top of page
Það er ekki lengur hægt að bóka í þessa ferð
Grænihryggur
Tímabil: 27. júlí 2024
14.900 íslenskar krónur
14.900 ISK
Ferð
Gönguferð á Grænahrygg og nánasta umhverfi. Þetta er ein fallegasta gönguleið landsins og svæðið er sannkölluð náttúruperla og er einstakt á heimsmælikvarða. Krefjandi ganga um einstaklega fjölbreytt og litríkt landslag. Það þarf að vaða jökulá nokkrum sinnum og áin getur verið straumhörð. Vegalengd 16-18 km, 800 metra hækkun og tekur um 8-9 klst. Brottför frá Reykjavík kl. 7 á einkabílun. Byrjum göngu kl. 10.30, gengið um Halldórsgil inn að Grænahrygg. Í boði verður að gera jógateygjur í og eftir göngu áður en lagt er af stað til Reykjavíkur aftur. Fararstjórar: Edith Gunnarsdóttir
bottom of page