Mont Blanc lúxusferð 22 - 31. júlí 2025
22. júlí 2025
10 dagar
frá 499.000 kr
Lengri lúxus ferð um allra vinsælustu gönguleið í Evrópu, umhverfis Mont Blanc eða Tour du Mont blanc (TMB). Edith og Elinas ætla leiða hópinn um krefjandi gönguleiðir með dáleiðandi útsýni yfir jökla, bratta dali og auðvitað Mont Blanc sjálft. Í þessari lúxus ferð göngum fallegustu gönguleiðirnar á hringnum að okkar mati. Við göngum frá Frakklandi yfir til Ítalíu og aftur til Frakklands þar sem við endum ferðina í Chamonix. Þetta er ferð fyrir þau sem vilja ganga fallegar en krefjandi gönguleiðir og verðlauna sig með góðum mat og lúxus gistingu með spa. A.T.H þessi ferð er 2 dögum lengri en hin ferðin í kringum TMB, fyrir þau sem vilja taka frídag á miðri leið og njóta lengri tíma í Chamonix.
Gist verður 4 nætur 4ra stjörnu hóteli í Chamonix með spa í tvíbýli hægt að sjá hér
Gist verður 1 nótt 4ra stjörnu hóteli St. Gervais með spa í tvíbýli, hægt að sjá hér
Gist verður 1 nótt á einstaklega kósý fjallahóteli, hægt að sjá hér
Gist verður 1 nótt í fjallskála sem hefur einstakt sólsetur yfir landamæri Frakklands og Ítalíu
Í lok ferðar er farið á 5 stjörnu spa á þremur hæðum í Chamonix. Spaið er með stórkostlegu útsýni yfir Mont Blanc fjallagarðinn, hægt að sjá hér
Farangur er trússaður á milli gististaða, akstur á milli Ítalíu og Frakklands og akstur á hótel.
Þetta eru langar og krefjandi gönguleiðir, göngum c.a 20 km á dag og yfir 1000 metra hækkun. Þátttakendur þurfa að vera í góðu formi fyrir þessa ferð. Þótt að farangur sé trússaður á milli gististaða þá eru dagleiðirnar mjög krefjandi.
Hápunktur ferðarinnar:
-
Einstak útsýni yfir Mont Blanc fjallgarðinn
-
Chamonix
-
Courmayeur
-
Lac Blanc
-
Fjallaskarðið Col de Tricot 2120 m
-
Fjallaskarðið Col du Bonhomme 2329 m
-
Fjallaskarðið Col du Croix du Bonhomme 2443 m
-
Fjallaskarðið Col du Seigne 2516 m
-
Landamæri Frakkland og Ítalíu
-
Sundferð í jökullón
-
5 stjörnu spa
Greiða þarf staðfestingargjald til að festa sæti við bókun, staðfestingargjaldið er 49.000 kr. Greiða þarf 200.000 fyrir 22.4.2025 og lokagreiðsla 250.000 þarf að greiða fyrir 22.5. 2025. Hægt að skipta greiðslum niður. Til að fá frekari upplýsingar er hægt að senda póst á ferdasetrid@ferdasetrid.is
Lámarksfjöldi 18, hámark 22
Fararstjórn: Edith Gunnarsdóttir og Elinas Jackson
Verð: 499.000 kr*
*miðað við tvíbýlí, aukagjald vegna einbýli er 80.000 kr
Innifalið í verði:
-
Undirbúningsfundur
-
Flug með Icelandair, handfarangur og 1x 23 kg innrituð taska
-
Akstur til og frá flugvelli að hóteli
-
Gisting í 5 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix með morgunmat
-
Gisting í 3 nætur á 4ra stjörnu hóteli í Les Contamines og Bourg Saint Maurice með morgunmat
-
Gisting 1 nótt í fjallaskála með morgunmat og kvöldmat
-
Trúss á farangri milli gististaða
-
Akstur á milli hótela og upphafsstað göngu
-
Akstur frá Ítalíu til Frakklands
-
Íslensk fararstjórn
Ekki innifalið í verði:
-
Ferða-, slysa- og farangurstrygging
-
Forfallatrygging
-
Allur annar matur sem er ekki talinn upp og nesti/hádegismatur á göngudögum
-
Aðgangur í kláfa
-
Spa í Chamonix
Dagskrá
Dagur 1 - 22.7 - Ferðadagur flug frá Íslandi til Genf
Hópurinn lendir í Genf um hádegið. Akstur á hótel í Chamonix. Frjáls dagur.
