top of page
509615583_3576990155769341_5652686678320535517_n_edited.jpg

Laugardagsfjör - Skessuhorn gönguferð
20. september 2025

Laugardagsfjör ætlar að ganga á Skessuhorn laugardaginn 20. september. Gangan er krefjandi  og aðeins fyrir vana göngumenn og alls ekki fyrir lofthrædda. Gangan er 12-13 km, uppsöfnuð hækkun er 800 - 1.000 m og tekur um 8/9 klst.

Skarðsheiðin skartar mörgum hávöxnum fjallaperlum svo sem Heiðarhorni og Skarðshyrnu og svo er hið fjallmyndalega Skessuhorn hluti af þessum fjallabálki. Skarðsheiði er víðáttumikið fjalllendi milli Hvalfjarðar og Borgarfjarðar á vesturlandi. Skarðsheiðin er kulnuð eldstöð sem gaus fyrir fjórum, fimm milljónum ára, og er að stórum hluta yfir 1000 metra há, og hefur mótast sterkt af jökulrofi síðustu ísaldar. 

Lýsing á ferðinni: Gönguferðin byrjar í 3-400 metrum, fer eftir því hversu langt við keyrum upp línuveginn.. Gönguleiðin er c.a 12-13 km og 800-1000  metra hækkun. Leiðin upp á topp tekur um 4-5 klukkustundir og heildar göngutími gæti verið 8-9 klst. Leiðin er nánast öll beint á fótinn og efsti hluti leiðarinnar er mjög brattur og ALLS ekki fyrir lofthrædda.

Erfiðleikastig: Erfið gönguferð. Þátttakendur þurfa að vera í góðu líkamlegu formi og ALLS ekki lofthræddir. Þetta er ekki gönguferð fyrir byrjendur

Veðurspá: Samkvæmt veðurspám verður osalega fallegt haust veður, lítill vindur en það er að kólna

Upplýsingar: Þátttakendur verða að vera á jeppa eða stærri jeppling til að komast í þessa göngu, það þarf að keyra upp línuveg sem getur verið ansi leiðinlegur yfirferðar. Hægt er að nota FB hópinn til að athuga með með far en Ferðasetrið hefur enga milligöngu með það. Hópurinn hittist og keyrir í samfloti að upphafsstað göngu.

Eftir að þátttakandi hefur bókað kemur tölvupóstur með nánari upplýsingum um ferðina.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is

Verð 9.900 kr.*

*innifalið: leiðsögn 

bottom of page