top of page
32118265865_a2e4b2fc21_b.jpg

Safarí: Serengeti og Ngorongoro

Ógleymanlegt ævintýri í hjarta Austur-Afríku

Komdu í ferðalag sem sameinar framandi ævintýri og algjöra slökun – allt í einni upplifun. Við bjóðum þér í óviðjafnanlegt ferðalag um Tansaníu og Sansibar, þar sem þú færð að upplifa náttúrufegurð, menningu og afslöppun á heimsmælikvarða. Í þessari ferð er nánast allt innifalið.

 

Við byrjum safaríið á hásléttum Arusha þjóðgarðsins, við rætur hins undurfagra Mount Meru.
Þar hefst ævintýrið á léttum fótum – með örstuttri göngu yfir gróðursælar sléttur þar sem við komumst í einstakt nálægð við villt dýr á þeirra eigin heimavelli. Gíraffar teygja sig í trjátoppana rétt við okkur. Buffalóar fylgjast grannt með úr fjarska. Apar leika sér í trjánum og kalla hver á annan og auðvitað mætum við Pumba – vinalega viskukollinum úr skóginum! Náttúran tekur á móti okkur með opnum örmum og þetta er aðeins byrjunin.

 

Næst stígur þú inn í eina mögnuðustu náttúruheimsklukku heimsins – Serengeti þjóðgarðinn. Upplifðu „The Great Migration“ – stærstu og tilkomumestu dýraflutninga jarðar, þar sem milljónir villidýra, sebrahesta og antilópa fara í gegnum lífshættulega en stórbrotna ferð í leit að fersku vatni og grænum beitilöndum. Þar rennur tímalaus fegurð yfir endalausar gresjur, þar sem ljónin ráða ríkjum, fílar þramma um með reisn og gasellur dansa í þúsundatali. Fáðu að sjá „The Big Five“ í sínu náttúrulega umhverfi. Gistir í lúxustjaldi undir stjörnubjörtum himni og vaknar við sólarupprásina í hjarta náttúrunnar, þá er þetta ferð sem þú gleymir aldrei. Við heimsækjum hið stórfenglega Ngorongoro gíg, stærstu eldstöð heims og skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Í þessu einstaka náttúruundri eru hundruð tegunda dýra, og þú munt eiga möguleika á að sjá ljón, fíla, sebrahesta og mörg önnur stórkostleg dýr í sínu náttúrulega umhverfi.

 

Við heimsækjum hið sögufræga Olduvai gíl, eitt mikilvægasta fornleifasvæði heims. Þessi djúpi dalur í norðurhluta Tansaníu er stundum kallaður vagga mannkynsins, því þar hafa fundist einhver elstu mannvistarleifarnar sem nokkru sinni hafa komið í ljós. Í gílinu hafa fornleifafræðingar fundið steinverkfæri og beinleifar sem eru yfir 1,8 milljón ára gamlar – sem varpa ljósi á uppruna og þróun mannsins. Olduvai Gorge – þar sem sagan af okkur sjálfum byrjar.

 

Við leggjum einnig leið okkar til Massai-ættbálksins, þar sem þú kynnist einstökum menningarheimi þessa heillandi fólks. ​Heimsækjum kaffiplantekru, þar sem þú fylgist með ferlinu „frá bónda í bolla“. Þú færð að sjá hvernig kaffibaunir eru ræktaðar og unnar, og smakka ferskt, ilmandi kaffi á staðnum. Þú færð að upplifa matargerð sem kitlar bragðlaukana. Hvort sem það er nýveiddur fiskur, safaríkir ávextir eða djúpsteikt chapati brauð, þá upplifir þú matinn og menninguna. Þessi upplifun er ekki bara veisla fyrir bragðlaukana heldur líka dýrmæt tenging við lífsstílinn og hefðirnar í Tansaníu.

​​

Gistingin í safaríferðinni er sérhönnuð til að gera dvölina ógleymanlega. Lúxus í hjarta Serengeti. Tjaldgistingu sem þú gleymir aldrei. Í miðri víðáttunni, þar sem náttúran stjórnar og dýrin ráða för, bíður þín lúxus sem sameinar þægindi og ævintýri á óviðjafnanlegan hátt.
Við gistum í glæsilegum safarítjöldum, þar sem gamli stíllinn mætir nútímanum – með uppábúnum rúmum, sérbaðherbergi og öllu sem þú þarft til að slaka á eftir dag fullan af upplifunum. Kvöldverðurinn er borinn fram undir stjörnubjörtum himni, með fjallasýn í fjarska og hljóð náttúrunnar í kring. Morgunkaffið nýtur þú á veröndinni á meðan fyrstu geislar sólarinnar lýsa upp sléttuna – og mögulega með fíla eða sebrahesta sem gesti í fjarska.

