
Lúxus ferð á Zansibar og safarí í júní 2024
7. júní 2024
14 dagar
frá 499.000 kr
Ógleymanlegt ferðalag um austur Afríku þar sem þú upplifir margar af fallegustu perlum sem Tansanía hefur upp á að bjóða í einni ferð. Tansanía er mjög framandi og heillandi land, sambland af ævintýri og slökun. Í þessari ferð ætlum við að byrja á safarí og skoða allt það fjölbreytta og framúrskarandi villta dýralíf sem Tansaníu býður upp á. Skoða stærstu öskju heims Ngorongoro gíginn sem er á heimslista UNESCO. Fara á slóðir þar sem fyrsta mannkynið varð til þar sem það dafnaði við Olduvai gljúfrið, sem er kallað vagga heimsins og heimsækja Massai ættbálkinn. Við endum síðan ferðina á slökun á Zansibar, eyjuna sem er þekkt fyrir afslappað umhverfi, fallegar strendur, fagurbláan sjó og einstaka menningu. Við heimsækjum Stone Town sem er á heimslista UNESCO og siglum yfir á Prison Island sem er þekkt fyrir risa skjaldbökur.
Gist er á 5 stjörnu lúxus hóteli á Zansibar þar sem ALLT er INNIFALIÐ. Hótelið býður upp á allskyns frítt sjósport og skemmtidagskrá alla daga. Hótelið er staðsett á Nuwunga ströndinni sem er á norðurhluta eyjunnar þar sem fallegustu og hreinustu strendurnar eru.
Gist er á 5 stjörnu hóteli í rétt við bæjarmörk Arusha fyrir og eftir safari. Hótelið er mjög sjarmerandi og flott, herbergin eru lítil hús þar sem hvert smáatriði er útpælt. Einstaklega góður matur og morgunverðarhlaðborðið er geggjað enda er hótelið rekið af frökkum.
Gist er á 4 stjörnu hóteli í safari. Einstaklega vinarlegt og þægilegt hótel, maturinn ótrúlega góður og ferskur þar sem hótelið ræktar allt krydd, ávexti og grænmeti á svæðinu þar sem hótelið er staðsett.
Hápunktur ferðarinnar:
-
Tarangire þjóðgarðuinn
-
Villt dýr í sínu náttúrulega umhverfi
-
Ngorongoro náttúruverndarsvæði sem er á heimslista UNESCO
-
Olduvai gilið
-
Massai ættbálkurinn
-
Zansibar
A.T.H aðeins 6 sæti laus í þessa ferð. Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er kr. 50.000 Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is
Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson
Verð: 499.000 kr*
*miðað við tvíbýli, aukakostnaður fyrir einbýli er 60.000 kr
Innifalið í verði:
-
Akstur til og frá flugvelli að hóteli í Arusha og Zansibar
-
Þjóðgarðsgjöld fyrir safarí ferðir
-
Flug til Zansibar
-
Gisting á 5 stjörnu hóteli í Arhusa: 3 nætur með morgunmat
-
Gisting á 4 stjörnu hóteli í safarí: 2 nætur með morgunmat
-
Gisting á 5 stjörnu lúxus hóteli á Zansibar: 7 nætur þar sem allt er innifalið, allur matur, drykkir og sjósport
-
Akstur og leiðsögn í safarí ferð á opnum 4x4 sérútbúnum jeppum
Ekki innifalið í verði:
-
Flug til Tanzaníu - Ferðasetrið aðstoðar með kaup á flugi
-
Forfallatrygging
-
Farangurs-, ferða og slysatrygging
-
Vegabréfsáritun til Tansaníu
-
Þjórfé
-
Hádegis- og kvöldmatur í Arusha
-
Kvöldmatur á hóteli í safarí
-
Leigubílar á Zansibar
-
Skoðunarferðir á Zansibar
Dagskrá:
Dagur 1. Föstudagur 7. júní 2024
Ferðadagur, flug frá Íslandi til Tansaníu
Dagur 2. Laugardagur 8. júní 2024
Velkomin til Tansaníu. Ævintýrið byrjar í Arusha og byrjar á heimsókn í Kikuletwa hotspring. Akstur á hótel og frjáls tími. Upplýsingafundur með fararstjórum ferðarinnar kl. 18.
Innifalið: akstur, hótelgisting, morgunmatur
Dagur 3. Sunnudagur 9. júní 2024
Eftir dýrindis morgunverðarhlaðborð á hótelinu pökkum við saman farangrinum okkar. Keyrum í Tarangire þjóðgarðinn á opnum 4x4 sérútbúnum safarí jeppum. Í þjóðgarðinum upplifum við hið magnaða villta dýralíf. Eftir daginn keyrum við á hótel í Karatu 2 nætur.
Innifalið: gisting á hóteli, morgun- og hádegismatur. Leiðsögn og akstur
Dagur 4. Mánudagur 10. júní 2024
Eftir dýrindis morgunverðarhlaðborð á hótelinu keyrum við inn á Ngorongoro náttúruverndarsvæðið sem er á heimslista UNESCO. Keyrum niður í Ngorongoro gíginn sem er stærsta askja heims. Skoðum villta dýralíf á svæðinu. Eftir daginn keyrum við til baka á hótel í Karatu.
Innifalið: gisting á hóteli, morgun og hádegismatur. Leiðsögn og akstur.
Dagur 5. Þriðjudagur 11. júní 2024
Eftir dýrindis morgunverðarhlaðborð á hótelinu pökkum við saman farangrinum okkar. Skoðum við Olduvai gilið sem er talið vera staðurinn sem mannkyn varð til og dafnaði á þúsundum ára. Oft kallað vagga heimsins. Við munum einnig heimsækja og skoða Massai þjóðflokkinn. Við eigum síðan bókað flug til Zansibar kl.20.20
Innifalið: gisting á hóteli, morgun og hádegismatur. Leiðsögn, akstur og flug til Zansibar
Dagur 6. Miðvikudagur 12. júní 2024
Frjáls dagur. Flott að slaka á eftir safarí ferðina. Fullt af spa meðferðum í boði (greiðist sér).
Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport
Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)
Dagur 7. Fimmtudagur 13. júní 2024
Frjáls dagur.
Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport
Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)
Dagur 8. Föstudagur 14. júní 2024
Eftir morgunmat förum við með leigubíl í Stown Town og Prison Island. Stown Town er á heimslista UNESCO og Prison Island er þekkt fyrir risa skjaldbökur. Borðum kvöldverð á veitingastaðnum Rock sem er staðsettur á kletti úti á Indlandshafi.
Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport
Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)
Dagur 9. Laugardagur 15. júní 2024
Frjáls dagur.
Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport
Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)
Dagur 10. Sunnudagur 16. júní 2024
Frjáls dagur.
Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport
Afþreying: hægt að bóka skoðunarferðir (greiðist sér)
Dagur 11. Mánudagur 17. júní 2024
Frjáls dagur.
Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport
Afþreying: hægt að bóka aukalega skoðunarferðir (greiðist sér)
Dagur 12. Þriðjudagur 18. júní 2024
Frjáls dagur til kl. 18, flug til Arusha um kvöldið.
Innifalið: allt innifalið á hóteli, matur, drykkir og sjósport. Gisting á hóteli í Arusha.
Dagur 13. Miðvikudagur 19. júní 2024
Ferðadagur, flug frá Tansaníu til Íslands. Heimkoma til Íslands + 1 dagur (20. júní )