Innifalið: Akstur og gisting á hóteli
Dagur 2 - 23.7 - Chamonix - Le Brévent - Le Blanc - Chamonix
Eftir morgunmat förum við í Kláf alveg upp að Le Brévent (2526m), drekkum í okkur óviðjafnanlegt útsýni Mont Blanc. Gengið eftir hlíðum Chamonix að la Flégére þar sem hópurinn tekur hádegismat. Eftir hádegismat er gengið að fallegustu vötnum Alpanna, Lac Blanc og Lac Chesery. Gisting á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix með aðgangi að fríu spa-i
Gönguvegalengd: 14 km
Gönguhækkun: 800 m
Göngutími: 8 klst
Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat og leiðsögn
Dagur 3 - 24.7 - Les Houches - Les Contamines
Eftir morgunmat er farið með strætó til Les Houches og farið í Bellevue kláfinn upp í 1800 metra. Gengið þaðan upp í Fjallaskarðið Col de Tricot (2120 m) og þaðan í Miega skálann þar sem hópurinn tekur hádegismat. Þaðan er gengið niður til Les Contamines. Gisting á 4ra stjörnu hóteli Saint Gervais
Gönguvegalengd: 14 km
Göngnuhækkun: 800 metrar hækkun
Göngutími: 8 klst
Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, trúss og leiðsögn
Dagur 4 - 25.7 - Saint Gervais
Frjáls dagur til að njóta í Saint Gervais
Innifalið: Gisting á hóteli
Dagur 5 - 26.7 Les Contamines - Les Chapieux
Eftir morgunmat göngum við til enda Montjoie dalsins til Les Chapieux dalsins. Þetta er langur dagur þar sem við göngum yfir tvö fjallaskörð, Col du Bonhomme (2329 m) og Col du Croix du Bonhomme (2443 m) áður en við göngum niður í síma- og netsambandsleysi í Chapieux. Ein fallegasta gönguleiðin á hringnum með stórbrotnu útsýni.
Gönguvegalend: 19 km
Gönguhækkun: 1400 m
Göngutími: 9 klst
Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, trúss og leiðsögn
Dagur 6 - 27.7 - Les Chapieux - Combal
Eftir morgunmat, tökum við strætó í næsta þorp, Ville des Glacier þar sem gengið er upp í fjallaskarðið Col de la Seigne (2516 m) sem er á landamærum Frakkland og Ítalíu. Þegar á toppinn er komið er verðlaunin einstaklega fallegt útsýni yfir Mont Blanc og Aiguille Noire. Gengið niður dalinn og hádegismat er tekin í Rifugio Elisabette. Eftir hádegimat er gengið áfram niður dalinn og gist í fjallaskálanum Combal
Gönguvegalengd: 14 km
Gönguhækkun: 1000 m
Göngutími: 7 klst
Innifalið: Gisting í skála, morgun- og kvöldmatur og leiðsögn
Dagur 7 - 28.7 Combal - Courmayeur - Chamonix
Eftir morgunmat er gengið frá Combal niður í Courmayeur. Courmayeur er yndislegur lítill fjallabær á Ítalíu. Hópurinn tekur skíðalyftuna niður í bæinn. Eftir að hafa fengið sér borða og spókað sig um í þessum bæ er hópurinn sóttur og keyrður aftur til Chamonix. Akstur og gisting á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix
Gönguvegalengd: 10 km
Gönguhækkun: 500 m
Göngutími: 5 klst
Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat, akstur, trúss og leiðsögn
Dagur 8 - 29.7 - Chamonix
Frjáls dagur í Chamonix
Innifalið: Gisting á hóteli með mogunmat
Dagur 9 - 30.7 - Chamonix
Við ætlum að njóta á 5 stjörnu spa sem er á 3 hæðum og síðan er frjáls dagur í Chamonix. Lokakvöldverður. Gisting á 4ra stjörnu hóteli í Chamonix
Innifalið: Gisting á hóteli með morgunmat
Dagur 10 - 31.7 - Ferðadagur
Eftir morgunmat pökkum við saman fyrir heimför. Akstur á flugvöll í Genf. Flug til Keflavíkur kl. 14.00.
Innifalið: Gisting á hóteli og akstur á flugvöll í Sviss