Þú sefur til hljóða náttúrunnar, vaknar til lífsins – í fullkomnu jafnvægi við umhverfið.

Serengeti í lúxusstíl – villt, en með stjörnum. Hótel með sál. Hér mætast þægindi, sjálfbærni og náttúrufegurð í fullkomnu jafnvægi. Þú nýtur stórbrotnu útsýnisins yfir hásléttur Tansaníu, þar sem sólin sekkur í glóðrauðan sjóndeildarhringinn og skapar óviðjafnanlega stemningu við sólsetur. Matargerðin á staðnum er byggð á sjálfbærum grunni, þar sem hráefnið er ferskt og ræktað á staðnum. Hver máltíð er dásamleg upplifun sem kitlar bragðlaukana og styður við heilbrigði og vellíðan. Gistingin leggur einnig áherslu á núvitund, þar sem þú getur slakað á og tengst umhverfinu í rólegu og fallegu umhverfi. Þetta er ekki bara gisting – þetta er upplifun sem fangar kjarna safaríævintýrisins og leyfir þér að njóta náttúrunnar til fulls.

​​

Ferðin endar á paradísareyjunni Sansibar, þar sem draumurinn um fullkomna slökun verður að veruleika. Þar eru þig hvítar strendur, glitrandi fagurblár sjór og suðrænir vindar sem umlykja þig. Auk þess er Sansibar rík af menningu og sögu, með litríka markaði, dásamlega matargerð og einstakt andrúmsloft. Það bjóðum við upp á einstaka dvöl á 5 stjörnu lúxus hóteli þar sem allt er innifalið fyrir fullkomið frí. Hótelið er staðsett á hinni heimsþekktu Nungwi-strönd, sem er á norðurhluta eyjunnar og þekkt fyrir einstaklega fallegar og hreinar strendur með glitrandi hvítum sandi og tærum, fagurbláum sjó. Hótelið býður upp á fjölbreytta upplifun, þar sem ókeypis sjósport og spennandi skemmtidagskrá eru í boði alla daga. Hvort sem þig langar að prófa paddle board, snorkla í tærum sjónum eða einfaldlega slaka á í sólbaði við ströndina, þá er allt til staðar til að gera dvölina ógleymanlega. Útsýni yfir hafið, framúrskarandi veitingastaðir og fjölbreyttir barir skapa fullkomna umgjörð fyrir draumafríið. Allt sem þú þarft er til staðar – frá afslöppun við sundlaugarbakkann til ævintýra á sjónum. 

Sansibar er paradís fyrir þá sem elska fjölbreytt ævintýri og ógleymanlegar upplifanir. Á þessari töfrandi eyju er hægt að kafa í tærum sjónum við kóralrif og uppgötva heillandi undraheim neðansjávar. Fyrir þá sem vilja nánari tengingu við hafið er einstakt tækifæri til að synda með höfrungum eða skjaldbökum – upplifanir sem verða geymdar í hjarta þínu að eilífu.

Ef þig langar í spennandi afþreyingu er hægt að sigla um kristalbláan sjóinn, fara í para-gliding og njóta útsýnisins yfir eyjuna eða ríða á hestbaki með hafið í bakgrunni. Sansibar býður einnig upp á menningar- og náttúruskoðunarferðir sem eru ekki síður heillandi. Í höfuðstaðnum Stone Town, sem er skráður á heimsminjaskrá UNESCO, geturðu kynnst ríkri sögu eyjunnar. Skoðaðu hin heillandi þröngu stræti, heimsæktu Freddie Mercury safnið og lærðu um tónlistargoðsögnina sem fæddist á eyjunni. Fyrir þá sem elska náttúrufegurð er fiðrildabúgarðurinn tilvalinn staður til að dást að litríku fiðrildum í þeirra náttúrulega umhverfi. Þetta er aðeins brot af því sem Sansibar hefur upp á að bjóða – frá menningu og náttúru til ótrúlegrar afþreyingar. Eyjan er sannkölluð paradís fyrir þá sem vilja blanda saman spennu, fróðleik og afslöppun í draumaferð.

​​​

Þessi ferð er ekki aðeins upplifun heldur minning sem verður með þér að eilífu. Taktu skrefið inn í heim Tansaníu og Sansibar og upplifðu blöndu af spennu, friði og fegurð sem er ólýsanleg með orðum.

