
UPPSELT - Gönguferð á Mt. Meru og Kilimanjaro í ágúst 2024
Framandi náttúra Tansaníu, gleði og menning heimamanna gera þessa ferð að ævintýralegustu gönguferð lífs þíns.
Í þessari gönguferð ætlum við að ganga á Mt. Meru (4.566 m) sem er næst hæsta fjall Tansaníu. Við ætlum einnig að ganga á Kilimanjaro (5.895 m) sem er hæsta fjall Afríku. Mt. Meru er staðsett í miðjum Arusha þjóðgarðinum. Fjallið er tignarlegt eldfjall um 70 km vestur af Kilimanjaro. Þegar toppnum er náð við sólarupprás er fagurt útsýni til allra átta og þar á meðal Kilimanjaro. Kilimanjaro er hæsta frístandandi fjall heims og eitt stærsta eldfjall heims sem rís upp frá sléttum Tansaníu.
Á gönguleiðinni er farið í gegnum öll gróðurbelti jarðar þar sem loftslagið sveiflast frá hitabelti niður fyrir frost á hæsta tindi Kilimanjaro, Uhuru peak. Þegar toppnum er náð er magnað útsýni yfir sléttur Tansaníu sem er einstakt.
Eftir gönguferðina er í boði að fara í 3ja daga safarí og Zansibar, eyjuna sem er þekkt fyrir afslappað umhverfi, fallegar strendur, fagurbláan sjó og einstaka menningu.
Við byrjum göngu á Mt. Meru til að aðlagast hæðinni betur fyrir gönguna á Kilimanjaro. Gangan á Meru tekur 4 daga en þar er gist í skálum, allur matur og drykkir eru innifaldir. Á fjórða degi þegar göngunni lýkur erum við keyrð beint á hótel. Þar gistum við eina nótt áður en við byrjum gönguna á Kilimanjaro daginn eftir. Gangan á Kilimanjaro tekur 6 daga en þar gistum við í tjöldum. Allur farangur, matur og búnaður er borinn upp á fjallið af burðarmönnum. Innifalið í ferðinni eru þrjár máltíðir á dag (hægt að fá grænmetisrétti). Það eru kokkar sem sjá um alla eldamennsku á fjallinu. Það eina sem þátttakendur þurfa að bera er lítill bakpoki
með vatni og auka fatnað.
Gengið verður í mismunandi hæð og veðurfar hugsanlega ólíkt eftir því. Það getur orðið kalt á kvöldin, nóttunni og efst í fjallinu. Einnig getur gangan orðið krefjandi þegar ofar dregur vegna þunna loftsins. Fólk þarf því að vera vel undirbúið og með réttan búnað. Með því að ganga fyrst á Mt. Meru og aðlagast hæðinni þá erum við að auka líkurnar á því að toppa Kilimanjaro. Það verður í boði að gera jóga og öndunaræfingar fyrir og eftir göngu alla dagana.
Gist verður á hóteli fyrir og eftir göngu bæði á Mt. Meru og Kilimanjaro. Hægt að bæta við safari ferð og Zansibar eftir gönguferðina. Þær ferðir greiðast aukalega
Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 60.000 kr. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is
Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson