með morgunmat

​​​

Dagur 13. 19. ágúst - Ferðadagur

Ferðadagur flug til Ísland

Dagur 14. 20. ágúst - Ísland

Mikilvægar upplýsingar

Bólusetningar og lyf: Mikilvægt er að hafa samband við heilsuhægslustöð varðandi bólusetningar og lyf. Einnig er hægt að hafa samband við Vinnuvernd/Ferðavernd og bóka viðtal /ráðgjöf vegna bólusetningar hægt að sjá hér:

https://www.vinnuvernd.is/en_GB/bolusetningar-ferdalog

Vegabréf: Þarf að vera í gildi 6 mánuði eftir að viðkomandi lendir í Tansaníu

Vegabréfsáritun: Sækja þarf um vegabréfsáritun til Tansaníu. Það tekur c.a 5 - 10 daga. Viðkomandi fyllir út umsókn á netinu (sér umsókn fyrir maka og börn). Með umsókn þarf að fylgja passamynd(má vera tekin á síma eða af FB), mynd af vegabréfi og flugmiði(pdf skjal). Hægt að sækja um hér:

https://visa.immigration.go.tz/

bottom of page