​​

​Flogið er með Icelandair og Qatar frá Íslandi til Tansaníu 13. Febrúar 2026. Innifalið 1x 23 kg taska og 1x 10 kg handfarangur. Töskurnar eru tékkaðar inn alla leið til Tansaníu þannig farþegar þurfa ekkert að spá í farangri á milli flugleiða. 

​​​

Hápunktur ferðarinnar

  • Arusha þjóðgarðurinn

  • Serengeti þjóðgarðuinn​

  • Ngorongoro náttúruverndarsvæði sem er á heimslista UNESCO

  • Olduvai gilið – Vagga alheimsins

  • Stærsta eldstöð heims

  • Villt dýr í sínu náttúrlega umhverfi

  • Lúxus tjaldgisting þar sem gamli stíllinn mætir nútímanum

  • Lúxusgisting á hásléttum Tansaníu

  • Menning Tansaníubúa

  • Massai ættbálkurinn

  • Markaðir heimamanna

  • Matargerð sem kitlar bragðlaukana

  • Kaffiplantekra heimamanna 100% organic

  • Frá bónda í bolla - skoðunarferð

  • Paradísareyjan Sansibar

  • Lúxusgisting á Nungwi ströndinni

​​​​​

Greiða þarf staðfestingargjald  til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er  kr. 100.000 og er óendurkræft. Lokagreiðsla 1.150.000 kr þarf að greiða fyrir 13. desember 2025, greiðsluseðill verður sendur í heimabanka. Hægt að skipta greiðslum niður. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Lágmarksfjöldi 6, hámark 12

Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson

Verð: 1.250.000 kr*  

*miðað við tvíbýli, aukakostnaður fyrir einbýli er 150.000 kr

Innifalið í verði:

  • Flug til Tansaníu

  • Flug til Sansibar

  • Akstur til og frá flugvelli að hóteli í Arusha og Sansibar

  • Akstur og leiðsögn í safaríferð á opnum 4x4 sérútbúnum jeppum

  • Aðgangur í skoðunarferðina "frá bónda til bolla"

  • Skoðunarferð um mibæ Arusha

  • Þjóðgarðsgjöld í Arusha þjóðgarðinn

  • Þjóðgarðsgjöld í Serengeti þjóðgarðinn

  • Aðgangur inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið

  • Gisting í 2 nætur á 4ra stjörnu lúxus hóteli í Arhusa

  • Gisting í 2 nætur á 4ra stjörnu hóteli í safaríferð

  • Gisting í 3 nætur í lúxus tjaldgistingu í Serengeti

  • Gisting í 4 nætur á 5 stjörnu lúxus hóteli á Sansibar þar sem allt er innifalið í mat, drykk og sjósporti

  • 12 morgunverðir

  • 3 hádegisverðir í Ngorongoro og Serengeti

  • 5 hádegisverðir á Sansibar

  • 3 kvöldverðir í Serengeti

  • 4 kvöldverðir á Sansibar

  • Erlendir og íslenskir leiðsögumenn

 

Ekki innifalið í verði:​

  • Forfallatrygging

  • Farangurs-, ferða og slysatrygging. 

  • Vegabréfsáritun til Tansaníu sem kostar $51

  • Þjórfé

  • Hádegis og kvöldverðir sem ekki eru talinn upp í dagskrá

  • Skoðunarferðir á Sansibar

 

Ferðatilhögun

​​

Dagur 1. 13. febrúar – Ferðadagur

Flug með Icelandair til Tansaníu kl.7.35

 

Dagur 2. 14. febrúar – Velkomin til Tansaníu 

Við byrjum daginn rólega – komum okkur fyrir á hótelinu og njótum dásamlegs morgunverðar í friðsælu umhverfi. Hótelið er staðsett á grónu og friðsælu svæði og býður upp á notalega sveitastemningu með einstökum stíl – þar sem þægindi, náttúra og hlýlegt andrúmsloft skapa fullkomið andrými eftir ferðalög eða fyrir komandi ævintýri. Herbergin eru umvafin grænum trjám, fuglasöng og ró. Hægt er að rölta meðfram ánni, sitja á veröndinni með bók í hendi eða njóta góðrar máltíðar í veitingastaðnum þar sem hráefnið kemur úr nærumhverfinu.

Hótel þar sem tíminn hægist og hugurinn fær að hvílast.

 

Eftir góða byrjun höldum við í skoðunarferð á ekta kaffiplantekru þar sem við kynnumst ferlinu: Frá bónda í bolla. Þú færð að sjá hvernig kaffibaunir eru ræktaðar og unnar, og smakka ferskt, ilmandi kaffi á staðnum. Þú færð að upplifa matargerð sem kitlar bragðlaukana. Hvort sem það er nýveiddur fiskur, safaríkir ávextir eða djúpsteikt chapati brauð, þá upplifir þú matinn og menninguna. Þessi upplifun er ekki bara veisla fyrir bragðlaukana heldur líka fullkomin leið til að kynnast menningu og lífsstíl heimamanna á sama tíma og við njótum náttúrunnar og ilmsins af nýlöguðu kaffi. Frjáls tími eftir það til að slaka á og njóta umhverfisins sem hótelið býður upp á.

 

Innifalið: Gisting á hóteli, akstur og skoðunarferð: Frá bónda í bolla

 

Dagur 3. 15. febrúar – Arusha þjóðgarðurinn

Eftir dásamlegt morgunverðarhlaðborð á hótelinu pökkum við saman. Við byrjum safaríið á hásléttum Arusha þjóðgarðsins, við rætur hins undurfagra Mount Meru. Þar hefst ævintýrið á léttum fótum – með örstuttri göngu yfir gróðursælar sléttur þar sem við komumst í einstakt nálægð við villt dýr á þeirra eigin heimavelli. Gíraffar teygja sig í trjátoppana rétt við okkur. Buffalóar fylgjast grannt með úr fjarska. Apar leika sér í trjánum og kalla hver á annan og auðvitað mætum við Pumba – vinalega viskukollinum úr skóginum! Náttúran tekur á móti okkur með opnum örmum og þetta er aðeins byrjunin. Eftir heimsókn í þjóðgarðinn höldum við í miðbæ Arusha, þar borðum við hádeigsverð og förum í skoðunarferð um miðbæinn.

Eftir ævintýralega heimsókn í þjóðgarðinn og miðbæ Arusha keyrum við upp á hásléttur Karatu, þar sem við munum dvelja næstu tvær nætur á einstöku sjálfbærnu hóteli. Þetta hótel er meira en bara gististaður – það er sannkölluð upplifun fyrir þá sem kunna að meta náttúru, sjálfbærni og þægindi. Allt hráefni sem notað er í matargerðina er ræktað á staðnum, og maturinn er í hæsta gæðaflokki, undir áhrifum „slow cooking“ þar sem áherslan er á ferskleika, bragð og gæði. Hver máltíð verður sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Þjónustan á hótelinu er persónuleg og framúrskarandi, og hver dagur endar með stórkostlegu sólsetri sem lýsir himininn með rauðum, appelsínugulum og gylltum tónum – upplifun sem fyllir hjartað friði.

 

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat. Aðgangur í Arusha þjóðgarðinn. Skoðunarferð um miðbæ Arusha. Leiðsögn og akstur

​​​

Dagur 4. 16. Febrúar – Hásléttur Karatu og Listagallerí

Við tökum þennan dag með ró – njótum morgunverðar með stórkostlegu útsýni yfir náttúruna og fjallasýnina í fjarska. Dagurinn heldur áfram í léttum og listrænum tónum þegar við heimsækjum fallegt listagallerí, þar sem við fáum innsýn í menningu, handverk og sköpunarkraft heimamanna. Litir, form og sögur blandast saman og skapa innblástur og notalega stemningu – fullkomið jafnvægi við afslappaðan morguninn

 

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat og akstur á listagallerí

​​​​

Dagur 5. 17. Febrúar – Ngororngoro – Massai – Olduvai gilið - Serengeti

Eftir ljúffengan morgunmat pökkum við saman og leggjum við af stað inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið, sem er skráð á heimsminjaskrá UNESCO. Þetta svæði er einstakt á heimsvísu og þekkt fyrir stærsta gíg í heimi, þar sem villt dýr og menn lifa saman í sátt og samlyndi – staður sem fangar bæði fegurð og kraft náttúrunnar. Við byrjum daginn á heimsókn í þorp Massai ættbálksins sem hefur varðveitt sínar fornu hefðir og kýs að lifa án allra nútímaþæginda. Hér fáum við innsýn í lífsstíl þeirra, menningu og siði sem gefur ferðinni einstakan menningarlegan blæ. Að heimsókn lokinni keyrum við niður í hið stórfenglega Ngorongoro-gíg, þar sem náttúran opinberar sig í sinni allra bestu mynd. Þessi einstaka staður er heimili ótrúlega fjölbreytilegs dýralífs. Hér fáum við tækifæri til að sjá ljón, buffalo, sebrahesta, nashyrninga, flamingóa, hlébarða, flóðhesta og fleiri tegundir í sínu náttúrulega umhverfi. Ef heppnin er með okkur getum við jafnvel séð öll „The Big 5“ – ljón, nashyrning, fíla, hlébarða og buffala – í einni heimsókn. Dagurinn er algjörlega óviðjafnanleg upplifun og verður án efa minning sem varir að eilífu. Eftir magnaðan tíma í Ngorongoro keyrum við í  Olduvai gilið – Vagga mannkynsins. Við heimsækjum hið sögufræga gil sem er eitt mikilvægasta fornleifasvæði heims. Þessi djúpi dalur í norðurhluta Tansaníu er stundum kallaður vagga mannkynsins, því þar hafa fundist einhver elstu mannvistarleifarnar sem nokkru sinni hafa komið í ljós. Í gílinu hafa fornleifafræðingar fundið steinverkfæri og beinleifar sem eru yfir 1,8 milljón ára gamlar – sem varpa ljósi á uppruna og þróun mannsins. Eftir frábæran dag þá keyrum við inn í Serengeti þjóðgarðinn þar sem lúxus tjaldgisting býður eftir okkur. Kvöldið endar á dásamlegum kvöldverði, þar sem ljúffengir réttir úr fersku, staðbundnu hráefni eru í forgrunni. Þetta er hinn fullkomni endir á ævintýraríkum og ógleymanlegum degi.

 

Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat. Aðgangur í Ngorongoro, Oldivai gilið og Serengeti þjóðgarðinn. Hádegisverður í Nogorongoro. Kvöldverður í Serengti

 

Dagur 6/7. 18/19. febrúar – Serengeti – Villta Afríka í sinni tærustu mynd!

Næstu tvo daga erum við í hjarta Serengeti, þar sem við förum í safarí og fylgjumst með dýralífinu í sínu náttúrulega umhverfi. Við ökum um víðáttumiklar sléttur og fylgjumst með dýrunum lifa sínu daglega lífi – ótrufluð og frjáls. Ljón hvíla sig í skugga, fílar þramma þöglir, sebrahestar og antilópur mynda lifandi mynstralínur á víðáttunni. Það er eitthvað töfrandi við að verða vitni að þessari óspilltu náttúru – þar sem allt er í sínu rétta samhengi og jafnvægi.

Serengeti – þar sem ævintýrið lifir. Í boði verður að fara í loftbelg en það greiðist sér á staðnumm

 

Innifalið: Gisting á lúxus tjaldi með morgun,- hádegis- og kvöldverði. Akstur og leiðsögn

 

Dagur 8. 20. febrúar – Serengeti – flug til Sansibar

Eftir ljúffengan morgunverð, er komið að því að pakka og kveðja þennan dásamlega stað. Við höldum áfram ferð okkar og keyrum á flugvöllinn í Serengeti og fljúgum til paradísareyjunnar Sansibar. Við lendingu bíður okkar loftkæld rúta sem keyrir okkur á norðurhluta eyjarinnar, þar sem paradís bíður með sínum hvítu ströndum og tærbláa sjónum. Þessi dagur er fullur af upplifunum sem tengja saman ævintýri, menningu og afslöppun – hinn fullkomni millikafli á leið til draumaeyju.

 

Paradísareyjan Sanzibar – Fullkomin slökun í Indlandshafi. Eftir ævintýralega safaríferð er dásamlegt að slaka á í þessu nærandi umhverfi, þar sem allt snýst um afslöppun, vellíðan og fegurð. Það er um að gera að nýta daginn til að njóta alls þess sem hótelið hefur upp á að bjóða og uppgötva þetta stórkostlega svæði. Á hótelinu er allt innifalið – matur, drykkir og fjölbreytt afþreying. Hótelgarðurinn er til fyrirmyndar, með útpældu landslagi og rólegri stemningu sem umlykur gesti. Hótelsvæðið státar af einkaströnd, þar sem þú getur notið tærblás hafsins og mjúkrar sólar. Þar eru einnig nokkrir framúrskarandi veitingastaðir, barir, spa, og líkamsræktarstöð. Að auki eru í boði hreyfitímar, eins og jóga, vatnsleikfimi og fleira í þeim dúr sem gerir daginn fjölbreyttan og skemmtilegan. Fyrir þau sem vilja njóta ævintýra á vatni eru fjölmargar ókeypis afþreyingar, þar á meðal paddle board, snorklun, hjólabátar og kayak. Þetta er fullkominn staður til að endurhlaða batteríin, njóta lífsins og leyfa paradísinni að slá um sig með allri sinni fegurð. Sansibar býður ekki bara upp á afslöppun heldur heildarupplifun sem hentar öllum sem vilja njóta lífsins í botn.

​​​

Innifalið: Allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport

​​​

Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)

​​

Dagur 9-11. 21-23. febrúar Sansibar

Frjálsir dagar til að njóta Sansibar. Eftir að hafa endurnært líkama og sál með slökun og hvíld er tilvalið að nýta þennan dag til að skoða allt það sem Sansibar hefur upp á að bjóða. Eyjan er ekki aðeins þekkt fyrir stórkostlegar strendur heldur líka fyrir ríka sögu og menningu – og er fæðingarstaður tónlistargoðsagnarinnar Freddie Mercury.

Hér er úrval af spennandi afþreyingu:

  • Siglingar á glitrandi hafinu, þar sem þú getur notið sjávarlofts og útsýnis.

  • Stone Town, höfuðstaður Sansibar og heimsminjaskrá UNESCO, býður upp á heillandi gönguferðir um þröng stræti, markaði og sögulega staði.

  • Freddie Mercury safnið, þar sem þú færð innsýn í líf þessa heimsfræga tónlistarmanns.

  • Prison Island, þar sem þú getur séð risaskjaldbökur og notið útsýnis yfir tæran sjó.

  • The Rock veitingarstaðurinn, einstakur staður sem stendur á kletti úti í sjónum og býður upp á dásamlega máltíð í óviðjafnanlegu umhverfi.

  • Fiðrildabúgarður, þar sem litríkar fiðrildi dansa um í gróðursælum garði.

  • Kryddskoðunarferðir, þar sem þú lærir um ræktun hinna heimsþekktu krydda eyjunnar.

  • Synda með höfrungum, einstakt tækifæri til að komast í návígi við þessi heillandi sjávarspendýr.

Þetta er aðeins hluti af því sem Sansibar hefur upp á að bjóða. Dagurinn gefur þér tækifæri til að kanna eyjuna á eigin forsendum, fylla hann af ævintýrum eða einfaldlega halda áfram að njóta afslöppunar í þessari paradís. Veldu þína leið – Sansibar er fullkomin blanda af hvíld og ævintýri.

​​

Innifalið: Allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport á hóteli

​​

Afþreying: Hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)

​​

Dagur 12. 24. Febrúar – Sansibar - Arusha

Eftir morgunmat er komið að kveðjustund við þessa stórkostlegu paradísareyju og við höldum út á flugvöll til að fljúga aftur til Arusha. Eftir að við lendum í Arusha förum við aftur á sama hótel og í byrjun ferðarinnar. Lokakvöldverður á hóteli í Arusha og kvöldið er tilvalið til að slaka á, endurspegla ferðalagið og pakka saman fyrir flugdaginn eftir. Þetta er góð stund til að njóta lokakaflans í ferð sem hefur verið fyllt af ævintýrum, slökun og minningum sem vara að eilífu.

​​​

Innifalið: Allt innifalið á hóteli á Sansibar, matur, drykkir og sjósport. Gisting á hóteli í Arusha með morgunmat

​​​

Dagur 13. 25 febrúar - Ferðadagur

Ferðadagur flug með Qatar til Íslands kl.9.05

Mikilvægar upplýsingar

Bólusetningar og lyf: Mikilvægt er að hafa samband við heilsuhægslustöð varðandi bólusetningar og lyf. Einnig er hægt að hafa samband við Vinnuvernd/Ferðavernd og bóka viðtal /ráðgjöf vegna bólusetningar hægt að sjá hér:

https://www.vinnuvernd.is/en_GB/bolusetningar-ferdalog

Vegabréf: Þarf að vera í gildi 6 mánuði eftir að viðkomandi lendir í Tansaníu

Vegabréfsáritun: Sækja þarf um vegabréfsáritun til Tansaníu. Það tekur c.a 5 - 10 daga. Viðkomandi fyllir út umsókn á netinu (sér umsókn fyrir maka og börn). Með umsókn þarf að fylgja passamynd(má vera tekin á síma eða af FB), mynd af vegabréfi og flugmiði(pdf skjal). Hægt að sækja um hér:

https://visa.immigration.go.tz/

bottom of page